Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Vilhjálmur um Eggert: „Grenjar yfir að þurfa að greiða lágmarkslaun en fékk 73 milljónir í árslaun“

„Í fréttum í dag kom fram að hagvaxtar­aukinn komi fyrir­tækjum spánskt fyrir sjónir en mikið ofboðsleg hræsni er í þessu fólki. En nú grenja sumir atvinnu­rekendur eins og stunginn grís yfir því að það hagvaxtar­aukinn í lífs­kjara­samningnum komi hugsanlega til framkvæmda á næsta ári,“ skrifar formaður Verkalýðs­félags Akraness, Vilhjálmur Birgisson og bætir við:

„Núna sprettur t.d. Eggert Þór Krist­ófersson, forstjóri Festa, sem rekur ELKO, Krónuna og N1 fram og hótar að það séu bara tvær leiðir til að takast á við greiðslu á hagvaxtar­aukanum, það er annaðhvort að hækka vöruverð eða að fækka starfs­fólki.“

Eggert Þór Krist­ó­fers­son.

Hann bætir við að þetta sé ekkert annað en hótun:

„Að hugsa sér svona hótun, en við gengum frá samningum sem kváðu á um að ef hagvöxtur á pr. mann fer upp fyrir vissa prósentu þá komi til greiðslu á hagvaxtar­aukanum og nemur sú greiðsla frá 3.000 kr. til 13.000 kr. Nú vilja vissir atvinnu­rekendur ekkert fara eftir þessum samningum og hræsnin í þessu fólki ríður ekki við einteyming.

Nægir t.d. að nefna í því samhengi að það kom fram í fréttum að Festi hafi hagnast um 2,3 milljarða á árinu 2020 og velta t.d. hjá Krónunni hafi aldrei verið meiri og hagnaður Krónunnar hafi aukist um 22%.

Tala svo um að eina leiðin til að borga þennan hagvaxtaauka sem muni kosta fyrir­tækið hugsanlega 300 milljónir sé að reka starfs­fólk eða hækka vöruverð. Halló Festi skilaði 2,3 milljörðum í hagnað er ekki nóg að hagnaður verði t.d. 2 milljarðar?“

Vilhjálmur er ekkert að skafa utan af hlutunum – ekki þekktur fyrir það:

„Hagnaður Festi er ekki eina hræsnið í þessu samhengi því að þessi sami forstjóri, Eggert Þór, sem núna grenjar eins og enginn sé morgun­dagurinn yfir því að þurfa hugsanlega að greiða fólki sem tekur laun eftir afar lágum launa­töxtum fékk sjálfur fimm mánaða bónus árið 2019 og fóru árslaun hans úr 61,7 milljónum króna í 73,4 milljónir eða sem nemur tæpum 12 milljóna króna hækkun launa á ársgrundvelli. Mánaðar­laun hans fóru úr 5,1 milljón í 6,1 milljón á mánuði.

Svo koma svona græðgispungar og væla yfir því að fólkið á gólfinu sem skapar arðinn hjá fyrir­tækinu eigi hugsanlega möguleika að fá auka­hækkun í formi þess sem samið var í lífs­kjara­samningum í formi hagvaxtar­auka.

Mér sýnist að hroki og fyrir­litning sumra atvinnu­rekenda í garð sinna starfs­manna muni kalla á að launafólk skuli búa sig undir átök á íslenskum vinnu­markaði á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna