Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þegar mér var „spoon-nauðgað“

Ég hef orðið „nauðgað“ alls ekki í flimtingum, síður en svo enda um skelfilegt samfélags­mein að ræða. Sjálfum hefur mér ekki verið nauðgað, ekki í klassískri skilgreiningu orðsins sem er eftir­farandi: „Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun.“ En ég hef lent í afar óþægilegu atviki sem situr enn í mér þótt ég leggi þetta alls ekki á jöfnu við eiginlega nauðgun.

Ég kynntist fyrir þó nokkrum árum finnskri konu á stefnumóta­appi og addaði henni fljótlega á Messenger. Spjallið fjaraði fljótlega út, en nokkrum árum síðar sendi hún mér skilaboð og sagðist vera komin aftur til Íslands, í heimsókn eftir að hafa flutt aftur heim til Finnlands. Ég viðurkenni að ég mundi varla eftir henni, enda nokkuð langt um liðið og við höfðum aldrei hist og því hefur minn minnis­lausi heili ekki vistað hana sérstak­lega í götóttu minninu. Við ákváðum að hittast og fara í bíó. Ég gerði henni þó grein fyrir því að ég hefði engan áhuga á neinu alvarlegu, ég væri enn að jafna mig eftir lang­tímasamband mitt við barns­móður mína og væri ekki tilbúinn í eitthvað meira en það sem á ensku kallast „casual dating“ sem felst í því að fara á jafnvel nokkur stefnumót sem gætu endað með kynlífi en ekkert meira en það. Hún sagðist átta sig á því.

Eftir bíóið bauð ég henni heim sem hún þáði með þökkum. Ég endurtók þá að ég vildi samt ekkert meira en bara kynlíf, sem hún sagðist skilja. Við komum heim og byrjuðum að kyssast í sófanum og ég verð að segja að munnar okkar smell­pössuðu saman. Ég fann mig knúinn til þess að segja enn og aftur að ég vildi bara kynlíf, ekkert samband því ég vildi alls ekki særa neinn með því að gefa falskar vonir um ástar­samband. Hún hélt bara áfram að kyssa mig. Hún spurði hvort við ættum að færa okkur upp í rúm. Ég var mjög til í það, en sagði að ég myndi svo skutla henni heim, því ég gæti ekki sofið með konu enn þá, væri of tilfinninga­lega skaddaður eftir sambands­slit við ástina í lífi mínu. Þar fyrir utan þyrfti ég að mæta til vinnu klukkan átta næsta morgun. Hún sagði að það væri bara í fínu lagi.

Við lögðumst í rúmið og nutum þar frábærs kynlífs í um tvær klukku­stundir og vorum bæði sátt að leik loknum. Eftir stutta hvíld stóð ég svo upp og byrjaði að klæða mig í fötin og gera mig tilbúin að skutla dömunni heim. Hún hins vegar lá sem fastast í rúminu og bað mig að koma að kúra, sem er að sjálfsögðu hinn eðlilegasti hluti en fyrir sambands­slitin og í dag, elska ég að kúra eftir kynlíf, en á þessum tíma­punkti var ég það heftur á tilfinninga­sviðinu að ég gat ekki hugsað mér það. Ég spurði hana hvort hún væri nokkuð búin að gleyma því að ég ætlaði að skutla henni heim. Hún svaraði: „Æ, má ég ekki bara gista? Þú getur svo skutlað mér að einhverju strætóskýli í fyrra­málið svo þú náir að koma í vinnuna á réttum tíma.“ Ég reyndi að malda í móinn en lét svo að lokum undan enda var hún afar áfjáð um að gista. Ég ítreka þó að ég verði að fá að láta hana út á strætóskýli á leiðinni í vinnuna, sem hún samþykkir, enda hafði hún átt þá hugmynd.

Ég lagðist aftur upp í rúm og sneri mér frá henni enda vildi ég á þessum tíma­punkti bara fara að sofa. Hún hins vegar spurði hvort við ættum ekki að spúna (kúra í faðmlögum), en ég sagðist ekki vera til í það, mér þætti það mjög óþægilegt. Hún nauðaði í mér og færði sig alltaf nær og nær. Ég samþykkti það aldrei, en að lokum var hún búin að taka þétt utan um mig og ég fann kaldann andar­drátt hennar á beru baki mínu. Ég var á þessu augna­bliki kominn alveg á brún rúmsins og leið hreint út sagt hörmulega. Ég svaf lítið þessa nótt enda sleppti hún ekki takinu af mér.

Daginn eftir dreif ég mig í fötin og kom okkur í bílinn. Þegar ég ætlaði svo að stöðva bílinn við stætóstoppistöð sem var í leiðinni í vinnuna, sem ég var að verða of seinn í. Nei, þá var það allt í einu ekki í lagi fyrir hina finnsku konu, sem spurði hálf­pirruð hvort ég gæti nú ekki keyrt henni nær heimilinu sem hún dvaldi á. Ég gerði það vel pirraður og kom svo að minnsta kosti fimm mínútum of seint í vinnuna fyrir vikið. Sú finnska fór svo frá landinu nokkrum dögum seinna.

Næstu mánuði tók við einhvers konar vísir að eltihrella­hegðun hjá þessari nýju vinkonu minni. Hún fór að senda mér á hverjum degi ljós­myndir og teikningar af hjörtum eða ljóðum um ástina. Ég svaraði henni nokkrum sinnum þar sem ég ítrekaði að þessi kynni okkar væru ekkert annað en skyndi­kynni, eins og ég hefði alltaf sagt, en hún svaraði alltaf á mjög torskilinn máta, oft með hálf­óskiljanlegum ljóðum um ástina eða setningum um að hún skildi það en … og svo eitthvað sem gaf hálf­partinn í skyn að við ættum samt svo vel saman og ættum að vera par. Þetta gekk í einhverja mánuði og olli mér alltaf jafn mikilli kvíða­tilfinningu og minnti mig á þessa hræðilegu nótt þegar hún „spoon-nauðgaði“ mér. Ég hætti að lokum alveg að svara henni og smám saman hætti þetta. Flestir hefðu sennilega blokkað hana, en ég er svo meðvirkur að ég kunni ekki við það, vildi ekki særa hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim