Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Anna íhugar að ferðast til Íslands á kústi til að spara kolefnissporin: „Hvað sem það nú þýðir“

Anna Kristjáns.
Anna Krist­jáns.

Anna Kristjáns íhugar að ferðast til Íslands á kústi, til að spara kolefnis­fótsporin „hvað sem það nú þýðir.“

Í nýjustu dagbókar­færslu sinni frá Tenerife dregur Anna Kristjáns­dóttir þjóðar­leiðtoga, borgar­stjóra og Gísla Martein sundur og saman í háði vegna umræðu um kolefnis­fótspor.

Í færslunni talar hún um komandi leiðtoga­fund Evrópu­ráðsins sem haldinn verður fljótlega í Reykjavík. Eins og þekkt er orðið munur alls um 50 einka­þotur lenda á Reykja­víkur­flugvelli fyrir fundinn. Leggur Anna til að þjóðar­leiðtogar ferðist frekar um á Saga Class Iceland Air.

Þá birtir Anna einnig ljósmynd af sér máta kúst sem hún segist vera að spá í að ferðast á til Íslands, svona til að spara kolefnis­sporin. Færslan er hér að neðan.

„Dagur 1361 – Kolefnis­fótspor.

Þessa dagana snýst öll þjóðfélags­umræða á Íslandi um kolefnis­fótspor hvað sem það nú þýðir og er eitthvað hræðilega vont og þjóðar­leiðtogar Evrópu skilja slíkt eftir sig í miklum mæli hvert sem þeir fara svo ekki sé talað um forseta Banda­ríkjanna sem ferðast um á Boeing 747 og með aðra þotu sem fylgir með allt fylgdar­liðið. Núna er öllu þessu liði að Biden undan­skildum boðið að sýna sig á Íslandi og flestir eða allir koma til Íslands með einka­þotum sem valda gífurlegu kolefnis­fótspori hvað sem það nú þýðir. Þá eru nú Gísli Marteinn og Dagur B. betri af því að þeir ferðast um á reiðhjóli eða fá far með einhverjum sem er á leiðinni á sama stað.En þetta var útúr­snúningur enda vorum við að tala um kolefnis­fótspor. Katrín Jakobs­dóttir má þó eiga það að hún ferðast ekki með einkaþotu heldur kýs að ferðast með almennu áætlunar­flugi, vonandi þó á Saga Class. Reyndar man ég eftir því að hafa ferðast í sama flugi og hún Jóhanna mín Sigurðar­dóttir og hún var aftur í cargórými með almúganum rétt eins og ég í þá daga. Í sama flugi sá ég ónefndan verkalýðs­foringja á Saga Class. Engin nöfn nefnd.Ég skil ekkert í öllum þessum þjóðar­leiðtogum að fljúga ekki frekar á Saga Class hjá Icelandair með topp­þjónustu enda eru falleg bros þjónustu­liðsins og ljúfleg framkoma í flugvélum þess miklu verð­mætari vara út á við en nokkru sinni kaup­réttar­ákvæði stjórn­endanna. Það er sömuleiðis gott að ferðast í cargórýminu, en þá þurfa þeir að greiða fyrir drykkina sína með kredit­kortinu sínu. Það er sko ýmislegt fengið með slíku. Kolefnis­fótsporið minnkar verulega, þjóðar­leið­togarnir selja einka­þoturnar sínar í brotajárn og Icelandair fær svo jákvætt orðspor að tekjur þess stóraukast og ég fer að fá arð af bréfunum mínum í félaginu.—–Nágranna­kona mín hélt til Íslands í gær með áætlunar­flugi reyndar með röngu félagi og ég ók henni á flug­völlinn. Eftir það fór ég að athuga hvernig best væri að ferðast til Íslands án þess að valda kolefnis­fótspori og lausnina fann ég í Leroy Merlin úti í Adeje.

Myndin sýnir mig máta gripinn sem mig langar til að fara á til Íslands. Ég er viss um að Gísli Marteinn, Dagur B., Greta Thunberg, Árni Finnsson og Katrín Jakobs­dóttir mæta með rauða dregilinn þegar ég kem á þennan hátt til landsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt