Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Fyrsta málverkasýning Mouhamed Lo fer vel af stað

Sækir inn­blást­ur­inn til hafs­ins

Mouhamed Lo
Mouhamed Lo Sjórinn veitir Mouhamed inn­blástur Mynd: Víkingur

Lista­mað­ur­inn Mouhamed Lo er með mál­verka­sýn­ingu í Iðu Zimsen til 5. nóv­em­ber næst­kom­andi en þar sýnir hann skemmti­leg og lif­andi mál­verk, akríl á striga. Sýningin heitir Tveir heimar. Mannlíf sett­ist niður með Mouhamed og ræddi við hann um sýn­ing­una og mál­ara­list­ina.

Mouhamed Lo

Mouhamed ólst upp í Márit­aníu, en sett­ist að á Íslandi fyrir nærri því tveimur ára­tugum. Í lýs­ingu á sýn­ingu hans segir að í verkum hans mæt­ist tveir heimar í drauma­kenndum veru­leika á tví­víðum fleti. Við­fangs­efni Mouhamed er órætt en sjá má fugla, auk fleiri dýra, manna eða verum á mörkum anda­heims og hins efn­is­lega. Í lýs­ing­unni segir einnig að verkin ein­kenn­ist af til­rauna­starf­semi og leik­gleði.

Um er að ræða fyrstu mál­verka­sýn­ingu Mouhamed en hann hóf að mála árið 2021. „Ég er búinn að selja sex mál­verk úr sýn­ing­unni,“ segir Mouhamed með bros á vör í sam­tali við Mannlíf þar sem blaða­maður situr með lista­mann­inum umkringdur bókum og mál­verkum á Iðu Zimsen með kaffi­ilm­inn í vit­unum. Lo seg­ist sækja inn­blástur að miklu leyti í nátt­úr­una í verkum sínum. „Eins og hér,“ segir hann og bendir á mál­verk sem sýnir rauð­hærða konu en verkið er í upp­á­haldi hjá honum. „Þessi hug­mynd kom til mín þegar ég var við sjó­inn á Sel­tjarn­ar­nesi þar sem ég bý. Fólk glímir oft við vanda­mál, er stressað og á erfitt, er ein­manna eða hvað eina og það horfir til hafs­ins og líður betur. Það var það sem kom í huga mér þegar ég mál­aði þetta verk.“

Og það er fleira í nátt­úr­unni sem veitir Mouhamed inn­blástur en oftar en ekki fær hann hug­myndir þegar hann er í göngut­úrum og sér til dæmis klett sem kemur upp úr sjónum eða í raun hvað sem er sem hann sér í nátt­úr­unni og vekur athygli hans. „Þá skissa ég upp mynd og fer síðan heim og reyni að gera mál­verk eftir skiss­unni,“ segir lista­mað­ur­inn bros­andi.

En hvernig hafa við­tök­urnar verið við fyrstu sýn­ingu hans?

„Fólk hefur verið að segja að þetta séu góðar myndir hjá mér en ég veit ekk­ert hvort þetta sé gott eða slæmt, ég geri bara mitt besta.“

Sýningin er eins og áður segir í Iða Zimsen og er til 5. nóv­em­ber, aðgangur er ókeypis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027