Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Ungar konur í atvinnulífinu verða í forgrunni

Félag Ungra athafna­kvenna í sam­starfi við Alvotech munu standa fyrir ráð­stefnu sem haldin verður 10. mars næst­kom­andi í Hörpu sem til­einkuð er ungum konum í atvinnu­líf­inu og nefn­ist ráð­stefnan UAK dag­ur­inn.

Ungar konur í atvinnulífinu verða í forgrunni

Fram undan er spenn­andi ráð­stefna í Hörpu þar sem félagið leit­ast við að skapa vett­vang fyrir konur til að fræð­ast og efla hver aðra, fylla þátt­tak­endur eld­móði og fá til liðs við sig áhrifa­fólk, ráð­herra og erlenda gesti. Mark­miðið er að gera stjórn­endum fyr­ir­tækja, stjórn­mála­mönnum og ungu fólki í atvinnu­líf­inu á Íslandi grein fyrir kröftum vel mennt­aðra og reynslu­mik­illa kvenna ásamt mik­il­vægi þess að hlustað sé á kröfur þessa öfl­uga hóps hvað varðar atvinnu­tæki­færi.

Sigyn Jóns­dóttir er for­maður Ungra athafna­kvenna (UAK). Sigyn er hug­bún­aðar- og rekstr­ar­verk­fræð­ingur frá Columbia Uni­versity og starfar hjá Men & Mice ásamt því að sitja í stjórn nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Mure. UAK var stofnað árið 2014 af Lilju Gylfa­dóttur. Alls eru sex konur í stjórn UAK og eru félags­konur um 250 tals­ins. Í hverri viku bæt­ast við nýjar félags­konur.

Hver eru helstu áherslur UAK og hafið þið sett ykkur mark­mið með starf­sem­inni? „Ungar athafna­konur vilja stuðla að jafn­rétti, hug­ar­fars­breyt­ingu og fram­þróun í sam­fé­lag­inu. Félagið er fyrir konur sem vilja skara fram úr á hinum ýmsu sviðum atvinnu­lífs­ins og við leit­umst við að skapa vett­vang fyrir konur til að fræð­ast og efla hver aðra,“ segir Sigyn.

„UAK dag­ur­inn er ráð­stefna til­einkuð ungum konum í atvinnu­líf­inu. Á ráð­stefn­unni fáum við tæki­færi til að hlusta á íslenska og erlenda leið­toga ræða mál­efni sem skipta máli fyrir sam­fé­lagið sem við búum í, mál­efni sem tengj­ast jafn­rétti.“

Hvernig vegnar ungum konum almennt og hver er upp­lifun þeirra í atvinnu­líf­inu? „Ungar íslenskar konur eru í mik­illi for­rétt­inda­stöðu þegar horft er til ann­arra heims­horna eða nær okkur, til stöðu kvenna af erlendum upp­runa hér á landi. Tæki­færin eru ótal mörg og háskól­arnir fullir af ungum konum sem eru til­búnar að takast á við krefj­andi stöður í atvinnu­líf­inu. Eftir útskrift tekur svo við blá­kaldur raun­veru­leik­inn og við okkur blasa stað­reynd­irnar, rúm­lega 90% þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi eru karlar. Þessu þarf að breyta og við ætlum ekki að sitja rólegar og bíða eftir því að hlut­irnir breyt­ist. Þar til konur og karlar standa jöfnum fótum í íslensku sam­fé­lagi munu Ungar athafna­konur starfa áfram og vinna að jafn­rétti með fræðslu, umræðu og hvatn­ingu,“ segir Sigyn.

Getur þú sagt okkur frekar frá UAK deg­inum sem fram undan er í Hörpu? „UAK dag­ur­inn er ráð­stefna til­einkuð ungum konum í atvinnu­líf­inu. Á ráð­stefn­unni fáum við tæki­færi til að hlusta á íslenska og erlenda leið­toga ræða mál­efni sem skipta máli fyrir sam­fé­lagið sem við búum í, mál­efni sem tengj­ast jafn­rétti,“ segir Sigyn.

Hvert er mark­mið ykkar með ráð­stefn­unni? „Við viljum gera stjórn­endum fyr­ir­tækja, stjórn­mála­mönnum og ungu fólki í atvinnu­líf­inu grein fyrir kröftum vel mennt­aðra og reynslu­mik­illa kvenna ásamt mik­il­vægi þess að hlustað sé á kröfur þessa öfl­uga hóps hvað varðar atvinnu­tæki­færi,“ segir Sigyn.

___________________________________________________________

*SÉRSTAKUR GESTUR RÁÐSTEFNUNNAR ER LAURA KORNHAUSER

Sér­stakur gestur er Laura Korna­hauser.

Laura er for­seti og fram­kvæmda­stjóri Stratyfy sem spáir fyrir um og greinir gögn til að efla hina sönnu sér­fræð­inga fyr­ir­tækja – fólkið sem stýrir þeim til að taka upp­lýst­ari ákvarð­anir til að bæta fyr­ir­tækið. Hún tók þátt í að stofna Stratyfy árið 2016 ásamt þremur verk­fræð­ingum. Fyrir stofnun Stratyfy var Laura fram­kvæmda­stjóri hjá JPMorgan og vann við að selja flóknar afleiddar vörur til stórra kúnna. Á tólf árum hjá JPMorgan varð Laura sér­fræð­ingur í að sjá um flókin sam­bönd við kúnna, bera kennsl á vöru­tæki­færi og að þróa ný boð til að koma til móts við aukna eft­ir­spurn kúnna. Hún upp­lifði þá óhag­kvæmni þeirra vara sem not­aðar voru, sér­stak­lega þeirra sem not­aðar voru til að fylgja þróun í umhverfi reglu­gerðar. Eftir að hafa skapað ýmis ferli, tæki og tól til að hjálpa við að bæta árangur við­skipta, vissi hún að það þyrfti að vera til betri lausn og hún ætl­aði að finna hana.

___________________________________________________________

Hér má sjá dag­skrána sem er hin glæsi­leg­asta og von er á öfl­ugum og fjöl­breytum hóp fyr­ir­mynda öðrum til eft­ir­breytni.
UAK dag­ur­inn 2018 – Ráð­stefna til­einkuð ungum konum í atvinnu­líf­inu

10.00 Afhend­ing ráð­stefnu­gagna
10.30 Sigyn Jóns­dóttir, for­maður Ungra athafna­kvenna
10.40 Eliza Reid for­seta­frú setur UAK dag­inn 2018
11.00 Panel: Störf fram­tíð­ar­innar
Umræðum stýrir Fanney Birna Jóns­dóttir

Gestir verða Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, Ægir Már Þórisson, Stefanía G. Hall­dórs­dóttir og Ari Kristinn Jónsson.

11.45 Hádeg­is­matur
12.30 Leynig­estur
13.00 Laura Korn­hauser
13.30 Panel: Umræðan um áhrifa­miklar konur
Umræðum stýrir Björg Magn­ús­dóttir
Gestir verða Rannveig Rist, Salvör Nordal og fleiri.

14.15 Kaffihlé
14.45 Alda Karen Hjalta­lín
15.15 Halla Tóm­as­dóttir

Panel: Störf framtíðarinnar

· Hvar og hvernig er AI þróað? Hverjir eru að því? Hvaða fyr­ir­tæki? Hvernig eru teymin sam­an­sett, t.d. kynja­hlut­föll?
· Eru konur í minni­hluta í þeim greinum sem verða hvað mest áber­andi í fjórðu iðn­bylt­ing­unni? Ef já, hvað er hægt að gera? Eru stjórn­völd, mennta­stofn­anir og fyr­ir­tækin í land­inu að und­ir­búa sig fyrir fjórðu iðn­bylt­ing­una? Hvernig?
Gestir verða full­trúar atvinnu­lífs­ins, stjórn­valda og háskóla­sam­fé­lags­ins.

Panel: Umræðan um áhrifamiklar konur

· Fyr­ir­finnst tvö­falt sið­gæði gagn­vart konum í almennri umræðu Íslend­inga um áhuga­verða ein­stak­linga?
· Gerum við meiri kröfur til útlits, fram­komu og vinnu­bragða kvenna? Er orð­ræðan um áhrifa­miklar konur harka­legri en orð­ræðan um karla í sam­bæri­legum störfum?
· Fá konur, sem eru áber­andi vegna vinnu sinnar, verri útreið í fjöl­miðlum og athuga­semda­kerfum netheima vegna mis­taka sinna?
· Finnst konum þær þurfa að vanda sig meira í starfi og með það sem þær tjá sig um opin­ber­lega vegna ótta við að vera dæmdar harka­legar en karlar?
· Ef já, af hverju? Og hvernig breytum við þessu?

Gestir verða konur sem hafa verið áber­andi í stjórn­málum eða stjórn­endur stórra fyr­ir­tækja sem hafa leitt erfið verk­efni eða þurft að taka erf­iðar ákvarð­anir. Einnig farið í gegnum krefj­andi tíma­bil á sínum starfs­ferli, þurft að svara fyrir sína vinnu og mögu­lega upp­lifað ósann­gjörn við­horf og athuga­semdir í sinn garð.

Stjórn UAK, talið frá vinstri: Helena Rós Sturlu­dóttir sam­skipta­stjóri, Elísabet Erlends­dóttir við­skipta­stjóri, Andrea Gunn­ars­dóttir við­burða­stjóri, Sigyn Jóns­dóttir for­maður og Anna Berglind Jóns­dóttir. Á mynd­ina vantar Ásbjörgu Ein­ars­dóttur fjár­mála­stjóra.

Stúdíó Birt­ingur í sam­starfi við Félag ungra athafna­kvenna.
Umsjón / Sjöfn Þórð­ar­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur