Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýta kartöfluhýði til bjórgerðar

Kart­öflu­hýði er lyk­il­hrá­efni í bjórnum frá brugg­hús­inu Álfi en helm­ingur þurr­efnis fram­leiðsl­unnar eru kart­öflur. Sjálf­bærni skiptir teymið miklu máli sem ætlar að festa sig í sessi á hörðum sam­keppn­is­mark­aði.

Nýta kartöfluhýði til bjórgerðar

Við fyrstu sýn virð­ist fátt sam­eig­in­legt með bjór og kart­öflu­hýði en teymið á bak við brugg­húsið Álf bruggar bjór þar sem kart­öflu­hýði, sem ann­ars færi til spillis, skipar stóran þátt í fram­leiðsl­unni. Teymið skipa þau Þórgnýr Thorodd­sen yfir­brugg­ari, Haukur Páll Finnsson, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins og Bára Hlín Krist­jáns­dóttir verk­efna­stjóri.
Á æsku­heim­ili Þórgnýs var bruggað létt­vín sem hann segir hafa verið heldur gör­ótt að smekk flestra. „Eitthvað virð­ist þó hafa setið eftir því ég hef lengi haft áhuga á skemmti­legum brugg­hug­myndum. Þegar Haukur og Bára komu til mín með þessa pæl­ingu, um að brugga bjór úr kart­öflu­hýði, gat ég ekki annað en boðið þeim í til­rauna­mennsku og hún virð­ist ekk­ert ætla að enda hjá okkur.“

Þórgnýr segir að faðir Hauks sé einn af eig­endum Þykkva­bæjar og hafi stungið því að honum einn dag­inn að hann hefði lesið ein­hvers staðar að hægt væri að nýta kart­öflur í bjór­gerð. „Þá kom upp sú hug­mynd hvort ekki væri hægt að nota það sem fellur til við gerð vara úr kart­öflum til þess hins sama. Haukur er afskap­lega dríf­andi ein­stak­lingur og bara fór beint í málið.“

Hug­mynda­fræðin á bak við Álf er að fram­leiða góðan bjór úr eins íslensku hágæða hrá­efni og völ er á.

Íslenskasti bjór­inn
Fyrsta til­raunin til að brugga bjór úr kart­öflum leit ekki vel út í byrjun segir Þórgnýr sem upp­lýsir að þau hafi verið hæfi­lega bjart­sýn með árang­ur­inn. „En nið­ur­staðan kom skemmti­lega á óvart og gaf alger­lega til­efni fyrir okkur til að kafa dýpra í þessar pæl­ingar. Vinnan hefur mikið til snú­ist um að kynn­ast kart­öfl­unum sem hrá­efni og skoða hvað gengur og hvað gengur ekki. Hún á það til að vera svo­lítið dyntótt í með­förum og það þarf að kunna á henni lagið til að brugga bjór úr henni.“

Hug­mynda­fræðin á bak við Álf er að fram­leiða góðan bjór úr eins íslensku hágæða hrá­efni og völ er á segir Þórgnýr. „Vegna þess hve mikið hrá­efni í bjórnum okkar er ræktað hér á Íslandi má með góðu móti segja að þetta sé hrein­lega íslenskasti bjór í heimi, en helm­ingur þurr­efn­is­ins eru kart­öflur. Sterkjan úr kart­öfl­unum hefur þó engin bragð­á­hrif á bjór­inn og því er hann mjög léttur fyrir bragð­lauk­ana og ætti að henta flestum sem kunna að meta góðan bjór.“

Í dag er bjór­inn til sölu á nokkrum ölhúsum og veit­inga­stöðum og teymið er langt komin með að koma bjórnum í sölu í Vín­búð­inni.

Teymið skipa þau Þórgnýr Thorodd­sen yfir­brugg­ari, Bára Hlín Krist­jáns­dóttir verk­efna­stjóri og Haukur Páll Finnsson, stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd / Marino Thorlacius

Mörg tæki í hend­urnar
Þórgnýr segir það hafa verið ótrú­lega merki­lega upp­lifun fyrir hann að kom­ast inn í við­skipta­hrað­al­inn. „Fyrir fram gerði ég mér enga grein fyrir hverju þetta myndi breyta fyrir mig og fram­gang hug­mynd­ar­innar. Hrað­all­inn er bara nýbyrj­aður en við erum samt komin með svo mörg tæki til að vinna með. Okkur hefur auk þess verið ýtt út í ýmsar pæl­ingar og verk­efni sem að við hefðum hugs­an­lega aldrei farið út í og krafin um ýmis svör við spurn­ingum sem við höfðum ekki hugsað út í. Það er hollt að láta grilla sig svo­lítið en það er hæg­lega stærsta áskor­unin.“

Umhverfið skiptir máli
Sjálf­bærni skiptir teymið miklu máli því eins og hann orðar það, þá er eng­inn gróði ef það er engin fram­tíð. „Við brennum öll fyrir því að rekst­ur­inn verði sem vænstur fyrir umhverfið. Í stað þess að fram­leiða meira, gerum við meira úr því sem fram­leitt er og vonum að það verði hvati fyrir aðra fram­leið­endur.“

Engin vanda­mál til
Ein stór spurn­ing sem teymið veltir fyrir sér þessa dag­ana snýr að mögu­legum við­skipta­vinum. „Við­skipta­vinir Álfs eru þeir sem kunna að meta góðan bjór en snertiflet­irnir við við­skipta­vin­ina eru oft snúnir, sér í lagi í umhverfi sem er jafn­bundið af ströngu reglu­verki og raun ber vitni. Þá kemur sér vel hjá okkur að eiga fra­s­ann „Það eru engin vanda­mál, bara lausnir“. Sam­keppnin er mjög hörð á áfeng­is­mark­að­inum en litlu brugg­húsin standa engu að síður mjög vel saman og hjálp­ast að þegar þörf er á. Það er mjög gaman að vinna í þannig umhverfi,“ segir Þórgnýr.

„Vegna þess hve mikið hrá­efni í bjórnum okkar er ræktað hér á Íslandi má með góðu segja að þetta sé hrein­lega íslenskasti bjór í heimi …“

Metnaður og eld­móður
Þórgnýr hrósar íslenska frum­kvöðlaum­hverf­inu og segir þar ríkja mik­inn vel­vilja, metnað, þekk­ingu og eld­móð. „Það er gjör­sam­lega æðis­legt að vinna með þessu góða fólki. Aðgangur að smærri styrkjum til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja mætti þó vera auð­veld­ari. Síðan má líka nefna almennt reglu­verk og þann kostnað og óþarfa flækju­stig því tengdu sem getur verið mjög íþyngj­andi. Það virð­ist stundum vera munur á reglum, eftir því hvern talað er við, auk þess sem það er tals­vert ógagn­sæi til staðar í kerf­inu þegar maður leggur af stað á nýja veg­ferð sem gerir þetta svo­lítið erfitt.“

Vilja festa sig í sessi
Fram undan eru spenn­andi tímar en höf­uð­mark­mið teym­is­ins er að vera komin með fasta til­vist á íslenskum bjór­mark­aði á næstu 2-3 árum. „Um leið þurfum við að ná að skala okkur tals­vert upp. Í dag er fram­leiðslu­geta okkar tak­mörkuð vegna tækja og rýmis. Því er mjög ger­legt og raunar tals­vert æski­legt fyrir okkur að stækka við fram­leiðsl­una sem fyrst. Það væri ekk­ert verra fyrir okkur í stöð­unni en að geta selt umfram fram­leiðslu­getu. Þannig að það eru mörg krefj­andi verk­efni fram undan sem krefj­ast mik­illar vinnu af okkur en hey, hver sagði að þetta ætti að vera auð­velt?“

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur