Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Spyr hvenær Palestínumenn megi verja sig: „Ísrael er í stórsókn“

Sprengjuregn – myndin tengist fréttinni ekki beint
Sprengjuregn – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Yousef Tamimi skrifar áhuga­verðan pistil um stöðu mála í Palestínu.

Átökin í Ísrael og Palestínu hafa ekki stoppað síðan á laugar­daginn og óhætt er að segja að fólk sé með mismun­andi skoðanir á málinu enda er það gífurlega flókið í hugum sumra. Yousef Tamimi skrifaði um ástandið pistil fyrr í dag.

„Síðastliðnu sólar­hringa hafa borist fréttir af auknum átökum í Ísrael og Palestínu. Frétta­miðlar færa fregnir af fordæma­lausri árás þar sem Hamas samtökin hafa náð að valda miklum skaða og mannfalli á meðal Ísraela. Ísrael var ekki undirbúið að Palestínu­menn myndu snúa vörn í sókn.

Hvert mannslíf sem tapast er harm­leikur, bæði fyrir Ísraela og Palestínubúa. Því hefur þó verið haldið fram að Ísrael eigi rétt á að verja sig, en hvenær hætta aðgerðir Ísraela að vera vörn og umbreytast í sókn? Hvenær mega Palestínu­menn verja sig?,“ spyr Yousef í pistlinum sem birtist á Vísi.

„Langflestir þeirra sem eru drepnir eru óbreyttir borgarar. Ísrael hefur einnig í haldi fleiri en 5 þúsund Palestínu­menn í fangelsum, en þar af eru 1.100 í svokallaðari „Administrative Detention“ sem þýðir einfald­lega varðhald án ákæru og dóms og getur varið óendanlega.

Hvert einasta dauðsfall er sorglegt en það breytir ekki þeirri staðreynd að árið 2023, fyrir þessa árás, voru 8 Palestínumen drepnir á móti hverjum Ísraela. Og frá 2008 eru tölurnar enn meira sláandi þar sem á móti hverjum Ísraels­manni voru 21 Palestínu­maður drepinn. Allar hugmyndir um rétt Ísrael til að verja sig verða að vera skoðaðar með gagnrýnum augum og tölurnar segja allt sem segja þarf. Ísrael er ekki að verja sig, Ísrael er í stórsókn gegn Palestínu,“ og Yousef gagnrýndi í pistlinum hana Þórdísi Kolbrúnu, utan­ríkis­ráðherra, fyrir viðbrögð hennar. 

„Í skýrslu Amnesty International frá 2022 kemur fram að draga verði ísraelsk yfirvöld til ábyrgðar á aðskilnaðar­stefnu þeirra gegn palestínsku fólki. Skýrslan lýsir einnig þeirri kerfis­bundinni kúgun og yfirráðum Ísraels­ríkis yfir palestínsku fólkinu og hvernig þessi stjórnun hefur áhrif á réttindi þess, hvort sem það er palestínskt fólk sem býr í Ísrael, á hernumdu svæðum Palestínu eða palestínskt flótta­fólk í öðrum löndum

Heimurinn verður að átta sig á því að til þess að leysa þessa deilu verðum við að setja þrýsting á Ísrael að hætta hernámi og arðráni á palestínsku landi. Hætta daglegum árásum á Palestínu­menn og draga Ísrael til ábyrgðar á aðskilnaðar­stefnunni,“ sagði Yousef að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku