Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölbreyttar æfingar og mismunandi álag með gleðina í för er leið til árangurs

Fjölbreyttar æfingar og mismunandi álag með gleðina í för er leið til árangurs

Þegar hausta tekur og hið dag­lega líf kemst í fastar skorður, börnin í skól­ann eftir sum­ar­frí og vinnan verður aftur að dag­legri rútínu byrjar gjarnan þorri lands­manna í rækt­inni og setur sér það mark­mið að ná árangri. Oftar en ekki gef­ast margir hverjir upp og ná ekki að klára mark­mið sín. Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ingar, þekkir þetta vel en hún hefur rekið heilsu­rækt í ára­tugi. Hún hefur ára­langa reynslu af því að hvetja fólk til dáða og veit um árang­urs­ríkar leiðir til að til­einka sér heil­brigð­ari lífs­stíl.

Margir byrja í ræktinni á haustin og gefast fljótt upp, hvað er best að gera til að koma veg fyrir það?

„Já, það er rétt. Margir kann­ast við að byrja og hætta í rækt­inni, ná ein­hvern veg­inn ekki að koma reglu­legri þjálfun inn sem föstum lífs­stíl. En þannig þarf það að vera. Rétt eins og að þú þrí­fur þig ekki bara í smá­skorpum í fimm til sex vikur og tekur þér svo hlé frá sturt­unni í nokkra mán­uði. Lík­ams­þjálfun er á sama hátt eitt­hvað sem við getum ekki birgt okkur upp af, heldur ættum að stunda allan árs­ins hring, alla ævi svo fremi sem við höfum heilsu til. Til að svo megi verða er hug­ar­farið númer eitt, sem þarf að stilla af. Þú þarft að taka ákvörðun um að byrja að stunda heilsu­rækt og finna pláss fyrir það í þinni dag­skrá og standa við það. Ég mæli alltaf með því að fólk komi sér í eitt­hvað prógram, nám­skeið, einka­þjálfun eða æfi með félaga. Í Hreyf­ingu bjóðum við upp á geysi­lega fjöl­breytt og vel skipu­lögð nám­skeið fyrir konur og karla á öllum aldri og þau hafa verið gríð­ar­lega vin­sæl því fólk kann því vel að hafa sitt pláss á föstum tímum og hitta sama hóp­inn. Það verður til mikil orka þegar æft er saman í hóp og mikil hvatn­ing og gleði. Fyrir þá sem hentar ekki að æfa í hóp er til­valið að prófa einka- eða para­þjálfun og einnig bjóðum við í Hreyf­ingu upp á frá­bæra nýja leið sem er Besta aðild. Meðlimir í Bestu aðild hafa ávallt aðgang að þjálf­ara, fá æfinga­á­ætl­anir og ástands­mæl­ingar eftir þörfum og hvatn­ingu og eft­ir­lit. Besta aðild er í raun hag­stæð­asti kost­ur­inn, svo mikið er inni­falið í mán­að­ar­gjald­inu.“

Margir finna einnig fyrir stöðnun árum saman og ná ekki árangri þrátt fyrir að stunda ræktina. Hvað er þá til ráða?

„Líkaminn er svo ótrú­lega magn­aður, hann aðlagar sig að því álagi sem við bjóðum honum upp á. Því er hann fljótur að venj­ast nýjum æfingum og það þarf stöðugt að vera að koma honum á óvart með fjöl­breyttum æfingum og mis­mun­andi álagi. Það er nauð­syn­legt að stokka reglu­lega upp æfinga­kerfið, breyta til og aðlaga. Ég mæli einnig með því að nota púls­mæli til að setja sér mark­mið, til dæmis Myzone, Fitbit eða annað slíkt. Við í Hreyf­ingu erum búin að Myzone-væða stöð­ina og það er gríð­ar­lega hvetj­andi að nota Myzone og hafa alltaf mæli­kvarða á öllum æfingum og sam­an­burð við aðra.

Munum að ef við gerum alltaf það sama er lík­legt og næstum öruggt að við fáum alltaf sömu nið­ur­stöðu.“

Hverjar eru helstu áherslurnar hjá ykkur núna?

„Það má segja að aðal­á­herslan sé á fjöl­breytni. Þarfir fólks eru æði mis­jafnar og einnig finnum við á okkar gestum í Hreyf­ingu að fólk vill fjöl­breytni. Eitt af okkar gildum er fag­mennska sem er rauði þráð­ur­inn í öllu því sem við gerum. Þjálf­arar okkar viða sífellt að sér þekk­ingu sam­kvæmt nýj­ustu vís­indum og þeim fleygir fram í heilsu­rækt­inni eins og öðru. Nýjustu nám­skeiðin okkar eru til dæmis Hörku­form þar sem unnið er mark­visst að því að gefa vöðv­unum nýjar áskor­anir með afar krefj­andi æfinga­kerfi. Barre-nám­skeiðin okkar bjóðum við í nokkrum ólíkum útfærslum, Hot Barre Fit, Barre & Buttlift og Barre Burn. Barre-nám­skeiðin byggj­ast á þraut­reyndu og afar áhrifa­ríku æfinga­kerfi dans­ara, æfing­arnar unnar að miklu leyti við ball­ett­stöng. Ekki er um að ræða ball­ett, langt frá því, en mikið er unnið með að styrkja lík­amann frá miðj­unni, kjarn­anum, sem hefur mikil og góð áhrif á lík­ams­stöð­una. Líkaminn er svo tón­aður til á allan hátt með veru­lega góðum alhliða styrkta­ræf­ingum við stöng­ina. Konur sem prófa þessa tíma verða alveg heill­aðar og koma á nám­skeið eftir nám­skeið.

Cyclothon er annað virki­lega spenn­andi nám­skeið fyrir konur og karla sem hafa áhuga á úti­hjól­reiðum og vilja þjálfa sig mark­visst með þjálf­ara sem þekkir hjól­reiðar út og inn, enda tvö­faldur Íslands­meist­ari í götu­hjól­reiðum.
Önnur nýj­ung hjá okkur er nám­skeiðið Sterkar konur sem er ein­fald­lega veru­lega mark­visst lyft­inga­nám­skeið sér­stak­lega sam­an­sett fyrir konur sem vilja verða stæltar og sterkar. Það eru ekki allir sem átta sig á því að með því að stunda styrkt­ar­þjálfun með skipu­lögðum hætti byggir þú upp lík­ama sem er ekki aðeins sterkur og stæltur, heldur einnig eykur þú veru­lega grunn­brennslu lík­am­ans svo mun auð­veld­ara er að halda sér í kjör­þyngd. Þú gerir lík­ama þinn að sjálf­virkri brennslu­vél ef þú stundar lyft­ingar.“

Hjá Hreyf­ingu bjóðið þið einnig upp á ýmis­konar dekur sem er kær­komið í bland við æfing­arnar. Er ekki gald­ur­inn einmitt sá, að vera með hörkupúl og verð­launa sig síðan með dekri og lúxus þegar vel gengur? „Það er engin spurn­ing að hluti af heilsu­rækt­inni er slökun og vellíðan. Slaka á í heitu pott­unum, fara í nudd­með­ferð og gefa sér ein­fald­lega tíma fyrir vellíðan.“

Lykilþættir heilsuræktar byggjast á eftirfarandi þáttum:

  • Regluleg hreyf­ing – alhliða þol, styrktar- og lið­leika­þjálfun.
  • Hollar neyslu­venjur – fjöl­breytt matar­æði með áherslu á óunnin mat­væli og að sneiða sem mest hjá sæt­indum, reykja ekki og neyta áfengis í hófi.
  • Góður svefn, hvíld og slökun – forð­ast streitu.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur