Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Séra Gunnari bannað að jarðsyngja vinkonu sína í Hveragerði – „Þetta ber keim af hatri biskupsins“

Séra Gunnari Björns­syni, fyrr­verandi sóknar­presti, var bannað að jarð­syngja konu í Hvera­gerði þrátt fyrir eindregna ósk fjöl­skyldu hinnar látnu. Um var að ræða mikla vináttu milli Gunnars lg fjöl­skyldunnar allt frá því hin látna og séra Gunnar bjuggu í Önundar­firði þar sem hann þjónaði um árabil. Gunnar heimsótti konuna í tvígang á sjúkrabeð hennar og aðstoðaði fjöl­skylduna í hvívetna fyrir andlátið.

Guðmundur Jón Sigurðsson, sonur hinnar látnu, segir málið vera allt hið undarlegasta og bera keim af hatri.

Ninna Sif Svav­ars­dóttir bann­aði að séra Gunnar sæi um útför­ina.

„Við óskuðum eftir því við sóknar­prestinn að jarð­sungið yrði frá Hvera­gerðis­kirkju. Presturinn, Ninna Sif Svavars­dóttir, bannaði að Gunnar sæi um athöfnina og sagðist hafa þau fyrirmæli frá Þjóð­kirkjunni. Þetta ber keim af hatri biskupsins,“ segir Guðmundur. Hann er með sms frá prestinum sem stað­festir höfnunina. Guðmundur sendi í fram­haldinu erindi á Agnesi Sigurðar­dóttur, biskup Íslands, með ósk um að Gunnar fengi að jarð­syngja hina látnu.

Hann hefur sinnt for­eldrum mínum í veik­indum móður minnar

„Heil og sæl frú Agnes. Freista þess að leita ásjár hjá þér í smá vandræðum. Móðir mín lést í vikunni sem leið og við fjöl­skyldan ræddum við hina öldnu kempu, séra Gunnar Björnsson, um að syngja yfir henni. Hann tók því vel. Systir mín gekk í að fá inni í kirkjunni í Hvera­gerði komandi mánudag og var í sambandi við prestinn í Hvera­gerðis­kirkju.

Guð­mundur Jón Sig­urðs­son.

Það komu smáskilaboð frá séra Ninnu Sif um að Gunnar væri ekki leyfður í kirkjunni, það væri ákvörðun Þjóð­kirkjunnar. Nú þykist ég vita að um einhvern misskilning sé að ræða sem auðvelt ætti að vera að greiða úr. Því leita ég liðsinnis hjá þér með þetta mál. Gunnar varð vinur okkar fjöl­skyldunnar þegar við öll bjuggum vestur í Önundar­firði. Hann hefur sinnt foreldrum mínum í veikindum móður minnar nú í sumar, auk þess sem samband hefur verið eftir þau settust öll að á Suður­landinu,“ segir í bréfi Guðmundar til biskups 29 ágúst sl.

Ekkert svar barst frá biskupi, Brynja Dögg Guðmunds­dóttir Briem, yfirmaður fasteigna­sviðs Þjóð­kirkjunnar, svaraði erindinu níu dögum síðar og tveimur dögum eftir að jarðar­förinni lauk.

„Ég bið þig innilega að afsaka hve seint ég svara erindi þínu og votta þér samúð mína. Því miður er séra Gunnar ekki lengur í þjónustu svo ekki er hægt að verða við beiðni þinni. Ég vona að þið finnið annan prest í presta­kallinu sem reynist ykkur vel,“ skrifaði Brynja Dögg.

Fjöl­skyldan sá sitt óvænna og fékk annan prest til að jarð­syngja hina látnu. Séra Önundur S. Björnsson, prestur á eftir­launum sem einnig er úr Önundar­firði, tók að sér verkefnið.

Engin skýring fæst á því af hverju biskup ákvað að úthýsa Gunnari sem er með hreinan skjöld. Hann var sýknaður á sínum tíma bæði í undir­rétti og Hæstarétti af ásökunum um að hafa misboðið ungum stúlkum. Guðmundur segir að þrátt fyrir bannfæringu biskupsins hafi fjöl­skyldan fundið Gunnari hlutverk í athöfninni. Hann er selló­leikari í fremstu röð og tók að sér að spila við útförina. Hann uppskar mikið lof kirkju­gesta fyrir tóna sem þóttu vera himneskir.

„Hann spilaði þannig að móðir mín og almættið máttu vel við una,“ segir Guðmundur Jón.

Fjöl­skyldan bíður þess nú að fá skýringar á framkomu biskups í garð prestsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim