Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þetta virðist vera tækni og þessi tækni heitir þöggun“

„Þetta virðist vera tækni og þessi tækni heitir þöggun“

Ár er liðið síðan leik­ar­inn Bergur Þór Ing­ólfs­son og fjöl­skylda hans höfðu hátt vegna upp­reistar æru tveggja dæmdra barn­a­níð­inga. Bergur Þór segir margt svipað í sínu máli og máli stúlkn­anna sem hafa sakað lög­reglu­mann um kyn­ferð­is­brot. Hann segir ljóst að rann­saka þurfi rann­sókn mála stúlkn­anna en spyr sig hvort ein­hver sé hæfur til þess á land­inu.

„Þetta ætti að vera risa­stórt mál, bæði fyrir stjórn­völd og lög­regl­una. Hvar sem er í heim­inum lægi heiður yfir­valda undir.

Ég hef enga ástæðu til að vefengja frá­sögn Helgu og Kiönu. Ég trúi líka á rétt­ar­kerfið en ekki gagn­rýn­is­laust. Ef rann­sókn máls­ins var jafn­á­bóta­vant og komið hefur fram í fjöl­miðlum grefur það undan öllu trausti. Var 11 ára barn ekki sent í lækn­is­skoðun eftir að það segir frá kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hendi stjúp­for­eldris? Var meintur ger­andi sem starfar í lög­regl­unni hugs­an­lega ráð­gef­andi á vett­vangi við rann­sókn máls­ins? Hvers vegna var honum ekki vikið frá á meðan á rann­sókn stóð? Hvers vegna er frá­sögn barns í Barna­húsi ekki tekin gild? Hvaða ástæður liggja að baki því að þrjár ásak­anir um kyn­ferð­is­lega mis­notkun lög­reglu­manns á börnum eru ekki rann­sak­aðar sem eitt mál? Var heima­til­búið Excel-skjal tekið gilt sem fjar­vist­ar­sönnun? Ég held að Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir meints brota­þola, sé ekki eina for­eldrið sem vilji fá svör við þessum spurn­ingum. Ég held að allir for­eldrar lands­ins vilji fá að vita hvernig tekið verður á móti þeim komi þau til með að standa í hennar sporum,“ segir leik­ar­inn Bergur Þór Ing­ólfs­son um mál kvenn­anna tveggja, Helgu Elínar og Kiönu Sifjar, sem hafa stigið fram í Mannlífi og sakað lög­reglu­mann um kyn­ferð­is­brot þegar þær voru á barns­aldri. Alls voru þrjár stúlkur sem sök­uðu mann­inn um kyn­ferð­is­brot en málin voru látin niður falla vegna ónægra sann­anna.

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Eiga skilið að þetta sé hreinsað

Bergur Þór og fjöl­skylda hans hafði svo sann­ar­lega hátt á síð­asta ári í kjöl­farið á þeim fréttum að Robert Downey, dæmdur barn­a­níð­ingur sem hafði meðal ann­ars brotið gróf­lega á dóttur Bergs, hefði fengið upp­reist æru og lög­manns­rétt­indi sín aftur. Á sama tíma fékk annar dæmdur barn­a­níð­ingur, Hjalti Sigurjón Hauksson, upp­reist æru. Bergur Þór, fjöl­skylda hans og nokkrir brota­þolar Roberts, linntu ekki lát­unum og skók málið sam­fé­lagið, ekki síst þegar upp komst að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafði veitt fyrr­nefndum Hjalta góða umsögn þegar hann sótti um upp­reist æru. Afleið­ingar þess­arar miklu bar­áttu var að ákvæði um upp­reist æru var fellt úr almennum hegn­ing­ar­lögum og Björt fram­tíð ákvað að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu við Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn og þar með féll rík­is­stjórnin.

Á laug­ar­dag­inn verður eitt ár síðan að Bergur Þór, hans nán­ustu og brota­þolar Roberts Downey byrj­uðu að hafa hátt. Hann segir mál Helgu Elínar og Kiönu Sifjar minna um margt á sína eigin bar­áttu.

„Þeim virð­ist vera gert jafn erfitt fyrir og okkur að láta rödd sína ber­ast. Ég veit ekki hvað skal kalla þetta, hvort þetta er afskipta­leysi, áhuga­leysi eða sam­trygg­ing. Það er eins og sumt fólk tengi hrein­lega ekki við þetta eða ótt­ist að tala um þetta. Í okkar máli byrj­uðum við á að spyrja for­set­ann, sem benti á stjórn­ar­skrána, sem benti á rík­is­ráð, sem benti á for­sæt­is­ráð­herra, sem benti á dóms­mála­ráð­herra, sem benti á per­sónu­vernd­ar­lög og svo fram­vegis. Enda­laust. Þetta virð­ist vera aðferðin sem notuð er til að þagga mál niður. Að lokum reis for­set­inn upp úr þessu rugli og gaf út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins með afger­andi hætti en ég veit ekki af hverju aðra æðstu ráða­menn skorti hug­rekki til að taka af skarið. Þegar við erum að fjalla um börn ættum við að rísa upp á aft­ur­lapp­irnar og veita þeim vernd. Kiana og Helga hafa gengið í gegnum það sama og við en á miklu lengri tíma. Þær eru ótrú­lega hug­rakkar og búa yfir því­líkum styrk að hafa haldið þetta út. Þær eiga það skilið, sem og börn fram­tíð­ar­innar, að þetta sé gert upp og að þetta sé hreinsað. Ef þeim hefur dottið í hug að skálda þetta upp ell­efu ára gömlum, þyrfti einmitt líka að rann­saka hvaðan hug­myndir um kyn­líf full­orð­inna með börnum eru fengnar,“ segir Bergur.

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Best væri ef málið væri tekið upp aftur

Í við­tali við Mannlíf benti Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, á ýmsa van­kanta á rann­sókn máls dóttur sinnar. Til dæmis að sak­born­ingur hafi farið með rann­sak­endum á vett­vang þegar sum­ar­bú­staður þar sem brotin áttu að hafa átt sér stað var rann­sak­aður. Einnig sagði hún að málið hefði verið látið niður falla meðal ann­ars vegna vitn­is­burða vina­hjóna sak­born­ings sem voru með í för í bústaðnum. Báru þau við minnis­leysi vegna drykkju. Sak­born­ingi var ekki vísað úr starfi á meðan málin voru rann­sökuð og starfar hann enn innan lög­regl­unnar. Þá hefur Stefán Eiríks­son, þáver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, ekki viljað tjá sig um málið. Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur bent á að ekki hafi verið unnt að vísa sak­born­ingi úr starfi á meðan á rann­sókn stóð vegna þess að rík­is­sak­sókn­ari hafi neitað emb­ætt­inu um nauð­syn­leg gögn. Það er hins vegar mat inn­an­rík­is­ráðu­neytis að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi ekki þurft þessi gögn til að leggja mat á hvort rétt væri að vísa mann­inum úr starfi um stund­ar­sakir.

Bergur Þór segir ljóst að það þurfi að rann­saka hvernig staðið var að rann­sókn­inni á sínum tíma.

„Rétt­vísin á að vera blind en ekki á þann hátt að hún loki aug­unum fyrir öllu óþægi­legu. Rétt­læt­is­gyðjan er með bundið fyrir augun svo hún fari ekki í mann­grein­ar­á­lit. Það á ekki að skipta máli í hvaða stjórn­mála­flokki þú ert eða í hvaða íþrótta­klúbbi, hver hör­unds­litur þinn er eða trú. Fólk sem hefur menntað sig í lögum og reglum á ekki að njóta neinna sér­kjara liggi það undir grun. Hvernig þetta mál virð­ist hafa verið unnið er ekki til að auka traust almenn­ings á lög­regl­una. Rann­sókn­ina þarf að rann­saka. Best væri ef málið yrði tekið upp aftur,“ segir Bergur Þór og bætir við að hann kann­ist vel við það sem stúlk­urnar séu að lenda í – að hvert emb­ætti bendi á annað.

„Það er nákvæm­lega það sama og við stóðum frammi fyrir. Þetta virð­ist vera tækni og þessi tækni heitir þöggun. Að þegja. Að svara ekki. Að takast ekki á við þetta. Að benda hver á annan. Að reið­ast pínu­lítið. Að vitna í gömul lög og hefðir, helst þannig að almenn­ingur skilji alls ekki neitt. Þetta virð­ist vera skil­yrt og lærð leið til að takast á við svona leið­indi. Það getur verið að þetta sé ómeð­vitað en þetta heitir ekk­ert annað en þöggun.“

Viðbrögð stjórnvalda viðhéldu ofbeldinu

Að mati Bergs Þórs, hvað geta þær Kiana og Helga, og ef til vill þriðja stúlkan, gert í mál­inu eins og sakir standa?
„Það sem þær eru að gera núna er í raun eina leiðin. Þær hafa í raun­inni engu að tapa og hafa gert þetta algjör­lega frá­bær­lega. Þær hafa bent á van­kant­ana og hafa staðið í þess­ari bar­áttu mjög skyn­sam­lega finnst mér. Mér finnst þær vera hetjur,“ segir Bergur Þór.

Lög­reglu­stjóri segir að verk­lags­reglum lög­reglu hafi verið breytt

Er hann lítur yfir síð­asta árið seg­ist hann enn vera að vinna úr þess­ari háværu bar­áttu sem tók sinn toll af fjöl­skyld­unni. Hann gleðst samt yfir því að aðrir sem hafi svip­aða sögu að segja treysti sér til að opna sig.

„Við sögðum um ára­mótin: Gleði­legt nýtt ár og fari 2017 fjand­ans til,“ segir Bergur Þór, staldrar við eitt augna­blik og heldur svo áfram. „Við erum öll að vinna úr þessu enn þá. Þessi við­brögð sem við fengum frá stjórn­völdum end­ur­vörp­uðu ofbeld­inu og við­héldu því. Í kjöl­farið bloss­aði #metoo-bylt­ingin upp þannig að þetta er ekki búið. Bara að þessar konur séu að stíga fram núna, eftir að móðir ann­arrar þeirra hafi hrópað út í tómið í átta ár, sýnir okkur það. Auðvitað erum við ánægð með að það sé komin leið til að ræða þetta. En þetta situr nátt­úr­lega í okkur. Það tekur tíma að vinda ofan af þessu öllu saman, ekki síst þögg­un­ar­til­burðum stjórn­valda. Það virð­ist eins og allt kerfið vinni á móti fólki í svona málum. Í okkar máli var eins og hefðir og úrelt lög væru ofar skyn­semi og mann­gildum. Við erum heldur alls ekki ánægð með hvernig lög­unum um upp­reist æru var bara kippt úr sam­bandi án alls sam­hengis eða ann­arra úrræða. Enn mega marg­dæmdir barn­a­níð­ingar aka skóla­bílum og mæta sem lög­menn í Barnahús lögum sam­kvæmt,“ segir Bergur Þór.

Var bar­áttan þess virði?
„Að sjálf­sögðu var þetta allt þess virði. Ég vil til dæmis benda á það að Anna Katrín Snorra­dóttir fékk við­ur­kenn­ingu frá lög­regl­unni um að frá­sögn hennar væri tekin trú­an­leg þótt málið teld­ist fyrnt. Það er alla­vega hálfur sigur. Fjöl­miðlar stóðu sig mjög vel og við vorum heppin að við höfðum hátt að sumri til því þá var ekk­ert Alþingi eða veiði­gjalda­frum­varp til að aftengja umræð­una. Ef þetta verður ekki lagað verða ein­ungis fréttir af svona málum þegar þingið fer í sum­ar­frí sem er sorg­legt.“

Mynd / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ