Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Brynjar í viðtali hjá Sölva: „Það er galin umræða að fólk megi ekki hafa ólíkar skoðanir“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, sem er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, segist hafa þá reglu að hafa ekki uppi stór orð um fólk á netinu, nema það sjálft sé að gera það við annað fólk:

„Ég stramma mig oft af og segi alls ekki allt sem ég er að hugsa á netinu, þó að það sé ákveðinn hópur sem er mjög ósáttur við mig. Ég kemst líka oft að því að ég hafi farið fram úr mér og þá sé ég að mér og tek skref til baka. Ég get alveg skilið að fólk verði stundum fúlt út í mig, en ég reyni að beina orðum mínum eingöngu að þeim sem hafa sjálfir verið að hjóla í aðra á netinu. Ég myndi aldrei hafa uppi sterk orð um fólk sem hefur ekki sjálft verið mikið að láta til sín taka á netinu. Það kemur fyrir að mér blöskrar svo gjör­samlega ofstopinn í ákveðnu fólki að ég lít svo á að það sé réttlætismál að segja það sem mjög margir eru að hugsa, en fæstir þora að segja. Það sem pirrar mig einna mest er þegar frægt fólk ætlar að slá um sig og fá punkta fyrir dyggða­skreytingar þegar það hefur ekki einu sinni kynnt sér málin. Svo er þetta fólk oft svo svakalega reitt og kallar fólk illvirkja, ómenni og fleira í þeim dúr, bara ef fólk er ósammála. Ég reyni nú yfirleitt að vera með léttan undirtón þegar að ég er að atast í þessu fólki, enda gerir reiði manni ekkert gott.“

Brynjar segist hugsi yfir því hvort umburðar­lyndi sé almennt á undan­haldi miðað við umræður á milli fólks:

„Mér finnst umburðar­lyndi orðið mun minna en það var. Þetta er oft á tíðum orðið þannig að ef þú ert ekki sammála mér, þá ertu óvinur minn. Sú hugsun virðist vera orðin meira ríkjandi, sem kann ekki góðri lukku að stýra. Við verðum að hafa rými til að vera stundum ósammála í frjálsu samfélagi. Ef fólk sest niður og ræðir málin kemst það oft að því að það ber í raun minna á milli en fólk hélt. En ef það er farið beint í þessa hugsun um að þeir sem eru ósammála séu óvinir og vont fólk er erfitt að finna leiðina til baka.“

Brynjar segist einlæglega þeirrar skoðunar að umræða um haturs­orðræðu sé komin á mjög skrýtnar brautir og við verðum að fara að staldra við, enda virðist ákveðinn hópur vilja eigna sér hvað sé haturs­orðræða og hvað ekki:

„Menn eru farnir að víkka hugtakið um haturs­orðræðu svo svakalega að það á nánast að vera refsivert ef allir eru ekki á sömu skoðun og þú. Svo er þetta í raun ákveðinn hópur sem vill eiga þessa umræðu og fá að ákveða hvað er haturs­orðræða og hvað ekki. Oft á tíðum finnst þessu fólki sjálfu alveg sjálfsagt að ráðast á einstaklinga á netinu og spyrja sig aldrei að því hvort það sé haturs­orðræða. En svo þegar fólk er á annarri skoðun en þessi hópur er það allt orðið haturs­orðræða. Þetta er ekki nýtt af nálinni og var gert í gömlu ráðs­stjórnar­ríkjunum. Það að tala gegn stjórn­völdum og meirihlutanum var þá landráð og þá varstu að eyði­leggja samfélagið og þá var notað orðið haturs­orðræða eins og nú. Fyrsta skrefið var útilokun, svo var það fangelsun og svo var það bara Síbería. Allir einræðis­herrar byrja smátt og eru alltaf að berjast fyrir mjög góðum málstað. Saga fasismans er saga af fólki sem í upphafi sagðist vera að berjast fyrir mjög göfugum málstað. En svo verður ofstopinn bara meiri og meiri. Það er galin umræða að fólk megi ekki hafa ólíkar skoðanir. Fólk hlýtur að sjá að sú þróun sem er í gangi er á margan hátt óhugnaleg ef hún fær að halda áfram óbeisluð og enginn stígur niður fæti.“

Þáttinn með Brynjari og alla aðra þætti Sölva má nálgast inni á www:solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim