Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýjasta frá Apple – sköpunargáfan og vinnslugetan í forgrunni

Tækniris­inn Apple kynnti á dög­unum nýj­ustu útgáf­urnar á MacBook Air, Mac Mini, iPad Pro og Apple Pencil, þar sem fag­ur­fræðin, gæðin og nota­gildið fara vel saman. Ávallt tekst þeim að gera enn betur og hönn­unin skilar sínu. Við heim­sóttum Björgvin Þór Björg­vins­son, versl­un­ar­stjóra Epli.is, og kynntum okkur það nýjasta frá Apple, nýj­ustu fítu­s­ana og útlit.

Nýjasta frá Apple – sköpunargáfan og vinnslugetan í forgrunni

Apple tók aðeins öðru­vísi vinkil á kynn­ing­una sína, sem var haldin í fyrsta skipti í New York. Þar var fyrst og fremst ein­blínt á sköp­un­ar­gáfu og vinnslu­getu sem teng­ist notkun Apple-tækj­anna, sem lista­menn víð­ast hvar hafa nýtt sér frá því að fyrsta Apple-tölvan kom á mark­að­inn. Í fram­haldi af því voru nokkrar nýj­ungar kynntar, eins og glæný Mac mini, MacBook Air og svo iPad Pro sem er algjör­lega end­ur­hann­aður. Getur þú sagt okkur hvað nýjasta útgáfan á MacBook Air hefur fram yfir þá eldri? „Nýja MacBook Air hefur fengið nýjan og krist­al­tæran Retina-skjá með enn meiri skerpu, upp­lausn og betri liti. Hún er orðin létt­ari og nett­ari með 13,3 skjá. Þar að auki er vinnslu­geta hennar enn meiri með nýj­ustu kyn­slóð Intel-örgjörva. Ein skemmti­leg nýj­ung er að tölvan hefur Touch ID, eða fingraskanna, þannig að þægi­legt er fyrir not­and­ann að kom­ast hratt og örugg­lega inn á tölv­una án þess að slá inn lyk­il­orðið. Apple leggur mikla áherslu á örygg­is­mál og eru gögnin dulkóðuð með háum örygg­is­stöðlum þannig að erfitt er fyrir aðra að kom­ast að gögn­unum.“

Nýjasta útgáfan af MacBook Air draumur fyrir nemendann

Kemur MacBook Air í nýjum litum eða með nýrri áferð? „Margir við­skipta­vinir okkar hafa einmitt verið mjög spenntir fyrir að fá MacBook Air í litum og nú fást þær í fal­legum gull- og dökk­gráum lit. Hún verður einnig fáan­leg í hinum klass­íska lit, silfur.“

Er nýja MacBook Air drauma­ein­takið fyrir nem­end­ann? „Ef ég væri að fara að fjár­festa í far­tölvu, yrði þessi klár­lega fyrir val­inu. Ég hef notað MacBook Air sem vinnu­tölvu í meira en sjö ár og er alsæll. Ekki skaðar að raf­hlaðan end­ist í allt að tólf klukku­stundir og er því án efa drauma­vél fyrir nem­endur og í raun alla sem vilja flott­ustu far­tölv­una í dag.“

Nýjasta útgáfan af MacBook Air er draumur fyrir nem­endur.

Mac Mini á stærð við bók

Hverjir eru helstu kostir við Mac Mini og hvað hefur bæst við? „Mac Mini er í raun og veru „turn­tölvan“ frá Apple, nema að það fer ekk­ert fyrir henni, hún er á stærð við bók, og er einnig ótrú­lega öflug. Apple setti alla nýj­ustu tækn­ina í þennan litla kassa og hægt að fá hana í alls kyns útfærslum. Hún hentar því bæði fyrir hinn almenna not­anda og þá kröfu­hörðu.“

Þriðja kynslóð iPad Pro og Apple Pencil mögnuð upplifun

Búið er að minnka rammann í kringum skjá­inn.

Hverjar eru helstu nýj­ung­arnar sem hafa orðið á nýjasta iPad Pro? „Ný hönnun og hrað­virk­ari en 92% af öllum far­tölvum á mark­aðnum. En þar að auki er búið að minnka rammann í kringum skjá­inn, fjar­lægja fingrafaraskann­ann og setja Face ID. Þannig tókst Apple að gera hann nett­ari, en samt stækka skjá­inn á minnstu útgáf­unni. Þessi nýi þriðju kyn­slóðar iPad Pro er sá allra öfl­ug­asti sem Apple hefur fram­leitt og auð­velt er að vinna þung verk­efni á hann. Full útgáfa Photos­hop er vænt­an­leg í byrjun næsta árs sem mun vinna full­kom­lega vel með nýja iPad Pro. Nýr penni var einnig kynntur, en hann smellur á hlið tæk­is­ins með segli og hleður sig þannig.“

Vin­sældir iPad Pro eru að aukast jafnt og þétt.  „Það hefur sýnt sig að iPad er í auknum stíl að koma í stað tölv­unnar. Tækni­þró­unin á þessum tækjum hefur tekið svo stórt stökk síð­ast­liðin ár, en þar má þakka að Apple er bæði hug­bún­aðar- og tækja­fram­leið­andi og nær þannig að gera ótrú­lega hluti með góðri sam­vinnu beggja hluta. Þá er ég að meina raf­hlöðu­end­ingu, afl og not­enda­við­mót. iPad Pro hefur verið ótrú­lega vin­sæll hjá okkur og salan eykst ört,“ segir Björgvin.

Hverjir eru helstu kostir Apple Pencil fyrir iPad Pro? „Fyrst og fremst er nákvæmnin og upp­lifunin mögnuð. Þetta er jafn­n­átt­úru­legt og að nota penna á blað, nema að þú hefur öll tólin á einum stað. Ég veit að not­endur elska að nota hann í alls kyns verk­efni, sumir til að teikna og aðrir ein­fald­lega til að skrifa niður glósur eða inn á PDF-skjöl.“

Verða þessar tækninýj­ungar til þess að auka vin­sældir iPad Pro enn frekar?

„iPad Pro er kom­inn til þess að vera. Þetta undra­tæki sem Apple kynnti 2009 verður bara betra með hverju ári. Ég held að bæði iPad Pro og hinn klass­íski iPad verði mest not­uðu tölv­urnar í fram­tíð­inni.“

iPad Pro kom á mið­viku­dag­inn og seld­ist upp um leið, vör­urnar rjúka því út jafn­óðum og þær koma. „Við eigum svo von á MacBook Air og Mac mini aðeins seinna í mán­uð­inum. Við tökum við pönt­unum strax í dag og snið­ugt að gera slíkt vilji maður tryggja sér ein­tak fyrir jólin,“ segir Björgvin. „Ég mæli ein­dregið með að fólk komi og skoði þessi nýju mögn­uðu tæki, en við ættum að fá sýn­ing­ar­ein­tök bráð­lega. Það er ótrú­legt hvað það hefur mikið að segja, sér­stak­lega iPad Pro og nýja penn­ann,“ segir Björgvin og er hinn glað­asti.

Myndir /  Aldís Páls­dóttir og úr einka­safni Epli.is
Í sam­starfi við Epli.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur