Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Þessir eru ákærðir í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar – Götuvirði efnanna um tveir milljarðar

Sakborningarnir fjórir í stóra kókaín­málinu eiga lítinn sakaferil að baki en hafa sumir áunnið sér virðingu í samfélaginu fyrir störf sín. Það eru því hálf­gerðir góðborgarar sem ákærðir hafa verið í stærsta kókaín­máli Íslands­sögunnar. DV greindi frá nöfnum hinna ákærðu.

Mennirnir eru sakaðir um að hafa staðið að innflutningi á um 100 kílóum af kókaíni sem voru flutt til landsins falin í trjá­drumbum í timbursendingu. Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá var Páll Jónsson timursali hand­tekinn vegna málsins. Málið er það stærsta sem komið hefur til kasta íslensku lögreglunnar. Fundist hafði áður óheyrt magn af kókaíni í gámi með timbri sem kom frá Brasílíu í Sundahöfn. Timbursendingin hafði viðkomu í Hollandi. Toll­verðir þar í landi fundu efnið og létu íslensk yfirvöld vita.

Sjá einnig: Timbur­sali var hand­tekinn í stærsta fíkniefna­máli Íslands – „Ég hef ekkert við þig að tala, vina“

Viðtak­andi sendingarinnar, Páll timbur­sali, var hand­tekinn þegar hann vitjaði innihalds gámsins. Aðild hans að málinu kemur nokkuð á óvart. Hann á að baki sorgar­sögu þar sem sonur hans lét lífið vegna ofneyslu eitur­lyfja. Mannlíf fjallaði um mál timbur­salans.

Mennirnir heita Páll, Daði Björnsson, Jóhannes Páll Durr og Birgir Halldórsson. Páll er 67 ára gamall og hefur stundað innflutning á timbri. Fyrirtæki hans heitir Hús og Harðviður en í ákæru segir að fyrir­tækið hafi verið notað í peninga­þvætti í tengslum við kókaíns­myglið. Götuvirði efnanna er talið nema um tveimur milljörðum króna.

Meðal ákærðra er einnig Jóhanns Páll Durr, 28 ára gamall en hann er fyrr­verandi liðstjóri hjá íslensku landsliði í rafíþróttum. Hann er sakaður um að hafa aflað sér eða tekið við með ólöglegum hætti ríflega 17 milljónum króna.

Birgir Halldórsson er sagður hafa tekið við, geymt, umbreytt og aflað sér ávinnings af refsiverðum brotum fyrir samtals rúmlega 13 milljónir króna. Geymdi hann peningana og notaði til eigin fram­færslu. Birgir er fæddur árið 1995,

Daði Björnsson er sakaður um peninga­þvætti sem nemur rúmlega 16,3 milljónum króna. Hann er fæddur er árið 1992.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning