Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Mannskæðasta slys íslenskrar flugsögu: „Ljósin hurfu andartak, en svo fór um mig angistarhrollur“

Leifur Eiríksson, DC-8-þota Flugleiða, fórst í aðflugi við Katunayake-flugvöll í Kólombó, á Srí Lanka árið 1978.

Hér er um er að ræða mann­skæðasta flugslys gjörvallrar, íslenskrar flugsögu; 183 fórust, þar af átta Íslendingar er voru starfs­menn Flugleiða.

Vélin var á leið frá Sádi-Arabíu með pílagríma frá Indónesíu á leið til síns heima. Milli­lenda átti í Kólombó þar sem aukaáhöfn og starfs­menn áttu að verða eftir.

Í ömurlegu veðri og verulega slæmu skyggni brotlenti vélin á kókoshnetu­plantekru rétt fyrir miðnætti; tveimur kíló­metrum frá enda flug­brautarinnar.

Sögðust nokkrir sjónar­vottar hafa heyrt öfluga sprengingu um leið og vélin rifnaði í þrjá hluta er hún féll til jarðar.

Í bókinni Útkall: Leifur Eiríksson brot­lendir, eftir Óttar Sveinsson, segir frá því þegar Bjarni Ólafsson flugvirki stóð úti á flug­vellinum:

„Ég sá þegar vélin var um það bil að koma niður til jarðar, var að fara að lenda. Ljósin á henni hurfu andartak, en svo fór um mig angistar­hrollur: Allt í einu sá ég bjarma af miklum eldblossa.“

Úr þessu hörmulega flugslysi komust 79 manns lifandi; þar af fimm Íslendingar. Þeir voru flug­freyjurnar Jónína Sigmars­dóttir, Kristín E. Kristleifs­dóttir, Oddný Björgólfs­dóttir og Þuríður Vilhjálms­dóttir, sem og Harald Snæhólm flug­stjóri.

Á flug­vellinum beið áhöfn Dagfinns Stef­ánssonar flug­stjóra eftir vélinni; áhöfnin átti að taka við vélinni og flytja pílagrímana áfram til Indónesíu.

Sat hópurinn í farþegasal flug­vallarins er maður kom til þeirra og flutti þeim hin hörmulegu tíðindi:

„Hann horfði á okkur öll og sagði: „Your plane was crashing!“ segir Lilja Sigurðar­dóttir í áður­nefndri bók Óttars Sveins­sonar, en Lilja var meðlimur áhafnarinnar:

„Við horfðum bara öll á hann steini lostin og göptum. „No, no, no,“ sögðum við. „Það getur ekki verið!““

Þeir fimm af Íslendingunum sem lifðu flug­slysið af voru fluttir á sjúkrahús í Kólombó og var enginn þeirra lífs­hættulega slasaður.

Þann 19. nóvember lenti Sólfaxi, Boeing 727-þota Flugleiða, á Íslandi með lík sjö þeirra átta Íslendinga sem fórust. Fjöldi starfs­manna Flugleiða stóð heiðurs­vörð við móttöku­athöfnina og íslenska þjóðin var öll harmi slegin.

Var rannsókn yfirvalda á Srí Lanka gagnrýnd af Flugmála­stjórn Íslands; niður­staða rann­sóknarinnar var sú að gáleysi flugmanna hefði verið aðal­orsaka­valdur flug­slyssins.

Hópur íslenskra rann­sóknarmanna var sendur utan og komst hann að annarri niður­stöðu; taldi ýmislegt athuga­vert við flug­stjórnar- og aðflugs­tæki flug­vallarins.

Voru fulltrúar annarra flug­félaga á sama máli; var gefin var út rann­sóknar­skýrsla í samráði við ameríska sérfræðinga er stangaðist verulega á við niður­stöður fyrri rann­sóknar.

Niður­staða nýju rann­sóknarinnar var sú að aðal­orsakir slyssins hefðu verið skortur á viðhaldi aðflugs­tækja og að áhöfn flug­vélarinnar hefði fengið rangar upplýsingar frá flugturni.

Einnig var veðrið talið hafa átt mikinn þátt varðandi slysið; mikil rigning var er slysið varð; mikill vindur og niður­streymi.

Mætti íslenski rannsóknar­hópurinn mörgum erfiðum hindrunum við rannsókn sína; taldi að um yfir­hylmingu yfirvalda á Srí Lanka væri að ræða.

Í áður­nefndri bók Óttars Sveins­sonar, Útkall: Leifur Eiríksson brot­lendir, á Skúli Jón Sigurðsson, fyrr­verandi deildar­stjóri flug­rekstrar- og rannsóknar­deildar Flugmála­stjórnar Íslands, lokaorðin í, en bókin er tileinkuð minningu Íslendinganna átta og þeirra 175 Indónesa er fórust í þessu hræðilega flugslysi:

„Flug­mennirnir komu þarna grun­lausir og treystu aðflugs­tækjum flug­vallarins eins og þeir voru þjálfaðir til að gera. Rangar leið­beiningar flug­umferðar­stjórans féllu saman við gölluð og hættuleg aðflugs­tækin. […] Það gerði þetta svo enn verra að þarna voru maðkar í mysunni, svo ekki sé meira sagt, hjá yfir­völdum á Srí Lanka og nánast fyrirfram ákveðið að þarna skyldi hylmt yfir – þarna átti ekki að leiða allan sann­leikann í ljós. En nú hefur það loksins verið gert.“

Heimildir:

https://www.visir.is/g/20131399667d (sótt 22. febrúar 2023).

Útkall: Leifur Eiríksson brot­lendir, Óttar Sveinsson, 2006, Útkall bóka­útgáfa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim