Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ísland í dag: Tilkynnt um 21 nauðgun á mánuði – Þriðjungur gerenda eru karlmenn undir 25 ára aldri

Í nýrri skýrslu ríkis­lögreglu­stjóra um heimilis­ofbeldi á Íslandi sem birt var í dag kemur meðal annars fram að lögreglu berast að meðaltali sjö tilkynningar á dag um heimilis­ofbeldi.

Kemur fram í skýrslunni að tilkynningar á fyrri helmingi árs hafa aldrei í sögunni verið fleiri en nú.

Einnig að heimilis­ofbeldismál eru nú meira en helmingur allra mála sem koma inn á borð lögreglu í líkams­meiðinga- og manndráps­málum.

Þá birti ríkis­lögreglu­stjóri tölfræði­lega skýrslu um kynferðis­brot – og þar er sama sorgar­sagan og og sú er varðar heimilis­ofbeldið – sem hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi þessa árs.

Þá er greint frá því að tilkynnt var um 125 nauðganir á því tímabili; það samsvarar 28% fjölgun frá í fyrra.

Og á Íslandi er tilkynnt um 21 nauðgun að jafnaði í mánuði; þriðjungur gerenda eru karlmenn sem eru undir 25 ára aldri.

Lögreglan skráði í það heila 328 tilkynningar um kynferðis­brot á fyrri helmingi ársins; sem er 5% fjölgun frá síðustu þremur árum þar á undan.

Í saman­burði við fyrstu 6 mánuði ársins í fyrra, fækkar skráðum kynferðis­brotum í heildina um 9% milli ára, og skráðum blygðunarsemis­brotum og kynferðis­brotum gegn börnum fækkar.

Hins vegar er það svo að brotum vegna kynferðislegrar áreitni fjölgar sem og brotum gegn kynferðislegri friðhelgi. Meðal­aldur grunaðra er um það bil 35 ár, og samkvæmt skýrslunni eru það 95% karlar; þar af þriðjungur sem ekki hefur náð 25 ára aldri.

Einnig má fræðast um í skýrslunni upplýsingar um tíma og stað­setningu þeirra brota sem tilkynnt eru; en á bilinu 35% til 40% kynferðis­brota verða á landsbygðinni. Og eru flestar nauðganir um helgar framdar á næturnar, eða meira en helmingur, en á virkum dögum dreifast þær jafnt yfir daginn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“