Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lenti í slysi og hætti við flug með Play: Kostar tæp 30 þúsund að breyta miðanum til Tenerife

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Mannlífi barst ábending frá viðskipta­vini flug­félagsins Play sem hafði keypt flugmiða til og frá Tenerife. Vegna slyss komst hann ekki í ferðina en félagi hans vildi stökkva til og bauðst til að kaupa af honum miðann. Flug­miðinn fram og til baka kostaði 46,600 krónur en að auki var greitt fyrir farangur 20,716 krónur. Heildar­miðaverð með farangri var um það bil 67 þúsund.

Flug­félagið Play sendi viðskipta­vininum þær upplýsingar að heildar­verð breytingarinnar væru 28,998 íslenskar krónur. Samkvæmt gjaldskrá á heimasíðu flug­félagsins kemur fram að nafna­breytingar­gjald er 12,999 krónur. Er því upphæðin 12,999 krónur greidd fyrir hvern fluglegg og að auki er rukkað 3,000 krónur í þjónustu­gjald.

„Við hjá PLAY ákváðum að koma til móts við okkar far­þega“

Ef miðað er við miðaverð án farangursins, 46,600 krónur, nemur nafna­breytingin með þjónustu­gjaldi því rúmum 62 prósentum.

Samkvæmt upplýsingum sem fundust um skilmála Icelandair þá eru nafna­breytingar ekki gerðar: „Nafna­breyting er ekki leyfð eftir útgáfu miða nema vegna lagalegra ástæðna (s.s. kynbreyting eða nafna­breyting við hjóna­vígslu) eða í innanlands- og Grænlands­flugi sem bókað var fyrir 16. mars 2021.“

Mannlíf leitaði viðbragða hjá Play þar sem gegnsæi breytinga­gjaldsins er á reiki og erfitt fyrir viðskipta­vini að sjá að við bætist þjónustu­gjald. Nadine Guðrún Yaghi, talsmaður Play, sendi Mannlífi svör:

  • Hvernig eiga viðskipta­vinir að sjá að verðið miðist við hvern fluglegg í verðskránni?

Öll gjöld miðast við einn fluglegg stendur skýrum störfum efst í verðskránni. Þetta á við um alla þjónustu sem er listuð í verðskránni. Þú kaupir t.d. hand­farangurs­tösku og forgang um borð á 8000 kr fyrir hvern legg.

  • Hvaða vinna felst nákvæmlega í nafna­breytingunni sem réttlætir að hún sé u.þ.b. 50% af andvirði miða­verðsins?

„Við hjá PLAY ákváðum að koma til móts við okkar farþega með því að leyfa nafna­breytingu. Það er hins vegar langt frá því að vera sjálfsagt enda gríðar­lega flókið tæknilega/kerfis­lega og önnur flugfélög sem við berum okkur saman við leyfa mörg hver ekki nafna­breytingu. Þegar fólk óskar eftir nafna­breytingu er það í raun að óska eftir því að samningi sé rift og nýr gerður sem er flókið eins og fyrr segir.“

  • Hvað er þjónustu­gjaldið nákvæmlega og af hverju er það aukalega ef nafna­breytinga­þjónustan er ekki innifalin í nafna­breytingunni?

„Þjónustu­gjald er alltaf rukkað fyrir þjónustu sem þjónustu­verið okkar veitir og er 3000 kr. Hins vegar er hægt að gera mjög margt sjálfur á „mínum síðum“ og þannig sleppa við þjónustu­gjald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim