Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hrottaleg nauðgun á sambýliskonu: „Grunnurinn að glæpaferli hans var lagður á upptökuheimilinu“

Þegar hann var þrettán ára skildu foreldrar hans. Fram að honum hafi hann sem barn átt hamingju­ríka æsku. Í kjölfar skilnaðarins umturnaðist líf Suður­nesja­drengsins. Hann var sendur á upptöku­heimili fyrir vandræða­unglinga þar sem beitt var grimmdarlegri refsistjórnun og hann hafi fengið hrotta­lega meðhöndlun. Drengurinn hafi verið læstur í niðri í kjallara heimilisins eftir að teipað hafi verið fyrir vit hans. Eftir vistina á upptöku­heimilinu hafi tekið við næstum slitlaus fangelsis­vist til 16 ára aldurs.

Vildu vinir og vandamenn meina að þessi dvöl á upptöku­heimilinu hafi markað grunn af glæpa­ferli mannsins, sem síðar var dæmdur fyrir hrotta­lega árás og nauðgun á sambýlis­konu sinni. Í helgar­blaði DV 14. júlí 2001 birtist nafnlaust viðtal við æskuvin nauðgarans:

„Hann var glaðvært barn og ærsla­fullur en það var ekkert illt í honum. Þegar foreldrar hans skildu var eins og hann umpólaðist og hann leiddist út i innbrot og bílþjófnaði,“ segir vinur hans sem ekki vill láta nafns síns getið vegna þess hve viðkvæmt málið er meðal fjöl­skyldu og vina. Hann segist alls ekki vilja mæla verknaði vinar síns bót. Hann verði að axla ábyrgð af þeim hræðilega verknaði sem hann gerðist sekur um þegar hann nauðgaði sambýlis­konu sinni og misþyrmdi. „Hann hefði mín vegna mátt fá lengri fangelsisdóm,“ segir hann. Nauðgarinn, sem var 22 ára þegar atburðurinn átti sér stað, lenti á upptöku­heimili fyrir vandræða­unglinga nokkru eftir skilnað foreldra sinna. Þar segir vinur hans að honum hafi nokkrum sinnum verið refsað með því að teipað hafi verið fyrir munn hans og hann lokaður niðri í kjallara. „Grunnurinn að glæpa­ferli hans var lagður á upptöku­heimilinu. Strax og hann varð 16 ára tók við fangelsis­vist. Fangelsið skemmdi hann enn frekar og gerði hann að þeim manni sem hann nú er,“ segir vinur hans.

Ofbeldisverknaðurinn

Þann 31. ágúst 1999 varð sambýlis­kona mannsins fyrir hrotta­legu líkamlegu ofbeldi. Tæpum tveimur árum eftir atburðinn var gerð helgar­úttekt á málinu í helgar­blaði DV þann 14. Júlí 2001:

Hvað gerðist?

Þann 31. ágúst 1999 nauógaöi og misþyrmdi […] þáverandi sambýlis­konu sinni, 17 ára að aldri. Um klukkan hálf sex aö morgni barst lögreglu boð frá neyöarlínu. Lögreglu­menn lögðu af stað á vettvang og mœttu stúlkunni sem kom fótgangandi á móti þeim. Stúlkunni var ekið á heilsugœslustöð og flutt samdœgurs á slysa­deild Sjúkra­húss Reykja­víkur. Þegar lögregla kom aftur á vettvang var ákœrði sofandi í svefn­herbergi bústaðarins. Samkvœmt lögreglu­skýrslu var blóð á rúmum og veggjum og sýnilegt að mikil átök höfðu átt sér stað. Ákœrði gaf skýrslu samdœgurs og kvaðst lítið muna eftir atburðum nœturinnar en taldi sig þó ekki hafa nauðgað stúlkunni. Skoðun mannsins var önnur 25. apríl 2001 þegar ákœrði var nýkominn til landsins – eftir að hafa farið til Svíþjóðar þar sem hann fór huldu höfði – en þá játaði hann brot sín afdráttar­laust. Þegar hann kom aftur fyrir dóm 16. maí að ósk verjanda hans neitaði hann nauðguninni. Hann neitaði þó ekki að hafa verið valdur að líkams­meiðingunum sem honum voru gefnar að sök. Fram­burður hans var því reikull, ólíkt framburði stúlkunnar sem þótti trúverðugur. Í vitna­skýrslu sem tekin var af fórnar­lambinu kemur fram að maðurinn hafi lamið hana með hnefum og skóm og að hann hafi sparkað í hana um allan líkama. Maðurinn hafi þvingað hana til kynferðis­maka í nokkur skipti. Þegar hún bað um að fá aö fara í sturtu henti maðurinn henni í brennandi heita sturtu og barði hana á meðan. Fram kemur hjá stúlkunni aö ákœrði hafi ekki áður beitt hana ofbeldi og hún gat ekki skýrt hvers vegna hún teldi hann haga sér með þessum hœtti. Eftir atburðinn var manninum veitt lögreglu­áminning vegna hótana í garð fórnar­lambsins og fjöl­skyldu hennar.

Dómurinn

Maðurinn var dæmdur í þriggja ára fangelsi í Hérðasdómi og gert að greiða fórnar­lambi sínu eina milljón krónur í miska­bætur. Hæstiréttur þyngdi hinsvegar dóminn um eitt og hálft ár. Hávær umræða spratt af stað í þjóð­félaginu og þótti mörgum gerandinn sleppa með væga refsingu fyrir jafn þungbæran verknað. En hegningarlög heimila allt að 16 ára fangelsi fyrir að þröngva manni til samræðis.

Árið 2005 lauk gerandinn afplánun og hélt rakleiðis heim til móður sinnar út á land. Því næst fluttist hann búferlum til Danmerkur þar sem hann er, samkvæmt heimildum Mannlífs, enn skráður til heimilis.

Foreldar geranda tjá sig eftir afplánun

Foreldrar mannsins ræddu við DV og fimmtudaginn 9. júní 2005 segir í dagblaðinu:

Foreldrar ósáttir við umfjöllun […] fékk þriggja ára dóm í héraðs­dómi í júlí 2001 og þótti sleppa vel. Hæstiréttur þyngdi hins vegar dóminn um eitt og hálft ár. Faðir […] segir að óvægin fjölmiðlaumföllun hafi haft áhrif á þá ákvörðun Hæstaréttar. „Fjöl­miðlar fóru hamförum í þessu máli,“ segir hann. Móðir […] tekur undir þetta. „Árni Johnsen bjargaði […]. Fjöl­miðlar gátu þá loksins farið að fjalla um eitthvað annað en hann […].“ „Ég held að […] sé hræddur við sjálfan sig,“ sagði móðir […] þegar DV ræddi við hana í gær um ástæður þess að sonur hennar fluttist til Danmerkur. Hún segir hins vegar að hún viti ekki hvað hann geri þar eða hvar hann búi. […] dvaldi hjá móður sinni á Sauðár­króki nú um páskana en hann hafði þá nýlokið afplánun. „Við vorum hérna saman eins og fjöl­skylda og það var gott. Hann ákvað að flytja til Danmerkur því honum var ekki rótt hérna. Hann er bara hræddur við sjálfan sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“