Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nýjar tillögur um lög um vatnsréttindi tilbúnar um áramót

Vatn er ein af mikil­vægustu auðlindum jarðar og sífellt heyrast fleiri raddir sem benda á að innan fárra ára gætu vatns­auðlindir orðið jafn­efnahags­lega mikil­vægar og olíu­auðlindir eru nú. Mikilvægi þess að tryggja samfé­lags­legt eignar­hald á vatni hefur því reglulega ratað í umræðuna, bæði erlendis og á Íslandi. Samþykkt sem Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér árið 2010 skilgreinir aðgang að hreinu vatni sem mann­réttindi, en enn er langt frá því að þeir sem nýta vatns­uppsprettur sem gróðaleið fari eftir þeirri samþykkt. En hvað er til ráða og hvar er Ísland statt í þessu mikilvæga máli?

|Forsætisráðherra Íslands
|For­sæt­is­ráð­herra Íslands
For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Í íslenskum lögum um nýtingu vatns er ríki og sveitar­félögum tryggður réttur til að seilast í vatn á landi í einkaeigu en land­eigendur eiga þá rétt á bótum fyrir þá nýtingu, hvort sem um er að ræða lagningu vatns­veitna eða til nýtingar í orku­framleiðslu. Ef ekki semst um greiðslu, þá er heimild til þess í lögum að ráðherra beiti sérstökum úrræðum um eignarnám.

Forsætis­ráðherra Íslands, Katrín Jakobs­dóttir, lýsti því yfir í viðtali við Frjálsa verslun í ágúst á þessu ári að aukinn áhugi auðmanna á að kaupa jarðir á Íslandi kunni að tengjast vatns­réttindum og öðrum verðmætum hlunnindum í tengslum við loftslags­breytingar. Þetta hafi menn ekki séð fyrir við gerð gildandi laga frá 2004 og því sé verið að vinna tillögur að hugsanlegum breytingum á lögum og reglu­verki um landakaup.

„Á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er unnið að heild­ar­end­ur­skoðun lög­gjafar um jarðir og fast­eignir og ég á von á að þær til­lögur liggi fyrir öðru hvorum megin við ára­mót.“

Í skriflegu svari forsætis­ráðherra við fyrir­spurn Mannlífs vegna málsins segir: „Það liggur fyrir bæði pólitískur og almennur vilji til að setja skýrar laga­heimildir þannig að unnt sé að takmarka landa- og jarðakaup, t.d. til að koma í veg fyrir samþjöppun eignar­halds á landi. Á vegum forsætis­ráðuneytisins er unnið að heildar­endurskoðun löggjafar um jarðir og fasteignir og ég á von á að þær tillögur liggi fyrir öðru hvorum megin við áramót. Á alþjóða­vettvangi sjáum við aukna ásælni í land og þau réttindi sem fylgja landareignum, þar á meðal möguleg vatns­réttindi. Ég tel að við séum lánsöm að hafa sett þjóðlendu­lögin á sínum tíma en vegna þeirra eru 40% af landinu í almanna­eigu og þar með auðlindirnar sem þar eru. Bæði stjórnar­skrá og EES-samningurinn veita svigrúm til að setja reglur um eignar­hald og nýtingu fasteigna í þágu almannahags­muna og ýmsar leiðir eru færar í þeim efnum.“

Grunsemdir um að erlendir auðmenn ásælist vatnsréttindi

Ljóst er að vaxandi óánægju gætir með síaukin landakaup erlendra auðmanna hérlendis og á aðalfundi Lands­sambands veiði­félaga, sem haldinn var á Sauðár­króki 13. júní síðastliðinn, var Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnars­stöðum í Þistil­firði, ómyrkur í máli um þær grun­semdir að þeir ásælist vatns­réttindin og lífs­nauðsynlegt sé að ríkis­valdið grípi inn í sem fyrst.

Jóhannes gerir meðal annars kaup breska auðkýfingsins James Ratcliffe á meirihluta í Gríms­stöðum á Fjöllum, með Jökulsá á Fjöllum innanborðs, að umtals­efni og átelur stjórn­völd fyrir að hafa ekki gripið inn í til að stöðva þau.

„Gríms­staðir á Fjöllum er stærsta einstaka fersksvatnsforðabúr í Evrópu. Hafi einhvern tíma verið ástæða fyrir ríkið að koma að málum þá var það við sölu á þeirri jörð. Ríkið átti síðan einfald­lega að lýsa þetta land sem þjóðlendu,“ segir Jóhannes.

Harðar tekist á um nýtingu vatns víða í heiminum
Þessi umræða er langt því frá bundin við Ísland og er sífellt harðar tekist á um nýtingu vatns og vatns­réttindi víða í heiminum. Alþjóð­lega stór­fyrirtækið Nestlé var til dæmis nýverið harðlega gagnrýnt vegna fyrir­ætlana um að nýta daglega yfir milljón gallon af vatni úr Santa Fe-ánni í Flórída og tappa því á flöskur í hagnaðar­skyni. Gagn­rýnendur óttast að vatnsuppsrettan þoli ekki slíka nýtingu eins og fram kom í ítarlegri úttekt breska blaðsins The Guardian.

Peter Brabeck,.

Þá vöktu ummæli fyrr­verandi stjórnar­manns Nestlé, Peter Brabeck, gríðar­lega reiði þegar hann gerði lítið úr því sjónar­miði að aðgangur að heilnæmu drykkjar­vatni ætti að vera skilgreindur sem sjálfsögð mann­réttindi. Hann sagði að vatn væri eins og hver önnur neyslu­vara og ætti að hafa markaðs­virði.

Ummæli Brabecks eru í hrópandi mótsögn við samþykkt Sameinuðu þjóðanna um að allir, karlar, konur og börn, eigi að hafa aðgang að hreinu drykkjar­vatni og öruggri hreinlætis­aðstöðu.

Í greinar­gerð sem Sameinuðu þjóðirnar tóku saman í tilefni alþjóða­dags vatnsins, sem haldin er í mars á hverju ári, kemur fram að yfir tveir milljarðar manna lifi í dag án öruggs neyslu­vatns og allt að fjórir milljarðar upplifi alvarlegan vatns­skort að minnsta kosti einn mánuð á ári. Yfir sjö hundruð börn undir fimm ára aldri deyja daglega vegna kvilla sem tengjast óöruggu drykkjar­vatni og ófullnægjandi hreinlætis­aðstöðu. Ef fram heldur sem horfir er talið að árið 2030 muni um sjö hundruð milljónir manna um heim allan hafa þurft að flýja heimkynni sín vegna vatns­skorts.

Mynd / Rakel Ósk Sigurðar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto