Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Villtist á Glerártorgi vegna veikinda

Berst við kerfið til að fá úthlutað heim­il­is­lækni á Akureyri.

Villtist á Glerártorgi vegna veikinda
Þráinn Sig­valda­son.|Þráinn Sig­valda­son.

Skortur á heim­il­is­læknum hefur verið við­var­andi á Akureyri árum saman og ástandið er svipað víðar á lands­byggð­inni. Þráinn Sig­valda­son flutti til Akur­eyrar fyrir fimm árum og hefur enn ekki fengið úthlutað heim­il­is­lækni en hann hefur verið inn og út af sjúkra­húsum frá því að hann fékk veiru­sýk­ingu í lifur haustið 2016.

Í sam­tali við Mannlíf segir Þráinn frá því að hann hafi veikst alvar­lega haustið 2016 en hann greind­ist þá með fyrr­nefnda veiru­sýk­ingu í lifur. Veiran hefur valdið Þráni miklu heilsutjóni og hann hefur verið inn og út af sjúkra­húsum síðan. Í febr­úar á þessu ári hljóp sýk­ingin upp í höf­uðið. „Þá var ég lagður inn á sjúkra­hús með algjört minnis­leysi og fékk lyf sem hefur læknað alla kvilla sem voru að hrjá mig nema ruglið í höfð­inu,“ segir hann og bætir við það sé ólíð­andi að þurfa á sama tíma að berj­ast fyrir því að fá þá þjón­ustu sem hann telur sig eiga rétt á.

Sendur í hringi
Eftir að læknar á Sjúkra­hús­inu á Akureyri (SAK) sögðu honum að fara heim og hvíla sig; að hann ætti að verða vinnu­fær aftur innan skamms, þótti Þráni ástæða til að fara fram á frek­ari eft­ir­fylgni og fékk í kjöl­farið til­vísun frá geð­lækni í ráð­gjöf og þjón­ustu hjá VIRK. Ráðgjafi þar hafi síðan leitað svara hjá heilsu­gæsl­unni á Akureyri um hvers vegna Þráni væri ekki úthlutað heim­il­is­lækni. Svörin sem feng­ust voru þau að staðan væri ein­fald­lega þannig að það væri skortur á heim­ils­læknum og því ekk­ert hægt að gera.

„Ef ein­hver þarf á heim­ils­lækni að halda, þá hlýt ég að falla undir þá þörf, ég er far­inn að vill­ast í heima­bænum mínum.“

„Ég er í raun búinn að fara í hringi síðan þetta byrj­aði. Ég er með syk­ur­sýki líka og var áður í sam­bandi við lækni, sem er í sér­stöku syk­ur­sýkisteymi en þegar ég var far­inn að geta haldið sykrinum nokkuð góðum þá útskrif­að­ist ég úr því teymi og lækn­ir­inn sagði mér að hafa bara sam­band við heim­ils­lækni. Þegar ég sagði honum að ég væri ekki með heim­il­is­lækni og fengi hann ekki, sagði hann að hjúkr­un­ar­fræð­ingur myndi fylgj­ast með mér í stað­inn. Svo fékk ég tölvu­póst frá hjúkr­un­ar­fræð­ingi sem sagði mér að hafa sam­band við heim­il­is­lækni og svar­aði mér ekki frekar. Þá var ég kom­inn í hring. Eftir þetta var mér bent á að senda erindi inn á Heilsu­veru. Þegar ég sendi þeim lýs­ingu á veik­indum mínum var mér sagt að hafa sam­band við heim­ils­lækni,“ útskýrir Þráinn.

Staðan er því sú að ef Þráinn þarf á lækni að halda er helsta úrræði hans að fara á bráða­vakt­ina á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, en hann seg­ist hins vegar þurfa sár­lega á því að halda að vera með fastan lækni sem þekki sögu hans betur en til­fallandi vakt­læknir geti gert. „Ef ein­hver þarf á heim­ils­lækni að halda, hlýt ég að falla undir þá þörf, ég er far­inn að vill­ast í mínum eigin heimabæ,“ segir hann. „Meira að segja í versl­un­ar­mið­stöð­inni Gler­ár­torgi.“

„Verulegt vanda­mál að manna stöður“
Félag heilsu­gæslu­lækna lagði inn umsögn um heil­brigðis¬áætlun rík­is­stjórn­ar­innar til árs­ins 2030. Þar er mönn­un­ar­vandi rak­inn og bent á að úrbóta sé þörf. „Heim­il­is­læknum þarf að fjölga til að anna þeim verk­efnum sem öflug heilsu­gæsla þarf að geta sinnt, bæði í þétt­býli en ekki síst í dreif­býli þar sem hefur verið veru­legt vanda­mál að manna lækn­is­stöður und­an­farin ár,“ segir í umsögn­inni en undir hana ritar Salóme Ásta Arn­ar­dóttir, for­maður Félags heilsu­gæslu­lækna.

Þá kemur fram í umsögn­inni að í sam­an­burð­ar­löndum séu heim­il­is­læknar um þriðj­ungur allra lækna. Ef það sama ætti við á Íslandi væru heim­il­is­læknar 400 í stað 200 núna. „Til að ná mark­miði um fjölgun heim­il­is­lækna úr 200 í 400 og gera ráð fyrir þeim hópi sem hættir á næstu árum vegna ald­urs, þarf að koma til átak í sér­námi í heim­il­is­lækn­ingum. Það þarf að fjölga sér­náms­stöðum í að minnsta kosti 80 og því þarf að fylgja fjölgun kennslu­stjóra og starfs­fólks sér­náms.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum