Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Axel: „Verktakar stjórna framboði og eftirspurn á húsnæðismarkaðnum“

Axel Jón Ellenarson skrifar athyglis­verðan pitil um stöðuna á leigu­markaðinum á Íslandi á Facebook-síðu sinni.

Hann segir að „á húsnæðis­leigu­markaði þar sem leigu­félög og allir leigu­salar mega hækka leigu eins og þeim sýnist; í verðbólgu þegar Seðla­bankinn hækkar stýri­vexti er verið að gefa fjármagseigendum tækifæri til að hækka allt sem svo almenningur greiðir fyrir.

Boltinn rúllar af stað.

Afborganir húsnæðis­lána hækka, matvöru­verð hækkar, allt hækkar og kaup­máttur rýrnar.“

Bætir við:

„Þessi svokallaði frjálsi markaður sem ýmsir „trúa“ á er án reglu­verks og slíkt er óskapnaður sem almenningur þarf að greiða fyrir – en ekki fjármagns­eigendur né fyrir­tækin.

Seðla­bankastjóri sagði í útvarps­viðtali í vikunni að í gegnum kjara­samninga SGS væri fólk að fá mikla peninga strax. Það var mjög einkennilegt að heyra vegna þess að kjara­samningarnir skapa ekki raun­verulega kaupmáttar­aukningu heldur fara þær kjara­bætur beint í að greiða fyrir það sem Seðla­bankinn hefur skapað fyrir reglu­lausan „frjálsan markað.““

Axel nefnir að „allar launa­hækkanir renna í vasa fjármagns­eigenda. Þegar honum var bent á þetta í útvarps­viðtalinu var augljóst að hann hafði ekki reiknað með spurningunni og svaraði: „ … jújú, en margir eiga peninga til að eyða, við skulum bara orða það þannig.“

Ekki veit ég hvaða fólk það er sem hann á við meðal launa­fólks. Fólk nær vart endum saman milli mánaða og sá vandi vex. Svo sagði hann: „Íslendingar eru ekki vanir því að það sé eitthvað verið að segja þeim fyrir verkum. Og það alveg sama þó þessi þjóð hafi svo margoft hlaupið framúr sér, hvernig hún hefur eytt peningum umfram efni og lent í allskonar veseni þess vegna þá er það alveg sama. Fólk ætlar ekkert … semsagt fólk tekur þessu ekki vel,“ og átti Ásgeir við að fólk taki þessum orðum hans ekki vel þegar hann sakar þjóðina um að hafa ollið banka­hruninu 2008, ekki bönkunum, ekki stefnu stjórn­valda og enn síður Seðla­bankanum sem lánaði milljarða í fallna banka sem töpuðust.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Svo blaðraði hann svolítið um þjóðina sem gagnrýnir aðgerðir hans og stjórn­valda á samfélags­miðlum. Þessum litla háværa minni­hluta sem hangir á Facebook. Maðurinn á svörtuloftum, sem er að því er virðist í vinnu fyrir fjármagns­eigendur, telur að hækkanir á fasteigna­markaði hætti!“

Axel segir að „það er ótrúlegt skilnings­leysi þar sem fasteigna­markaðurinn lýtur reglu­lausum frjálsum markaði. Verktakar stjórna framboði og eftir­spurn á húsnæðis­markaðnum og þekkt er að þeir bíða með að selja íbúðir til að þrýsta verðinu upp með aukinni eftir­spurn.

Bygginga­verktakar kunna á frjálsan markað. Þeir okra á húsnæði og almenningur á engra kosta völ en að taka hærri lán og borga hærri afborganir af lánum sínum. Ekkert leiguþak er og ekkert regluverk er á húnsæðis­markaði. Verktakarnir mega leika sér eins og þeim sýnist með framboð og eftir­spurn. Þeir sjá um þetta.“

Hann bendir á að „þegar stýrvextir hækka, hækkar allt annað, vextir og verðlag. Reglulaus frjáls markaður tekur enga ábyrgð, eðli hans er að græða peninga. Ef um hann gilti regluverk yrði hann að taka ábyrgðina sem frelsinu fylgir og velta ekki launa­hækkunum út í verðlagið.

Um þetta sagði Ásgeir Jónsson: „Við verðum að átta okkur á því að efnhagslífið er ekki einhver vél. Við vitum aldrei hvað gerist. Þó við búum til líkön og spár, við vitum aldrei nákvæmlega hvað gerist sko. … íslenska þjóðin verður að átta sig á því að við búum í heimi sem er mjög óstöðugur.“

Svo endaði hann á því að segja að launafólk geti ekki farið fram á launa­hækkanir og um leið lægri stýri­vexti: „Fólk verður að átta sig á að þetta gengur ekki saman.“

Seðla­bankastjóri spyr sjálfan sig hvort hafi komið á undan hænan eða eggið; hvort ákvarðanir hans um að hækka stýri­vexti hafi valdið almennum hækkunum og kaupmáttar­rýrnun eða hvort aukinn kaup­máttur á reglu­lausum frjálsum markaði hafi leitt til stýri­vaxta­hækkana og kaupmáttar­rýrnunar? Þessari spurningu sinni getur hann ekki svarað því hann veit ekki hvað gerist næst, því efnahags­lífið er ekki vél.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fanginn missti heimild til samfélagsþjónustu og fékk ekki að ljúka afplánun á Vernd.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis