Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Girnilegt brauð á grillið

Girni­legar og safa­ríkar steikur eru kannski það fyrsta sem kemur upp í hug­ann þegar grill er nefnt á nafn en svo ótal­margt annað má gera með þess­ari eld­un­ar­að­ferð – eins og til dæmis að grilla brauð. Gest­gjaf­inn kom nýlega út með sum­ar­legum og flottum upp­skriftum og að því til­efni gefum við hér upp­skrifir af tveimur frá­bærum brauð­réttum á grilli.

Girnilegt brauð á grillið
Mynd / Karl Pet­ers­son|Mynd/Karl Pet­ers­son|Mynd / Karl Pet­ers­son
Grillað piad­ina-brauð með tómat-tapenade og grill­uðu eggald­ini. Mynd/Karl Pet­ers­son

Grillað piadina-brauð með tómat-tapenade og grilluðu eggaldini

3 ¾ dl 37°C heitt vatn (fing­ur­volgt)
1 pakki þurr­ger
½ tsk. sykur
570 g hveiti
3 msk. jóm­frú­ar­olía
2 tsk. sjáv­ar­salt frá Salt­verki

Blandið vatni, sykri og geri saman í hræri­vél­ar­skál og hrærið þar til allt hefur bland­ast vel saman, leyfið að standa í 5 mín., þar til mynd­ast hefur þunnt lag af hvítri froðu ofan á vatn­inu en það þýðir að gerið er farið að virka. Blandið rest­inni af hrá­efn­inu saman við og hrærið rólega í 2 mín. eða þar til deigið hefur tekið sig vel saman. Stillið vél­ina á með­al­hraða og hrærið deigið saman í 10 mín. Búið til fal­lega kúlu úr deig­inu og setjið í olíu­borna skál, hyljið með visku­stykki þar til deigið hefur rúm­lega tvö­faldað sig í stærð. Takið nú deigið og búið til 8-12 jafn­stórar kúlur, fer eftir stærð­inni sem þið viljið hafa á brauð­inu, fletjið hverja kúlu út í þunna botna. Setjið þá á smjör­pappír og smá­olíu bæði undir og ofan á deigið svo það fest­ist ekki. Hitið grillið upp í 180°C og bakið brauðið við þann hita í 2 mín. og á hvorri hlið. Þegar brauðið er tekið af er því leyft að kólna lít­il­lega áður en það er skorið í við­eig­andi bita. Útbúið mauk eða bara góða sósu til að dýfa þessu skemmti­lega grill­brauði í.

Tómat-tapenade

100 g ólífur, helst kalamata-ólífur, stein­hreins­aðar
100 g sól­þurrk­aðir tómatar
1 hvít­lauks­geiri
3 msk. jóm­frú­ar­olía
hand­fylli fersk basi­líka
2 msk. kapers
2 tsk. bals­amedik
vel af svörtum pipar

Fyrst eru ólíf­urnar, tómat­arnir og hvít­lauk­ur­inn sett í mat­vinnslu­vél og látið sax­ast létt, því næst er olí­unni og rest­inni af hrá­efn­inu bætt við og blandað saman þar til maukið helst vel saman.

Eggaldinmauk

1 heill hvít­laukur
2 eggaldin, um 500 g
1 msk. safi úr sítrónu
1 tsk. óreganó
1 tsk. salt
1 tsk. pipar

Hitið grillið í 200°C. Skerið topp­inn af hvít­lauknum og makið smá­olíu þar ofan á. Pakkið lauknum inn í álp­appír og bakið með eggald­in­inu. Stingið gat á eggald­inin með gaffli á nokkrum stöðum svo gufa kom­ist út. Leggið á heitt grillið og bakið í 15-20 mín. eða þar til þau verða mjúk í gegn. Skerið eggald­inin síðan eftir endi­löngu og skafið mjúka part­inn innan úr og setjið í skál. Takið hvít­l­auk­inn og hrein­lega kreistið hann þar til rifin úr honum fara í skál­ina. Bætið öllu öðru sem er í upp­skrift­inni saman við og setjið í mat­vinnslu­vél. Maukið þar til verður að silki­mjúku mauki.

Grill­aðar pylsur með brauð­vafn­ingi. Mynd/Karl Pet­ers­son

Grillaðar pylsur með brauðvafningi

Í þessu brauð­deigi er smjör­bolla en hún hjálpar til við að brjóta niður glút­enið í brauð­inu og gerir það teygj­an­legra.

6 pylsur
350 g hveiti
50 g sykur
1 tsk. salt
1 msk. þurr­ger
1 ¼ dl mjólk
1 egg
120 g bökuð smjör­bolla
30 g smjör við stofu­hita í litlum ten­ingum

Blandið þurr­efn­unum saman. Setjið mjólk­ina, eggið og smjör­boll­una í aðra skál og blandið vel saman. Gerið því næst dæld í þurr­efnin og hellið blautefn­unum út í. Notið krók til þess að blanda vel saman og passið að engir kekkir séu í deig­inu. Setjið smjörið út í þegar þetta er komið vel saman og hrærið í minnst 10 mín. eða þar til ekk­ert fest­ist við skál­ina og er mjög teygj­an­legt. Ef þú heldur að þú sért búin að hnoða nóg, hnoð­aðu þá í 2 mín. í við­bót því þessi hnoðun er það sem gerir brauðið loft­kennt og létt. Setjið deigið í stóran bolta og undir rakt stykki. Komið því fyrir á volgum stað og leyfið því að hef­ast í 40 mín. eða þar til það hefur tvö­fald­ast í stærð.

Skiptið deig­inu í 18 jafn­stóran hluta, best er að nota vigt til þess. Notið hveiti undir svo deigið fest­ist ekki við. Leyfið þeim að hvíla aftur í 15 mín. með röku stykki yfir.
Rúllið deig­kúlu upp í langan orm og vefjið utan um pyls­una. Leggið á ofn­plötu og leyfið því að hvíla aftur í klst. Passið að hafa langt bil á milli því þetta á eftir að tvö­fald­ast í stærð.
Hægt er að grilla pylsu­vafn­ing­ana á grill­bakka eða baka þá í ofni. Hafið ofn­inn í 180°C eða grillið í 190°C á óbeinum hita þannig það sé bara kveikt á hlið­ar­brenn­ur­unum en ekki beint undir brauð­unum. Bakið í 30-35 mín. eða þar til pylsu­vafn­ing­arnir eru vel bak­aðir.
Gott er að setja tómatsósu og sinnep í skál og bera með.

Smjörbolla

100 g smjör
50 g hveiti
Bræðið smjörið og bætið hveit­inu út í, sláið saman þar til blandan helst saman og myndar bollu.

Umsjón / Hinrik Carl Ell­erts­son
Myndir / Karl Pet­ers­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni