Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Git Skoglund: Íslendingar klæddust hampfötum á miðöldum

Vefnaðar­leifar sem varð­veittar eru á Þjóð­minjasafni Íslands og hafa til þessa dags taldar vera úr hör reyndust vera úr hampi. Þykir þessi uppgötvun renna stoðum undir þá tilgátu að auk hör hafi hampur verið ræktaður hér á landi allt frá landnámi og fram á 19. öld. Þetta kemur fram í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­félagsins, þar sem rætt er við sænsku fræði­konuna Git Skoglund sem gerði umrædda uppgötvun. Git hefur þrívegis komið til landsins vegna fræði­starfa sinna og í sumar tók hún jarðvegs­sýni sem rannsökuð verða í háskólanum í Helsinki í Finnlandi.

Git Skoglund er menntuð í þjóðfræði og textíl. Hún segir frá því í viðtalinu að snemma á tíunda áratug síðustu aldar hafi hún í textíl­námi sínu kynnst hampi sem hafi vakið áhuga hennar. „Það er svolítið skrítið með hampinn því þarna er þetta frábæra textíl­efni sem leynist í forboðinni plöntu,“ segir Git sem gaf út bók fyrir fáeinum árum sem nefnist Cannabis Textiles: In Hemp Garden Cultures. Í bókinni skrifar Git um áralangar rann­sóknir sínar á hamprækt í Evrópu og Asíu en meðal þess sem hún hefur gert er að sækja heim þjóð­minjasöfn hinna ýmsu landa og taka sýni úr vefnaðar­leifum sem þar finnast. Og það gerði hún einnig á Þjóð­minjasafni Íslands.

Git Skoglund.

Git sótti um leyfi til að taka sýni úr vefnaðar­leifum Þjóð­minja­safnsins og segir hún að ósk hennar hafi verið vel tekið. Hún segist hafa fengið ákaflega góðar móttökur frá starfs­fólki safnsins og nefnir Lilju Árna­dóttur safnvörð sérstak­lega sem hafi verið henni innan handar. Starfs­fólkið hafi eins og hún skilið mikilvægi þess að gera umræddar rann­sóknir því að niður­stöðurnar geti verið eins og nýtt púsl í sögu þjóðarinnar, púsl sem enginn vissi að vantaði.

„

Nýverið fundum við þrjú dæmi um vefnað á Þjóð­minja­safninu sem eru úr hampi. […] Þetta var vefnaður frá 17. öld. […] Sagan segir að allur vefnaður á Íslandi hafi verið fluttur inn en ég tel það ekki rétt. Ég held að konur hafi ræktað hamp í görðum sínum eins og þær gerðu víðast hvar annars staðar í Evrópu.

“ 

Næsta skref í rannsókn Git er að taka sýni úr jarðvegi og sýni af trefja­þráðum sem rannsakað verður á næstu mánuðum og árum og reiknar hún ekki með niður­stöðum í bráð.

Nokkrar heimildir eru um hörrækt hér á landi til forna (eins og lesa má um í þessari grein á Vísinda­vefnum) og er talið að land­námsfólk hafi tekið þá ræktunar­menningu með sér til Íslands. „Landnemar Íslands komu frá Noregi og það var mikil hamprækt í Noregi og hafði verið um alla tíð. Fyrstu vísbendingarnar um hamprækt þar eru frá einhverjum hundrað árum eftir krist. Þannig að það er eðlilegt að álykta að land­nemarnir hafi tekið með sér fræ til Íslands og ræktað hamp hér á landi. Margir halda að ekkert sé hægt að rækta á Íslandi en mþað er auðvitað hægt að rækta hamp hér á landi. Þetta var ekki iðnaðar­ræktun á stórum ökrum heldur voru plönturnar ræktaðar í litlum görðum,“ segir Git og bætir við að það vanti mikið magn upplýsinga um þessa þætti í söguna. „Það voru ekki konurnar sem bjuggu til fötin sem skrifuðu söguna. Það voru karlmenn og þeir skrifuðu um eitthvað allt annað.“

Vitundarvakningu þarf um hraðtísku

Git segir að þrátt fyrir að auðvelt sé að rækta hamp þá verði vefnaður úr hampi aldrei ódýr vara. Bæði þurfi að stóla á góða uppskeru og eins sé mikil vinna sem þurfi að gera án vélarafls. Hún segir að framtíð hamps í vefnaði liggi í að blanda honum saman við önnur efni, til dæmis ull, og eins að það verði vitundar­vakning þegar kemur að hinni svokölluðu hraðtísku sem felur í sér að föt eru framleidd af miklum hraða og í miklu magni en ekki til þess að endast sérstak­lega lengi. „Hampur er frábært efni í vefnaði og föt úr hampi endast lengi. Þannig föt eiga að kosta meira. Það er bara eitthvað sem við verðum að skilja og það er eitt af mínum markmiðum með rann­sóknum mínum að hækka virði hampsins. Þetta er mjög verðmæt planta sem nota má á marg­víslegan hátt. Fólk þarf þá að vera tilbúið að borga fyrir textíl sem unnin er úr henni,“ segir Git og varar fólk við vöru­svikum. „Það er búið að hæpa hampinn á síðustu árum og í mörgum tilvikum þegar seld eru hampföt þá eru þau í rauninni úr hör. Ég var á ferðalagi um Asíu í vetur og fór þá í búð sem seldi klæðnað úr hampi. Ég spurði hvort ég mætti taka sýni úr vörum þeirra og þá reyndust það ekki einu sinni lífrænar trefjar heldur gerviefni. Þetta er mjög sorgleg þróun og því miður er mikið um svik þegar kemur að hampinum.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­aranum hér að neðan. Gunnar Dan Wiium, stjórnar­maður í Hamp­félaginu, tók viðtalið við Git Skoglund. Mickael Omar Lakhlifi sá um tæknimál og Andri Karel um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt