Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sálfræðingur á netinu – Sparaðu 500 þúsund krónur á ári

Með því að sækja þér sálfræði­þjónustu erlendis frá á netinu geturðu sparað þér um 10 þúsund krónur á viku eða rúma hálfa milljón á ári. Þetta á við ef þú sækir þér vikulega sálfræði­þjónustu vegna andlegra kvilla á hefð­bundna sálfræði­stofu, greiðir fyrir það 17 þúsund krónur í hvert skipti. Þú skiptir yfir í þjónustu Better Help sem fer alfarið fram yfir mynd­símtöl, hefð­bundin símtöl og texta­skilaboð og sparar gríðarlegar upphæðir.

Better Help bjóða þjónustu á nokkrum tungu­málum, þ.m.t. ensku en þó ekki íslensku. Þjónustan kostar um 7.500,- til 10.000,- krónur á viku og felur í sér mynd­símtöl, símtöl eða skilaboð eftir því hvað hentar þér hverju sinni. Að hefjast handa er stutt ferli þar sem nýr notandi svarar einföldum spurninga­lista.

Þegar meðferð hefst er þér úthlutað spjall­herbergi með meðferðar­aðilanum hvar þú getur átt í spjalli um texta­skilaboð allan sólar­hringinn. Mynd­símtöl og hefð­bundin símtöl þarf að bóka, en samkvæmt síðu þeirra er frjálst að bóka sig í alla tíma sem auglýstir eru lausir. Þar kemur einnig fram að erlendar sjúkra­tryggingar greiði ekki fyrir þjónustuna og því má gera ráð fyrir að slíkt gildi hérlendis líka, en þó er mögulegt að stéttar­félög taki þjónustuna gilda sem sjúkra­kostnað.

Þú getur líka sparað þér 140 þúsund krónur með því að skipta út hefð­bundinni tíu tíma meðferð við þunglyndi, kvíða, lágu sjálfs­mati og félags­kvíða fyrir „staðlaða sálfræði­meðferð“ sem fer fram í gegnum verkefna­skil, spurninga­lista, fræðslu­efni og spjall við löggilda íslenska sálfræðinga hjá Mín Líðan. Hægt er að prófa einn prufutíma. Fyrir þetta eru greiddar 39.990,- en Mín Líðan staðhæfir að sambærileg meðferð á stofu kosti u.þ.b. 180 þúsund krónur.

Nú á tímum Covid-19 hefur eftir­spurnin eftir þjónustu ýmiskonar sem fer fram á netinu aukist gríðar­lega, þar með talin þjónusta heilbrigðis­starfsmanna. Þetta gæti komið sér vel fyrir sum okkar í ljósi þess að Íslendingar eru öruggir heims­meistarar í notkun kvíða- og þunglyndis­lyfja miðað við höfðatölu árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim