Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Kristrún: „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru lágmarksviðbragð við ástandi sem hún hefur sjálf skapað“

Formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frosta­dóttir fjallar á Facebook-síðu sinni um tíðindi dagsins í kjara­málunum:

„Ríkis­stjórnin fellst á hluta kjara­pakkans sem við í Samfylkingunni kynntum í síðustu viku. Þau atriði úr kjara­pakkanum sem ríkis­stjórnin hefur fallist á að hrinda í framkvæmd eru eftir­farandi: Hærri húsnæðis­bætur til leigjenda (rúmlega 10% hækkun). Hærri vaxta­bætur (50% hækkun á eigna­skerðinga­mörkum til samræmis við hækkun fasteigna­verðs frá 2020). Hærri barna­bætur til fjöl­skyldna (5 milljarðar á tveimur árum í stað raun­lækkunar árið 2023).“

Kristrún bætir því við að „við fögnum því auðvitað að ríkis­stjórnin fallist á hluta kjara­pakkans sem við og verkalýðs­hreyfingin höfum kallað eftir að undan­förnu. Nú er ljóst að baráttan síðustu mánuði hefur skilað árangri og það er fagnaðar­efni. En þær aðgerðir sem ríkis­stjórnin kynnir nú eru í raun algjört lágmarks­viðbragð við ástandi sem hún hefur sjálf skapað og ber ábyrgð á.“

Hún nefnir nokkur dæmi:

„Ég vil til dæmis gagnrýna eftir­farandi: Að ekki sé gripið til tíma­bundinnar leigu­bremsu, að danskri eða skoskri fyrirmynd, líkt og við í Samfylkingunni höfum kallað eftir. Að allt aðhald ríkis­stjórnarinnar sé lagt á almenning með flatri hækkun á krónutölu­gjöldum sem leggjast þyngra á fólk eftir því sem það hefur lægri tekjur — í stað þess að taka á þenslunni þar sem hún er í raun eftir metár í fjármagns­tekjum, hjá stór­útgerð og hjá bönkunum. Að ný stofn­framlög til húsnæðis­uppbyggingar séu í raun helminguð. Það vekur furðu eftir fögur fyrirheit ríkis­stjórnarinnar — þessi framlög viljum við í Samfylkingunni tvöfalda.“

Kristrún segir að „fjárlögin voru ekki tæk eins og þau voru lögð fram á Alþingi. Ekki frekar en fjármála­áætlunin sem var kynnt í vor. Það sést á því hvernig ríkis­stjórnin hefur hringlað með eigin fjárlög — ekki út frá eigin stefnu heldur í stans­lausu viðbragði við neyð. Við höfum gagnrýnt stefnu­leysi ríkis­stjórnarinnar harðlega. Stefna Samfylkingarinnar er skýr: Við munum halda áfram að leiða baráttuna fyrir bættum kjörum almennings inni á Alþingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti