Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Með skammbyssur í Krónunni: „Vopn eiga ekki heima á almannafæri – Við viljum vera vopnlaust land“

Eru lögreglumennirnir á myndinni vopnaðir skammbyssum?
Eru lög­reglu­menn­irnir á mynd­inni vopn­aðir skamm­byssum?

Ljósmynd sem virðist sýna tvo sérsveitar­menn á gangi um hábjartan dag vopnaða skamm­byssum á leið í Krónuna, hefur vakið mikla athygli inni Facebook-síðu sem ber nafnið Pírata­spjallið 2.

Kona sem heitir Helga deilir innlegi og segir „að hér hittir ein vinkona þessa í Krónunni; það rifjast þá upp fyrir mér að ég var í bakaríi í miðborginni með barn með mér og þar voru tveir vopnaðir að versla sér sætabrauð,“ og spyr: „Þetta getur ekki verið í lagi, er það?“

Á mynd sem fylgir færslunni og sjá má með þessari grein virðast tveir sérsveitar­menn vera vopnaðir skamm­byssum á leið í Krónuna, mögulega til að fá sér næringu.

Birna spyr á síðunni: „Veit einhver hvar ég finn „memóið“ um að það sé orðið normal að tvær löggur skreppi saman í Krónuna vopnaðar skamm­byssum?“

Gerður er ekki sátt við það sem virðist vera vopnuð sérsveit um hábjartan dag röltandi í rólegheitum í átt að Krónunni: „Okkur er ekki fyrir­munað að halda sönsum og hugsa og haga okkur eins og siðað fólk; vopn eiga ekkert heima á almanna­færi,“ segir Gerður og bætir við: „Við viljum vera vopnlaust land og það er algjör­lega út fyrir öll mörk að láta fólk venjast við að hafa þau sem sjálfsagðan hlut. Ég var fullviss um að þetta myndi þróast í þessa átt þegar lögreglan var klædd í árásar­gallann og breyttist í ógn í stað verndar þegar Ómar Ragnarsson var handtekin í Gálga­hrauninu af „búninga­vörðum sendi­boðum“ lögreglunnar – ekki vörðum laganna, því Ómar var að verja svæðið samkvæmt verndar­lögum. Að taka Ómar fastan var eins og að taka Vigdísi Finnboga­dóttur fasta. Skömm sé okkur að leyfa heilbrigðri skynsemi ekki þátttöku í daglegu lífi. „Við Íslendingar viljum ekki vopnað fólk á vappi, nema nauðsyn sé. Og það er í mínum huga ákveðin samfélags­sáttmáli um það, því vill ég sem borgari þessa lands ekki breyta.“

Elsa leggur orð í belg og segir að „það sem er svo hræðilegt er að við erum að „normalisera“ þetta. Þökkum fyrir að þetta er enn ekki komið lengra, þannig að hægt er að setja bremsurnar á, núna.“

Heiða er heldur ekki ánægð og bendir á „að lögreglan er með sérstök box í bílnum þar sem þeir geta geymt vopnin. Við eigum ekkert að þurfa að venjast því að sjá vopnaða lögreglu­menn í almanna­rýminu. Algjör óþarfi.“

Nú er það ykkar að meta, kæru lesendur, hvort þarna séu sérsveitar­mennirnir tveir á myndinni vopnaðir skamm­byssum eður ei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“