Platan situr nú í 7. sæti á Bandcamp yfir mest seldu „ambient“ plötuna en hún fór hæst í 2. sæti og fyrir aftan goðsagnirnar í bresku sveitinni Coil.

Platan kom út á vegum Möller Records í fyrra, en fékk fallega endurútgáfu í ár á Neotantra forlaginu en á plötunni er nýtt 25 mínútna verk Part 2 af Effects of Clouds.
Neotantra er dóttur útgáfufélag hins virta tónlistarfyrirtækis Neo Quija. Eigandinn er enginn annar en Lee Norris, en hann hefur gefið út raftónlist í mörg ár undir nöfnum eins og Man-Q-Neon, Metamatics, Nacht Plank og Norken.































Athugasemdir