Beckham hefur verið duglegur að birta myndir á Instagram í morgun þar sem fylgjendur hans fá innsýn inn í það sem félagarnir eru að bralla. Beckham sýndi þá faratækið sem þeir vinir ferðast á en um stóran Land Rover Defender er að ræða.
„Frábærir dagar,“ skrifar Beckham á Instgram og því má gera ráð fyrir að þeir hafi varið undanförnum dögum hér á landi. Er fram kemur í frétt Vísis þá eru þeir að veiða í Haffjarðará.
Áhugsasamir geta fylgst með Beckham á Instgram.

Björgólfur, Guy og David hafa notið lífsins á Íslandi undanfarna daga.































Athugasemdir