Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Verkfallsboðun samþykkt hjá starfsfólki Íslandshótela: „Hefst vinnustöðvun að óbreyttu 7. febrúar“

Samninganefnd Eflingar fagnar.
Samn­inga­nefnd Eflingar fagnar.

Starfs­fólk Íslands­hótela hefur samþykkt boðun um verkfalls­aðgerðir, en rafræn atkvæða­greiðsla sem hófst um hádegið síðastliðinn þriðjudag var að ljúka nú fyrir örskammri stundu síðan.

Hafi samningar ekki náðst fyrir þá mun verkfall hefjast í næstu viku.

Í frétta­tilkynningu sem Efling sendi frá sér rétt áðan kemur fram að nefndin fagni hugrekki verka­fólks á Íslands­hótelum; samþykki næstu lotu verkfalls­boðana:

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

„Eflingar­félagar hjá Íslands­hótelum hafa með afgerandi meirihluta samþykkt ótíma­bundna vinnu­stöðvun á öllum hótelum keðjunnar í Reykjavík. Var boðunin samþykkt með 124 atkvæðum gegn 58 mótatkvæðum og 7 sem óskuðu að taka ekki afstöðu.

Af þeim sem greiddu atkvæði voru því 65 prósent sem samþykktu boðunina. Samtals kusu 189 af þeim 287 sem voru á kjörskrá og var kjörsókn því 66 prósent prósent sem er mun meira en sést hefur í verkfalls­kosningum félagsins á síðustu árum.

Hefst vinnu­stöðvun að óbreyttu þriðjudaginn 7. febrúar.

Stjórn­endur Íslands­hótela beittu starfs­fólk miklum þrýstingi og ólögmætum hótunum um tekju­missi tækju þau afstöðu með verkfalli. Er það skýrt brot á ákvæðum laga um stéttar­félög og vinnu­deilur. Var allt starfs­fólk skikkað á sérstaka fundi þar sem stjórn­endur ræddu um kjara­deilu Eflingar við SA á villandi og einhliða hátt, og komu hótunum sínum í þá veru óspart á framfæri.

Bárust félaginu margar kvartanir frá félags­fólki vegna þessa.

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari.

Ríkis­sátta­semjari samþykkti sérstaka miðlunar­tillögu sem tímasett var til að koma í veg fyrir að félags­fólk Eflingar hjá Íslands­hótelum fengi að nýta sér rétt sinn til verkfalls.

Hann endurtók jafnframt hótanir atvinnu­rekenda um tekju­missi.

Guð­mundur Ingi og Katrín Jak­obs­dóttir.

Tveir ráðherrar Vinstri grænna í ríkis­stjórn, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnu­markaðs­ráðherra og Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, vissu af miðlunar­tillögu ríkis­sátta­semjara áður en hún var kynnt samninga­nefnd Eflingar.

Ráðherrarnir stigu fram opinber­lega til stuðnings við miðlunar­tillöguna þrátt fyrir háværa gagnrýni allra heildar­samtaka launa­fólks á hana.“

Kemur fram að verkfalls­boðunin tekur til starfs­stöðva Íslands­hótela á félags­svæði Eflingar, en þar um að ræða félags­fólk sem sinnir þrifum á herbergjum sem og í sameiginlegum rýmum, við fram­reiðslu veitinga, störfum í eldhúsi, þvotti og fleira.

Hótel Íslands­hótela á höfuð­borgar­svæðinu eru nokkur; Hótel Saga í Lækjar­götu, Grand Hótel við Kringlu­mýrar­brautina, Hótel Centrum, Fosshótel við Þórunnartún, einnig Fosshótel við Baróns­stíg og við Lind við Rauðarár­stíg; líka hótel Rauðará.

Ljóst er því að mikil harka er að færast í kjara­deilur Eflingar, sem virðist ekki ætla að gefa tommu eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim