Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kerfið duglegra að verja sig en borgarana

Kerfið duglegra að verja sig en borgarana
|||

Þöggun, sam­trygg­ing og afskipta­leysi eru nokkur orð sem hafa verið notuð til að lýsa rétt­ar­kerf­inu þegar kemur að með­ferð kyn­ferð­is­brota í umfjöllun Mannlífs síð­ustu vikur. Kveikja umfjöll­un­ar­innar er mál þriggja stúlkna sem sök­uðu lög­reglu­mann um kyn­ferð­is­brot. Mannlíf náði tali af þremur þing­mönnum sem segja ýmsar brotala­mir í kerf­inu.

„Frá­sagn­irnar eru slá­andi. Í umfjöll­un­inni kemur einnig fram mis­ræmi í sjón­ar­miðum yfir­valda til máls­ins og hvernig eigi að bregð­ast við og standa að rann­sókn og stöðu þess ásak­aða. Það er auð­vitað óvið­un­andi,“ segir Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, um mál kvenn­anna þriggja.

„Kyn­ferð­is­legt ofbeldi, ekki síst gegn börnum og ung­lingum, er svo alvar­legt að það verður alltaf að bregð­ast við af festu og öryggi. Öll máls­með­ferð verður að vera fum­laus og fallin til þess að vekja traust bæði að efni og formi, hvað þá þegar ásak­anir bein­ast að þeim sem eiga að halda uppi lögum og reglu.“

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Vantar upp á skilning fyrir réttindum þolenda

Þór­hildur Sunna.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, seg­ist áhyggju­full yfir stöðu þolenda innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins í ljósi ýmissa mála sem hafa komið upp síð­ustu miss­eri. „Það virð­ist vera að þessi rétt­indi barna til að njóta alltaf vafans og að allt sé gert til að þeirra hags­munir séu í for­grunni hafi ekki náð kjöl­festu í rétt­ar­kerf­inu eins og það leggur sig á Íslandi. Þetta sjáum við víð­tæk dæmi um hjá lög­regl­unni, hjá dóm­stólum og hjá sýslu­manns­emb­ættum. Það veldur mér miklum áhyggjum að staðan sé ekki betri en raun ber vitni,“ segir Þór­hildur Sunna. Hún bætir við að þó að mikil vakn­ing hafi orðið í sam­fé­lag­inu varð­andi kyn­ferð­is­brot í kjöl­far her­ferða eins og #metoo sé enn ýmsu ábóta­vant.

„Það vantar upp á skiln­ing innan kerf­is­ins fyrir rétt­indum þolenda í kyn­ferð­is­brota­málum. Réttindi ger­anda og/eða sak­born­inga eru að sjálf­sögðu mjög mik­il­væg; að þeir fái sann­gjarna máls­með­ferð og að aðilar séu sak­lausir uns sekt er sönnuð. En þolendar eiga líka rétt á sann­gjarnri máls­með­ferð og þeir eiga rétt á vernd gegn ofbeldi. Þeir eiga rétt á því að rétt­ar­kerfið sinni þeim af virð­ingu, kost­gæfni og af miklum metn­aði.“

Mætti mikilli andstöðu innan réttarkerfisins

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram til­lögu um afnám fyrn­ingar í kyn­ferð­is­brotum gegn börnum árið 2003 og seg­ist hafa mætt mik­illi and­stöðu innan rétt­ar­kerf­is­ins áður en laga­breyt­ingum var náð fram í þessum efnum fjórum árum síðar.

„Mörgum lög­fræð­ingum fannst þessi til­laga allt of rót­tæk og þar sem dönsku lögin gerðu ráð fyrir að þessi brot væru fyrn­an­leg ættu íslensk lög að gera ráð fyrir hinu sama. Mér fannst slík rök­semd­ar­færsla vera út í hött og ég vildi að við tækjum þetta eðli­lega skref. Við eigum ekki að vera feimin að taka refsipóli­tískar ákvarð­anir. Með því að hafa þessi brot fyrn­an­leg högn­uð­ust ger­end­urnir á lög­unum þar sem þolendur leita sér oft ásjár kerf­is­ins mörgum árum eftir að brotin voru framin,“ segir Ágúst, en í kjöl­far laga­breyt­ing­anna varð Ísland eitt fyrsta land í heim­inum sem gerði alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn börnum ófyrn­an­leg.

Tveir starfshópar, svipaðar niðurstöður

Ágúst Ólafur.

Fyrir fimm árum var Ágúst Ólafur for­maður starfs­hóps sem skil­aði til­lögum um með­ferð kyn­ferð­is­brot innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins til dóms­mála­ráðu­neytis. Sam­ráðs­hópur skil­aði aftur til­lögum sama efnis árið 2016. Til­lög­urnar virð­ast vera um margt líkar. Í báðum var til að mynda óskað eftir skýr­ari stefnu stjórn­valda, inn­spýt­ingu í for­varnir og að tryggja sál­fræði­að­stoð fyrir brota­þola. Ágúst segir að sitt­hvað úr til­lögum síns starfs­hóp hafi náð í gegn, annað ekki.

Jón Steindór segir margt gott innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins en að alltaf megi gera betur.

„Eitt af því sem þarf til dæmis að skoða eru sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf til fórn­ar­lamba um gang mála, fram­vindu rann­sóknar og for­sendur ákvarð­ana. Sömu­leiðis spurn­ing um hvort ekki þurfi að breyta lögum um aðild fórn­ar­lamba að dóms­málum og rann­sóknum þannig að þau verði aðilar máls en ekki vitni eins og nú er,“ segir hann og bætir við að honum finn­ist stefna stjórn­valda í þessum mála­flokki ekki skýr. „En ég held að vilji sé til þess að taka þessi mál fast­ari tökum og því ber að fagna. Sjálf­sagt er að styðja þá við­leitni og veita stjórn­völdum virkt aðhald.“

Ákveðin uppskrift að þöggun

Þór­hildur Sunna kann­ast við þá þöggun sem talað hefur verið um í umfjöllun Mannlífs og segir í raun vera mjög skýra upp­skrift að henni.

„Þetta virð­ist vera tækni og þessi tækni heitir þöggun“

„Almennt í þögg­un­ar­málum virð­ast vera þrír sér­stakir þættir. Númer 1: Að gera lítið úr mál­inu. Ef við tökum Höfum hátt-málið sem dæmi þá gæti þetta verið þegar það kom fyrst upp á yfir­borðið og Bjarni Bene­dikts­son sagði þá dæmdu barn­a­níð­inga sem um ræddi hafa fengið eðli­lega máls­með­ferð þegar þeir sóttu um upp­reist æru. Þá tal­aði Brynjar Níelsson, þáver­andi for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, um að það væru til verri brot en þetta gegn börnum. Númer 2: Að kenna öðrum um. Í Höfum hátt-bylt­ing­unni lét Bjarni Bene­dikts­son fyrst að því liggja að þetta hefði verið á hans ábyrgð. Þegar það fór að verða óþægi­legt var Ólöfu Nordal kennt um og svo lög­unum. Lögin gerðu þetta. Númer 3: Að skjóta sendi­boð­ann. Í fyrr­nefndu

Jón Steindór.

máli lét Brynjar til dæmis hafa eftir sér að fólk vildi ein­ungis fá upp­lýs­ingar um hverjir þessir val­in­kunnu menn sem veittu barn­a­níðíng­unum með­mæli væru svo hægt væri að ganga í skrokk á þeim, og gerði þannig lítið úr mál­inu. Þolendur voru einnig rægðir á alþjóða­vett­vangi. Svo getur þessi hringur byrjað aftur upp á nýtt. Það virð­ist vera að kerfið sé dug­legra að verja sig en borg­ar­ana í land­inu.“

Jón Steindór segir það kýr­skýrt að reynt hafi verið að þagga mál niður eða gera minna úr þeim í gegnum tíð­ina.

„Gegn þessu þarf að berj­ast með upp­lýs­ingum og fræðslu um hve alvar­leg þessi brot eru. Ég vil ekki trúa því að þöggun sé kerf­is­bundin. Hitt verður að vera alveg skýrt að þöggun er glæpur. Samtímis verður að búa svo um hnúta að fórn­ar­lömb geti treyst því að á þau sé hlustað, mál rann­sökuð af hlut­lægni og til hlítar,“ segir hann og því er Ágúst Ólafur sam­mála.

„Þöggun vegna þess­ara mála má aldrei eiga sér stað í íslensku rétt­ar­kerfi eða í sam­fé­lag­inu í heild sinni. Sem betur fer erum við farin að ræða þessi mál mun opin­skár en áður þótt dæmi um þöggun séu einnig til staðar. Kyn­ferð­is­af­brot eru ein alvar­leg­ustu afbrot sam­fé­lags­ins og við eigum ein­fald­lega að stefna á að útrýma þeim. Annað á ekki að vera í boði.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð