Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Okrið í Leifsstöð komið út fyrir allan þjófabálk: „Þetta er svívirða“

Sigmundur Ernir Rúnarsson
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri Frétta­blaðsins, virðist hafa fengið sig full­saddan af verð­laginu í Leiðsstöð. Í leiðara blaðsins í dag bölvar hann okrinu í Fríhöfninni í sand og ösku. Hann segir það bæta gráu ofan á svart að okur­kaup­maðurinn sé íslenska ríkið.

„Það er eftir öðru á Ís­landi að sjálft ríkis­valdið fari á undan með vondu for­dæmi og okri svo á lands­mönnum í opin­berum verslunum að líkja verður við argasta arð­rán.Í fréttum blaðsins á síðustu dögum hefur verið fjallað um gegndar­lausa á­lagningu Frí­hafnarinnar í Leifs­stöð á nokkrum al­gengum tegundum sem fást jöfnum höndum á Kefla­víkur­flug­velli og í lág­vöru­verðs­verslunum á höfuð­borgar­svæðinu og leiðir ný­leg verð­könnun í ljós að ríkis­verslunin leggur í öllum til­vikum meira á vörur sínar, enda þótt hún þurfi ekki að standa skil á 24,5 prósenta virðis­auka­skatti sem einka­reknar verslanir fá ekki um­flúið,“ segir Sigmundur.

„Þetta er sví­virða. Og heitir ekki annað en skatt­svik. Ríkið stelur niður­fellingu á­laganna af al­menningi og stingur í eigin vasa. Og sama al­þýða manna gengur í góðri trú inn í þessa ein­okunar­verslun yfir­valdsins og telur sig geta gert þar betri kaup en í bænum, enda búðin merkt á kant og kima með þeim hætti, en hefði betur verslað heima hjá þeim sem borga þó skattinn sinn.“

Sigmundur segir þessa álagningu óverjanlega. „Auð­vitað er það rétt hjá for­manni Neyt­enda­sam­takanna sem sagði í frétta­flutningi af málinu að þessi gífur­lega á­lagning af hálfu hins opin­bera væri al­ger­lega út úr korti. Og er nema von að maðurinn segi það. Dæmi eru um vin­sælar sæl­gætis­vörur sem eru fimm­tíu prósentum dýrari í Leifs­stöð en í Bónus, Krónunni eða Costco í bænum. Á­lagningin er því í rauninni jafnt yfir­gengi­leg og hún er ó­fyrir­leitin. Og enn ein gildran sem neyt­endur á Ís­landi þurfa að gæta sín á að falla ekki ofan í, eins og for­maður Neyt­enda­sam­takanna benti enn fremur á í um­ræddri frétt,“ segir Sigmundur.

Íslendingar verði að hætta meðvirkni með þessu okri. „Verð­lag á Ís­landi er hátt. Það er ó­hemju­hátt miðað við það sem gengur og gerist víða í Evrópu. Munar þar miklu um veikan gjald­miðil sem fæst ekki að láni nema á breyti­legum vöxtum sem engir þekkja til nema Ís­lendingar. Og háa verð­lagið verður væntan­lega líka rakið til skorts á sam­keppni á­samt lang­varandi með­virkni lands­manna í þá veru að það sé bara allt í lagi að bíta á jaxlinn í þessum efnum.

En ríkið á ekki að kynda þetta bál. Það á ekki að kynda nokkurt bál til að belgja verðið út. En ríkið gerir það samt. Og ekki bara í Leifs­stöð eins og dæmin sanna, heldur í lát­lausri launa­þenslu og upp­kaupum á sér­fræðingum hjá einka­fyrir­tækjum – á meðan það biður aðra um hóf­semd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“