Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Starfsfólk Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði í áfalli: „Í nokkrar mínútur var ekki sagt eitt orð“

Marianna fyrir miðju.
Marianna fyrir miðju. Mynd: Síldarvinnslan/Ómar

Starfs­fólk bol­fisk­vinnslu Síld­ar­vinnsl­unnar á Seyð­is­firði er í áfalli.

Fram kemur hjá Aust­ur­frétt að trún­að­ar­maður starfs­fólks í bol­fisk­vinnslu Síld­ar­vinnsl­unnar á Seyð­is­firði, segi lokun vinnslunna mikið áfall. Fólkinu líði vel í bænum og von­ist til að finna aðra vinnu þar.

„Fyrst var fundur klukkan ell­efu í morgun. Fram­kvæmda­stjór­inn til­kynnti mér sem trún­að­ar­manni og nokkrum yfir­mönnum ákvörð­un­ina. Klukkan tólf var almennur starfs­manna­fundur. Fyrst eftir að fram­kvæmda­stjór­inn til­kynnti ákvörð­un­ina var algjör þögn. Í nokkrar mín­útur var ekki sagt eitt orð. Síðan byrj­uðu spurn­ing­arnar. Fólk vildi vita um upp­sagn­ar­frest­inn og önnur rétt­indi. Fundinum lauk um klukkan eitt. Fólkið var í áfalli. Okkur bauðst að hætta vinnu og fara heim. Flest okkar þáðu það, ein­hver héldu aðeins áfram til að klára þau verk sem þau voru með í hönd­unum,“ sagði Marianna Weinrauch, trún­að­ar­maður AFLs starfs­greina­fé­lags meðal starfs­fólks í vinnsl­unni, í sam­tali við Aust­ur­frétt í gær.

Þá benti Marianna á að það hafði einnig slæm áhrif á starfs­fólkið að frétta­til­kynn­ing Síld­ar­vinnsl­unnar um lok­un­ina hefði verið send á fjöl­miðla og birst klukkan 11:20 í gær­morgun en það var áður er starfs­manna­fund­ur­inn hófst. „Fólk var búið að sjá þetta á Facebook og fleiri miðlum. Það var ekki gott,“ sagði Marianna.

Vinnslu verður hætt þann 30. nóv­em­ber sam­kvæmt til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar en ástæðan er sögð sú að upp­færa þurfi tækja­kost vinnsl­unnar tölu­vert í takt við breyt­ingar á fisk­mörk­uðum en það kosti pen­inga sem svo lítil ein­ing standi ekki undir.

Alls munu þrjá­tíu manns missa vinn­una vegna lok­un­ar­innar en flestum þeirra stendur til boða að starfa hjá öðrum ein­ingum Síld­ar­vinnsl­unnar á Norð­firði og í Grinda­vík, auk nokk­urra starfa sem eru laus við fiski­mjöl­verk­smiðj­una á Seyð­is­firði.

Sagði Marianna að sam­hugur sé í starfs­fólk­inu og að það sé almennt ánægt á Seyð­is­firði „Þetta er til­tölu­lega lít­ill vinnu­staður þar sem við höfum unnið náið saman og þekkj­umst vel. Sumt starfs­fólkið hefur unnið þarna lengi og var farið að nálg­ast eft­ir­launa­ald­ur­inn. Fyrir margt af því fólki er þetta mikið áfall. Við erum eins og fjöl­skylda. Við höfum ferð­ast saman og hist utan vinnu.“ Sjálf er Marianna fædd í Ung­verja­landi en lítur á Prag í Tékk­landi sem heima­borg sína, sem og Seyð­is­fjörð en þangað kom hún í febr­úar 2015. „Mér finnst þetta mjög slæm tíð­indi. Ég elska Ísland og Seyð­is­fjörð. Ég hef stundum íhugað að fara aftur til Prag en aldrei látið verða af því. Mig langar að vera áfram hér því ég elska fólkið og sam­fé­lagið hérna. Ég hef eign­ast marga vini hér, unga sem aldna. Ég veit að mörg okkar eiga ekki auð­velt með að umturna lífi sínu, til dæmis for­eldra með börn sín í skól­anum. Mér finnst ég heyra á fólk­inu að það vilji vera hér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp