Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Eva um mál Skúla: „Óháður sérfræðingur telur að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð“

Eva Hauksdóttir.
Eva Hauks­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Lögmaðurinn Eva Hauks­dóttir skrifar grein er ber yfir­skriftina: Meint þagnar­skylda um lífs­loka­með­ferð.

„Skúli Tómas Gunnlaugsson, læknir sem grunaður er um stórfelld brot í starfi, virðist eiga í nokkuð sérstöku sambandi við veru­leikann. Hann er m.a. grunaður um að hafa sett sjúklinga á lífsloka­meðferð án tilefnis en það eru bara alvarlegustu brotin.

Þar til í síðustu viku hafði ekkert heyrst um afstöðu Skúla síðan í desember 2021 þegar fjöl­miðlar greindu frá því að hann teldi kærumál gegn sér byggð á misskilningi.

Nú hefur lögreglan lokið rannsókn og misskilningurinn er ekki stærri en svo að málinu hefur verið vísað til ákæru­sviðs.“

Eva bætir við:

Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur stöðu grun­aðs í mál­inu.

„Skúli Tómas hefur nú rofið þögnina, segist borinn röngum sökum, gefur til kynna að mats­gerðir dómkvaddra matsmanna sanni sakleysi sitt, og kvartar undan einhliða umfjöllun fjölmiðla. Ég hef aðeins séð mats­gerðir sem varða mál móður minnar. Þær eru í fullu samræmi við mat annarra sérfræðinga.“

Eva nefnir að „samkvæmt matsgerð sem varðar hjúkrun var reglum fylgt við umönnun en samkvæmt matsgerð sem varðar læknis­fræðilega meðferð, sem Skúli bar ábyrgð á, sætti móðir mín lífsloka­meðferð sem ekki voru forsendur fyrir. Staðan er einfald­lega sú að; óháður sérfræðingur sem vann álitsgerð fyrir embætti land­læknis telur að ekki hafi verið forsendur fyrir lífsloka­meðferð, sérfræðingar embættis land­læknis telja að ekki hafi verið forsendur fyrir lífsloka­meðferð, dómkvaddir matsmenn hafa í tvígang komist að þeirri niður­stöðu að ekki hafi verið forsendur fyrir lífsloka­meðferð.“

Hún segir einnig að „þá er undarleg sú stað­hæfing Skúla að sjúklingar hans hafi látist af náttúru­legum orsökum því eðli máls samkvæmt deyr fólk af náttúru­legum orsökum ef það er sett á lífsloka­meðferð. Þess vegna á ekki að beita lífsloka­meðferð fyrr en sjúklingurinn er sannarlega deyjandi.

Réttar­gæslumaður móður minnar hefur greint nánar frá efni matgerðinnar sem Skúli telur sér svo hagstæða.

Það er rétt hjá Skúla að umfjöllun fjölmiðla hefur verið einhliða, enda lítið hægt um hans hlið að segja þegar hann neitar að ræða hana. Skúli ber fyrir sig þagnar­skyldu, sem hann heldur fram að geri sér ómögulegt að tjá sig um málið. Það er fyrir­sláttur. Þagnar­skyldan varðar sjúklinga – ekki verklag á heilbrigðis­stofnunum. Skúli getur ekki rætt sjúkdóma eða önnur persónuleg mál sjúklinga en málið snýst ekki um heilsufar þeirra sem hann er talinn hafa brotið gegn, heldur um það hvernig staðið var að meðferð þeirra.

Skúli getur að sjálfsögðu lýst því hvernig almennt var staðið að lífsloka­meðferð undir hans stjórn á HSS. Hann getur útskýrt hvernig ákvörðun um lífsloka­meðferð var tekin, hvaða forsendur lágu ákvörðun til grund­vallar, hvernig skráningu var háttað, hvort samráð var haft við annað starfs­fólk og hvernig brugðist var við ef annað starfs­fólk en ábyrgur læknir taldi eitthvað athuga­vert. Hann getur líka sagt frá því hvenær og hvernig það mat læknis að sjúklingur væri deyjandi var kynnt aðstand­endum og þeim sjúklingum sem voru með meðvitund. Hann getur lýst því hvernig samþykkis var aflað frá sjúklingi og/eða aðstand­endum og hvernig hann brást við þegar aðstand­endur töldu slíka meðferð ótímabæra eða vildu að ákvörðun yrði endur­skoðuð.

Hann getur sagt frá þeim áhrifum sem það hafði á framvindu meðferðar þegar sjúklingi fór fram þrátt fyrir meðferð sem felur ekki í sér lækninga­tilraunir og er eingöngu ætlað að lina þjáningar manneskju sem sannarlega er deyjandi.“

Eva segir að „Skúli getur líka útskýrt af hverju svo margir voru óánægðir með störf hans að lögregla hefur nú lokið rannsókn ellefu mála þar sem hann bar ábyrgð á meðferð sjúklinga. Þar af eru sex mál þar sem grunur er uppi um ótímabæra lífsloka­meðferð.

Ef málið snýst ekki um meðferð sjúklinganna, um hvað snýst það þá?

Allt þetta getur Skúli tjáð sig um opinber­lega án þess að brjóta trúnað við nokkurn mann. Heiðarleg svör yrðu mjög upplýsandi fyrir almenning. Nú þegar Skúli er loks tilbúinn að tjá sig væri upplagt að blaðamenn gengju eftir svörum um þessi atriði. Vonandi veitir Skúli viðtal og vonandi verður hann þá kominn í betra samband við raun­veruleikann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim