Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Avókadó er hollt og hentar vel í fjölbreyttar uppskriftir

Hildur Rut Ingi­mars­dóttir gaf út mat­reiðslu­bók­ina Avocado fyrir jólin 2016. Við fengum Hildi Rut til að deila nokkrum freist­andi upp­skriftum sem allar eiga það sam­eig­in­legt að inni­halda avókadó.

Avókadó er hollt og hentar vel í fjölbreyttar uppskriftir
Hildur skrifar um mat inni á fram­inn.is. ||Súkkulaði- og avóka­dó­mús.|

Áhugi Hildar á elda­mennsku kvikn­aði snemma en útrás­ina fyrir mat­ar­ást­ina fær hún í gegnum störf sín á sam­fé­lags­miðlum. Tildrög bók­ar­innar Avocado spruttu þó upp í tengslum við loka­verk­efni í marg­miðl­un­ar­hönnun við Borg­ar­holts­skóla.

„Loka­verk­efnið var að gera bók en þar sem ég hef mik­inn áhuga á mat­reiðslu ákvað ég að gera mat­reiðslu­bók. Í fyrstu var ekki ætl­unin að gefa bók­ina út en kenn­arar mínir hvöttu mig ein­dregið til þess. En ég hef mik­inn áhuga á graf­ískri hönnun, það var aðal­at­riðið með verk­efn­inu. Ég ákvað snemma að láta bók­ina hverf­ast í kringum eitt hrá­efni og avókadó er í sér­stöku upp­á­haldi. Ávöxt­ur­inn er ekki bara góður heldur er hann líka ein­stak­lega hollur og hentar í margar upp­skriftir. Það eru margir sem þekkja ekki þá mögu­leika sem ávöxt­ur­inn býður upp á og mig lang­aði að deila þeim með öðrum. Í bók­inni eru góðar og auð­veldar upp­skriftir sem allar eiga það sam­eig­in­legt að inni­halda avókadó í ein­hverri mynd.“

Uppskriftir

Hummus með avókadó og feta­osti

Hummus með feta­osti og avókadó. Til­val­inn á hrökk­brauðið og góður sem ídýfa fyrir græn­meti. Ég smyr þessum hummus stundum á faj­itas-pönnu­kökur og set þá kjúkling og græn­meti á.

Hummus með avókadó og feta­osti.

½ dós kjúklinga­baunir
½ msk. tahini
1 avókadó
safi úr 1 límónu
1 dl feta­ost­skubbur
3 msk. ólífu­olía
1 msk. ferskt jala­peno
salt og pipar

Setjið allt hrá­efnið í mat­vinnslu­vél og blandið mjög vel saman. Ég nota litla mat­vinnslu­vél sem töfra­sproti fylgir með en þið getið líka notað bland­ara eða töfra­sprot­ann sjálfan.

Fiski-taco með avóka­dósalsa og límónusósu

Þetta er einn af mínum upp­á­halds­réttum. Ég geri oft tacos og þá finnst mér gott að nota risa­rækjur, bleikju eða löngu og það er alltaf fullt af avókadó með. Einnig finnst mér gott að grilla fisk­inn.

Fiski-taco með avóka­dósalsa og límónusósu.

Fyrir 4

bleikju­flak
400 g risa­rækjur
Explos­ion taco-krydd frá Santa Maria
salt og pipar
olía
mjúkar tortillur, minni gerðin
2 avókadó
1 tómatur
2 msk. kórí­ander
¼–½ ferskt rauð­kál
¼-½ hvít­kál
rjóma­ostur

Límónusósa

1 dl sýrður rjómi
½ dl majónes
safi úr 1 límónu
½ tsk. rif­inn límónu­börkur
pipar og salt

Blandið öllu hrá­efn­inu vel saman og sósan er til­búin.

Hitið ofn­inn í 200°C. Leggið bleikju­flakið á bök­un­arplötu klædda smjör­pappír. Kryddið með Explos­ion taco-krydd­inu en farið var­lega í það því það er sterkt. Saltið og piprið eftir smekk.

Bakið bleikj­una í u.þ.b. 10 mín­útur og skerið hana svo í bita.

Skolið risa­rækj­urnar og kryddið með Explos­ion taco-krydd­inu. Hitið olíu á pönnu og steikið risa­rækj­urnar þar til að þær eru orðnar bleikar, passið að steikja þær ekki of mikið.

Skerið rauð­kál og hvít­kál í strimla og blandið saman. Skerið avókadó, tómata og kórí­ander smátt og blandið saman. Brjótið pönnu­kök­urnar var­lega saman og raðið þeim á ofn­grind þannig að þær hangi niður og myndi taco-skeljar.

Hitið í 2-3 mín­útur í ofni við 200°C.

Smyrjið pönnu­kök­urnar með rjóma­osti öðrum megin og setjið sal­atið á þær. Setjið avóka­dósalsa og raðið að lokum bleikju­bit­unum eða risa­rækj­unum ofan á. Setjið límónusós­una yfir og skreytið með kórí­ander.

Súkkulaði- og avóka­dó­mús

Þessi mús kemur á óvart. Hún er svaka­lega góm­sæt. Ef ykkur langar í eitt­hvað sem er sætt en samt í holl­ari kant­inum er þetta málið. Það er líka hægt að skipta út suðusúkkulað­inu fyrir 70% súkkulaði og þá er hún enn þá holl­ari. Ég ber hana fram með kókosrjóma.

Súkkulaði- og avóka­dó­mús.

Fyrir 2-3

2 avókadó
110 g suðusúkkulaði
3 msk. kókos­olía
1 ½ msk. kakó­duft
2 msk. hun­ang
kókosrjómi

Bræðið súkkulaðið ásamt kókosol­í­unni yfir vatns­baði. Á meðan setjið þið avókadó í mat­vinnslu­vél, notið töfra­sprota eða bland­ara og hrærið til það er orðið silki­mjúkt.

Þegar súkkulaðið og kókosol­ían hefur bráðnað þá blandið þið öllu saman með töfra­sprot­anum. Mjög gott að bera fram með ferskum berjum og kókosrjóma eða venju­legum þeyttum rjóma.

Kókosrjómi

Það er hægt að kaupa hann í fernum og einnig er hægt að kaupa kókos­mjólk í dós. Kælið hana vel og hellið kókos­vatn­inu af. Sniðugt að geyma það og nota svo seinna í boost. Þeytið kókosrjó­mann þar til hann verður eins og þeyttur rjómi.

Myndir / Hildur Rut Ingi­mars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni