Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ruslatunnustríðið á Seltjarnarnesi: „Yfirlýsing Steingríms er gróf gaslýsing ofbeldismanns“

Hanna Kristín Skaptadóttir og Steingrímur Sævarr Ólafsson Myndin er samsett
Hanna Kristín Skapta­dóttir og Stein­grímur Sævarr Ólafsson Myndin er sam­sett

Hanna Kristín Skafta­dóttir hefur birt færslu á fésbókar­síðu sinni vegna nýút­kominnar yfir­lýsingar Steingríms Sævarrs, almanna­tengils. Sann­kallað ruslatunnu­stríð hefur átt sér stað í litlu þríbýli á Seltjarnarnesi. Í yfir­lýsingunni sakar Stein­grímur meðal annars Hönnu Kristínu um að hafa gefið sér fingurinn:

„Þegar ég steig út úr bílnum á aðfangadags­morgun stóð hún við gluggann, sendi mér fingurinn og storkaði með öðru fingra­tengdu táknmáli. Mér blöskraði auðvitað yfir­gangurinn og ofbeldið en gerði þó ekki annað en að færa tunnurnar á sinn stað,“ skrifar Stein­grímur í yfir­lýsing sinni.

Aðspurð svarar Hanna Kristín vegna ásakana Steingríms um fingra­sendingar svohljóðandi:

„Ég hef aldrei nokkru sinni sent þessum manni fingurinn né nokkurskonar annað táknmál með fingrum – sömuleiðis sá ég hann aldrei á aðfangadag. Við hinsvegar færðum til jóla­draslið hans og sést á meðfylgjandi myndum. Hér sést bersýni­lega að ekkert jóladrasl var rifið niður á aðfangadag. Yfir­lýsing Steingríms er hreinn og beinn tilbúningur og gróf gaslýsing ofbeldis­manns.“

Til útskýringar sýnir Hanna Kristín mynd og bætir við: „Þetta kalla ég sannarlega ekki að rífa niður neitt jóla­skraut.“

Mynd af stað­setn­ingu rusla­tunn­anna og umrætt jóla­skraut Mynd/aðsend

Þá bætir Hanna Kristín við: „Auk þess er ég með SmartLock á útidyra­hurðinni minni sem sýnir að ég fór ekkert út úr húsi á aðfangadags­morgni svo að dylgjur hans um að ég hafi hreinlega séð hann þá eru út í hött.“

Hér að neðan má sjá færslu Hönnu Kristínar:

„Gaslýsing 101 dömur mínar og herra

Nútíminn var að hringja og ég mæli með uppfærslu á aðferða­fræði hans, gaslýsingar og tudda­skapur eru algjör­lega out of style.

Merkilegt að hann hafi bara „geymt smá“ tunnurnar fyrir framan bílinn minn þegar í öll hin skiptin sem hann er í þessum tunnuleik sínum hefur hann fært þær rakleiðis yfir. Ofstækis­taktar hans eru kristal­skýrir á mynd­bandinu. Mögulega er þetta ein vandræðalegasta „yfir­lýsing“ sem ég hef lesið.Myndi ekki ráða þennan mann til að sinna almann­tengslum fyrir mig ef þetta er hans besta afsökun fyrir ógnandi og vitfirringslegri hegðun sinni sem við öll heimilis­fólkið og fleiri fjölskyldu­meðlimir höfum orðið vitni að.Allt saman mjög dapurt en greyið maðurinn má alveg halda áfram að reyna að sprikla því ég veit að hans hegðun þolir illa dags­ljósið. Skil mjög vel að hann sé í skömm og búinn að mála sig út í horn en svona gaslýsing er mjög oldschool taktíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna