Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Myrkrið og kertaljósin heilla mig mest við haustin“

„Myrkrið og kertaljósin heilla mig mest við haustin“

Matt­hildur Sunna Þor­láks­dóttir er lög­giltur fast­eigna­sali á Stak­felli fast­eigna­sölu og var að skila inn loka­rit­gerð í við­skipta­lög­fræði á Bifröst. Hún er ein­hleyp og býr í ynd­is­legri íbúð á besta stað í Vest­ur­bænum.

Hvað heillar þig mest við starfið?

„Þegar maður er alltaf í vinn­unni eða við sím­ann er að mínu mati nauð­syn­legt að hafa fjöl­breyti­leika, og það er það sem heillar mig mest við þetta starf.“

Getur þú lýst hefðbundnum vinnudegi hjá þér?

„Tölvu­póstur, sím­töl og flakk. Hitta og tala við alls konar fólk og skoða mis­mun­andi íbúðir og hús.“

Hvað finnst þér gera heimili að heimili?

„Það er að sjálf­sögðu per­sónu­legt hvað gerir heim­ili að heim­ili og fólk er jafn­mis­jafnt og það er margt. Í mínu til­viki er það hlý­leiki. Ég er mikil plöntu- og kerta­mann­eskja því að mér finnst það gera heim­ilið hlý­legra.“

Getur þú lýst þínum stíl?

„Myndi lýsa honum sem út og suður. Ég fer ekki endi­lega mikið eftir neinum sér­stökum reglum, hvorki í fata­vali né á heim­il­inu, heldur eftir því sem mér finnst fal­legt.“

Áttu þinn uppáhaldsarkitekt? Áttu þinn uppáhaldshönnuð?

„Ég er hrifin af Alvar Aalto og Arne Jacobsen, bæði í hönnun og arki­tektúr. Mér finnst frekar gaman að því hvað þeir hafa hannað skemmti­lega öðru­vísi bygg­ingar og tíma­lausa hönnun í hús­gögnum og fylgi­hlutum.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eignast en ekki eignast hingað til?

„Ekkert sem ég man eftir, er mjög sátt við það sem ég á.“

Uppáhaldsliturinn þinn?

„Þeir eru þónokkrir. Er mjög hrifin af grænum og kar­rí­gulum og hrafna­gráum. Jarð­litir og pastellitir eru einnig í miklu upp­á­haldi.“

Hvar líður þér best?

„Heima hjá mér, ég er mjög heima­kær. Mér líður best einni að bralla eitt­hvað þar eða með fullt hús af fólki.“

Hvað heillar þig mest við haustið? Er eitthvað sem þú vilt bæta við í garðinn eða inn á heimilið þegar haustið gengur í garð?

„Myrkrið og kerta­ljósin heilla mig mest við haustin. Það verður allt svo miklu meira kósí. Stórar peysur og treflar verða stað­al­bún­aður og rauð­víns­glas og kerta­ljós á Kaffi Vest verður extra rómó.“

Svalasti veitingastaðurinn á Íslandi í dag?

„Ég er mjög hrifin af Mat­höll­inni á Hlemmi, þar eru nokkrir veit­inga­staðir sem standa upp úr hjá mér. Skál og Jómfrúin eru í algjöru upp­á­haldi, sem og Kröst. Finnst þetta skemmti­legt „concept“, það finna allir eitt­hvað við sitt hæfi.“

Heillar einhver byggingarstíll þig meira en annar?

„Ég er algjör sökker fyrir nýmóð­ins spænskum stíl. Ég hef verið að skoða og sýna eignir á Alicante-svæð­inu og mér finnst það sem verið er að byggja núna vera ein­stak­lega fal­legt.“

Að lifa lífinu lifandi er að…

… anda með nef­inu og njóta líð­andi stundar.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur