Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ebba Guðný hendir ekki mat: „Þetta er nánast eins og íþrótt hjá mér“

Neytandi vikunnar, Ebba Guðný, er gift tveggja barna móðir í Reykjavík. Hún er fædd í Stykkis­hólmi en flyst þaðan barnung og er alin upp í Hóla­hverfi í Breið­holti til 11 ára aldurs og fer svo 12 ára yfir í Selja­hverfið. Á báðum stöðum fannst henni gott að búa og á afar góðar minningar úr Breið­holtinu. Eyddi líka heil­miklum tíma í Neðra Breið­holtinu hjá vinkonu sinni, þar var líka allt fullt af krökkum, mjög skemmtilegt. Ebba Guðný er kennari að mennt en hef unnið hin ýmsu störf. Hún heldur bæði námskeið og fyrir­lestra um næringu og heilsu barna sem og almennt fyrir alla fjöl­skylduna. Ebba Guðný hefur verið með vef- og seinna sjónvarps­þætti þar sem áherslan var á hollan og einfaldan mat (Eldað með Ebbu). Gefið út bækur (Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?, Eldað með Ebbu í Latabæ og Eldað með Ebbu 1 og 2). Leikið, lesið fyrir StoryTel, svo eitthvað sé nefnt.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég nota alltaf tvisvar sinnum í viku linsu­baunir í staðinn fyrir kjöt eða fisk. Það er mjög ódýr, prótein­ríkur og bragð­góður matur sem auðvelt er að gera góðar súpur úr og pottrétti. Í bókunum mínum eru margar uppskriftir þar sem ég nota linsu­baunir.Ég fer líka vel með það sem ég kaupi. Ég hef alla tíð unnið minna en maðurinn minn og hef þess vegna haft tíma og ráðrúm til að nýta vel það sem keypt er.  Ég hendi ekki mat nema í einhverjum neyðar­tilvikum. Þetta er nánast eins og íþrótt hjá mér og ég er farin að halda námskeið í fyrir­tækjum um hvernig sporna má við því að henda mat. Einföld ráð þó þau séu kannski ekki alltaf svo augljós. Sérstak­lega ekki þegar fólk hefur mikið á sinni könnu. Svo reyni ég að kaupa mat á tilboði er ég get og ég les innihalds­lýsingar og sneiði að mestu hjá því sem mér líkar ekki. Það einfaldar innkaupin mikið.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég reyni að endurnýta eins og ég get. Ég flokka ruslið okkar samvisku­samlega. Það kemst fljótt upp í vana. Ég reyni líka almennt að fara vel með það sem ég kaupi. Fara vel með föt, húsgögn og aðra muni, matinn sem keyptur er, afganga og svo framvegis. Þar er mikill sparnaður, fyrir mig persónu­lega og heiminn vonandi líka.

Hvað hefurðu í huga er þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Jafnvægi er eitthvað sem ég reyni temja mér. Áherslan á reyni. Ég held ég sé almennt ekki að kaupa of mikið af neinu sérstöku. En auðvitað er erfitt að draga úr kaupum á mat. Allir þurfa að borða. En ég hef aldrei keypt mér mikið af fötum held ég og þess háttar. Ég vil helst bara kaupa föt úr náttúru­legum efnum. Ég er mjög mikið í ull t.d. næst mér. Sérstak­lega á veturna. Þvæ fötin mín varlega á 40°C og sný öllu á rönguna áður en ég þvæ fötin og hreinsa bletti úr þeim áður en ég set þau í vélina. Nota lítið af þvotta­efnum og hef þau umhverfisvæn. Síðastliðin 25 ár kaupi ég svo nær eingöngu krem og snyrti­vörur sem eru mannvæn og án skaðlegra efna og þá kaupir maður minna ósjálfrátt. Kannski örlítið frelsandi. Varðandi gjafir þá finnst mér oft einfaldast að kaupa gjafir sem fólk ýmist ber á sig eða borðar.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverfis­vernd skiptir mig máli já. Ég reyni að gera mitt besta miðað við þær aðstæður sem ég er í hverju sinni. Og svo reyni ég að hafa ekki áhyggjur þar á milli.

ReplyForward
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim