Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Líkami okkar elskar fitu“

Tíðni ofþyngdar hjá íslenskum grunn­skóla­börnum hefur farið lækk­andi síð­ustu ár. Pró­fessor segir vit­und­ar­vakn­ingu um heilsu hafa skilað árangi

„Líkami okkar elskar fitu“
Helga Katrín Stef­áns­dóttir við drag­ster­inn Batman. Ingólfur Arn­ars­son er eig­andi þessa trylli­tækis. Vélin er 11

Valdís Bjarna­dóttir og Sólveig Jak­obs­dóttir útskrif­uð­ust með BS-gráðu í hjúkr­un­ar­fræði frá Háskóla Íslands í vor. Í loka­verk­efni sínu skoð­uðu þær ofþyngd grunn­skóla­barna í 6. bekk, 8. bekk og 10. bekk á Íslandi út frá íslenskum hluta fjöl­þjóð­legu könn­un­ar­innar Heilsa og líðan skóla­barna (HBSC) sem er gerð á fjög­urra ára fresti í yfir fjöru­tíu löndum. Í rit­gerð­inni voru sex mis­mun­andi bak­grunns­breytur skoð­aðar út frá félags­legum þáttum íslenskra barna og ung­linga og bornar saman við nýj­ustu tölur úr könnun HBSC á Íslandi frá árunum 2017 og 2018.

Nið­ur­stöður sýndu m.a. að 15,6% íslenskra grunn­skóla­barna í 6., 8. og 10. bekk voru skil­greind í ofþyngd. Til sam­an­burðar sýna gögn að 23,7% barna í 4. bekk grunn­skóla voru talin vera í ofþyngd árið 2012. Út frá nið­ur­stöðum HBSC á Íslandi, eykst tíðni barna í ofþyngd með aldri og því má áætla að tíðni barna í 6., 8., og 10. bekk hafi verið svipuð eða hærri en 23,7% árið 2012. Það bendir því flest til þess að tíðni ofþyngdar hjá grunn­skóla­börnum fari lækk­andi.

Ársæll Már Arn­ars­son pró­fessor stýrir HBSC á Íslandi og í sam­tali við Mannlíf segir hann að hið opin­bera og skóla­kerfið í heild hafi tekið við sér á und­an­förnum árum og stuðlað að auk­inni fræðslu og heilsu­efl­ingu. „Við erum farin að sjá heilsu­efl­andi sam­fé­lög, heilsu­efl­andi skóla og leiks­skóla. Það hefur orðið vit­und­ar­vakn­ing í sam­fé­lag­inu um það í hverju heil­brigði felst,“ segir hann en bætir við að mik­il­vægt sé að halda því til haga að þyngd er aðeins lít­ill hluti af heil­brigði.

Ársæll Már Arn­ars­son pró­fessor stýrir HBSC á Íslandi. Mynd / Kristinn Ingv­ars­son
„Það getur valdið miklu verra heilsutjóni að stunda alls konar óheil­brigðar megr­un­ar­að­ferðir en að vera ein­hverjum nokkrum kílóum í yfir­þyngd.“

„Okkar rann­sóknir hafa til dæmis sýnt að sér­stak­lega ung­lings­stelpur hafa mjög nei­kvæða lík­ams­mynd og margar hverjar sem ekki eru í neinni yfir­þyngd nota mjög óheil­brigðar aðferðir til þess að við­halda þyngd. Það er eitt­hvað sem ég hef til lengri tíma meiri áhyggjur af en ofþyngd. Það getur valdið miklu verra heilsutjóni að stunda alls konar óheil­brigðar megr­un­ar­að­ferðir en að vera ein­hverjum nokkrum kílóum í yfir­þyngd.“

Megrunarkúrar varasamir

Ársæll bendir enn fremur á að lang­tíma­rann­sóknir frá Svíþjóð sýni að því oftar sem ung­lings­stelpur fara í megr­un­ar­kúra, þeim mun þyngri verða þær. „Aug­ljós­lega eru þungar stelpur meira í megrun. Ef fylgst er með hópi stelpna í langan tíma og byrjað á ákveðnum þyngd­ar­punkti kemur í ljós að þeim mun oftar sem þær fara í megrun þeim mun meira þyngj­ast þær,“ útskýrir Ársæll.

Aðspurður hvers vegna lík­am­inn bregð­ist þannig við megr­un­ar­kúrum segir hann að það hafi með erfða­efni okkar að gera.

„Það er af því að lík­ami okkar elskar fitu. Fita er frá­bær leið til að geyma orku­forða og þessi eig­in­leiki að geta bætt á sig fitu til að eiga fyrir mögru tíma­bilin hefur þjónað okkur alla þró­un­ar­sög­una. Nú er ein­fald­lega vanda­málið að síð­ustu ára­tugi hafa ekki verið nein mögur tíma­bil, þannig að fitan hefur bara safn­ast á okkur. Þegar maður er að fara í megr­un­ar­kúra þá segir maður öllum sínum erfða­fræði­for­ritum stríð á hendur, það auð­vitað gengur ekki upp. Líkaminn lækkar bara brennslu­hrað­ann og svo segir hann við þig að gef­ast upp hrein­lega. Auk þess borðar fólk sem stundar megr­un­ar­kúra mun verr en þeir sem halda sínu striki. Eins og ég segi, lík­am­inn elskar fitu, það er fátt sem honum þykir vænna um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ