Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er rússnesk rúlletta að taka inn þessi hormón“

Vin­sældir svo­kall­aðra vaxt­ar­horm­óna (HGH, human growth hor­mone) hafa auk­ist jafnt og þétt á Íslandi en efnið hefur verið vin­sælt um ára­bil í Hollywood á meðal fræga fólks­ins sem notar það til að við­halda æsku­ljóma sínum. Sér­fræð­ingar vara við alvar­legum afleið­ingum ef vaxt­ar­hormón eru notuð án eft­ir­lits.

„Það er rússnesk rúlletta að taka inn þessi hormón“
|||Ýmsar sögu­sagnir eru á kreiki um að þekkt fólk í skemmana­brans­anum noti vaxt­ar­hormón til að við­halda æsku­ljóma sínum. Sylv­ester Stallone hefur til að mynda geng­ist við því að nota slík hormón.

Birgir Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri Lyfja­eft­ir­lits Íslands (Anti-Doping Iceland), stað­festir í sam­tali við Mannlíf að notkun vaxt­ar­horm­óna hafi auk­ist hér á landi en tekur fram að mis­notkun þess sé ekki jafn­mikil og á ana­ból­ískum sterum. „Maður heyrir að það séu margir að koma með vaxta­hormón til lands­ins; fólk seg­ist vera með 30 daga skammt, sem er leyfi­legur skammtur, upp­á­skrif­aðan af læknum úti og að horm­ónin séu til einka­neyslu. Við nán­ari athugun er hins vegar að koma í ljós að skammt­arnir eru sumir hverjir stærri, sem stang­ast á við lög,“ segir Birgir.

Birgir Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri Lyfja­eft­ir­lits Íslands (Anti-Doping Iceland).

„Ekkert mál að panta þetta á Netinu“

Að sögn Birgis má meðal ann­ars rekja vin­sældir vaxt­ar­horm­óna til útlits­dýrk­unar í sam­fé­lag­inu og segir hann að not­endur séu fyrst og fremst ungt fólk sem vill líta betur út. „Byrj­un­ar­ald­ur­inn fær­ist alltaf neðar og neðar. Það er auð­vitað viss sam­fé­lags­legur þrýst­ingur á ungt fólk að líta út á ákveð­inn hátt, útlits­dýrk­unin sem er í gangi í sam­fé­lag­inu virð­ist hafa einna mest áhrif á það og ýta undir neyslu ólög­legra frammi­stöðu­bæt­andi efna (performance enhancing drugs) og lyfja­mis­notkun, þar á meðal vaxt­ar­horm­óna, en það er vel þekkt að fólk tekur vaxt­ar­hormón til að bæta útlitið.“

„Við erum eyja en það er ekk­ert mál að panta þetta á Netinu og fá send­ingu næsta dag.“

Þá seg­ist Birgir vita til þess að fólk sé í auknum mæli að flytja vaxt­ar­hormón ólög­lega til lands­ins, lík­lega frá Evrópu og að fram­boðið sé sífellt að aukast. „Við erum eyja en það er ekk­ert mál að panta þetta á Netinu og fá send­ingu næsta dag,“ segir hann og bætir við að eft­ir­lits­laus notkun á vaxt­ar­horm­ónum geti valdið ýmsum alvar­legum auka­verk­unum sem geta komið fram löngu síðar. Í því sam­hengi má nefna að mögu­legar auka­verk­anir eru m.a. vöxtur innri líf­færa og upp­safn­aður vefja­vökvi sem getur leitt til hjarta­bil­unar. Þá getur lang­tíma­notkun leitt til auk­innar hættu á krabba­meini, sér­stak­lega í melt­ing­ar­veg­inum. Það er rúss­nesk rúl­letta að taka inn þessi hormón.“

Notað sem yngingarlyf

„Fólk er að taka horm­ónin til að bæta útlitið, til að vera flott og meira fit. Það er að nota þau sem yng­ing­ar­lyf. Svo er fólk í íþróttum líka að taka þessi hormón, fólk sem er nota þau til flýta fyrir bata eftir meiðsli, til að flýta fyrir end­ur­nýjun frumna.“ Þetta segir við­mæl­andi Mannlífs sem þekkir til notk­unar vaxt­ar­horm­óna meðal fólks á miðjum aldri en vill ekki koma fram undir nafni. Við­kom­andi segir að fólk geymi efnið í ísskápnum hjá sér og sprauti sig með því dag­lega og full­yrði að það sjái árangur af notkun þess. „Fólk talar um að notkun þess­ara horm­óna sé að skila árangri, að notkun þeirra hægi til dæmis á öldrun, húðin sé betri fyrir vikið, minnið sé betra og þar fram eftir götum,“ segir hann og bætir við að fólk sé almennt með­vitað um hugs­an­legar auka­verk­anir en það sé engin hindrun. „Fólk er með­vitað um hætt­una en lætur það ekki stoppa sig.“

Keypt á svörtum markaði

Heim­ildir Mannlífs herma að 30 daga skammtur kosti á bil­inu 100–200 þús­und krónur. Það er í sam­ræmi við þær tölur sem hafa áður verið nefndar í fjöl­miðlum á Íslandi. Í við­tali við Guðmund Ómarsson á Vísi árið 2015 lýsir Guð­mundur til dæmis því hvernig hann keypti vaxt­ar­hormón á svörtum mark­aði eftir að hafa veikst af myglu­sveppi. Guð­mundur greiddi 150 þús­und fyrir mán­að­ar­skammt og sagði það vera hverrar krónu virði því hann hafi náð tals­verðum bata eftir notkun efn­is­ins. Hann reyndi að fá vaxt­ar­hormón upp­á­skrifuð hjá lækni en án árang­urs.

Vegna þess að nátt­úru­leg HGH-gildi lík­am­ans lækka með aldr­inum hafa sumir svo­kall­aðir öldr­un­ar­sér­fræð­ingar full­yrt að HGH-vörur geti snúið við ald­urstengdri lík­am­legri hnignun en tekið skal fram að slíkar full­yrð­ingar eru ósann­aðar. Notkun HGH í þeim til­gangi að hægja á öldrun er enda ekki sam­þykkt af Banda­ríska lyfja­eft­ir­lit­inu (FDA).

Fullyrðingar um undraefni sem „hægja á öldrun“ varasamar

Finnbogi Rútur Hálf­dan­ar­son lyfja­fræð­ingur skrifar á doktor.is að skortur á vaxt­ar­horm­ónum (HGH) valdi því að börn vaxi ekki eðli­lega og að hjá full­orðnum geti lyfið haft jákvæð áhrif á lík­ams­vöxt ef um skort á horm­ón­inu er að ræða. Óvíst sé hins vegar hvort það hafi afger­andi jákvæð áhrif á heil­brigða ein­stak­linga. Vaxt­ar­hormón er lyf­seð­il­skylt lyf og mega ein­göngu sér­fræð­ingar í efna­skipta- og inn­kirtla­sjúk­dómum eða barna­efna­skipta­sjúk­dómum ávísa því.

Vaxt­ar­hormón er mjög við­kvæmt í lausn og brotnar hratt niður. Það er því alltaf afgreitt sem þurr­efni og vökv­anum blandað í skömmu fyrir notkun og verður að gefa lyfið inn sem stungu­lyf þar sem það brotnar niður í melt­ing­ar­færum.

„Vörur sem aug­lýstar eru á erlendum heima­síðum á Netinu og kallað Human Growth Hormone inni­heldur mjög lík­lega ekki neitt eig­in­legt vaxt­ar­hormón. Þar fyrir utan held ég að allir ættu að taka var­lega full­yrð­ingum um undra­efni sem „hægja á öldrun, minnka hrukkur o.s.frv.“ Und­an­tekn­ing­ar­lítið er þar um að ræða lof­orð sem ekki er hægt að standa við,“ skrifar Finnbogi.

Þess má geta að notkun vaxt­ar­horm­óna í miklu magni getur leitt til auk­ins hár­vaxtar, meiri svita­mynd­unar og feit­ari húðar. Bein­vöxtur getur auk­ist og tann­los getur átt sér stað. Eyru, hendur og fætur geta stækkað með tím­anum sam­hliða notkun. Vöxtur innri líf­færa og upp­safn­aður vefja­vökvi getur leitt til hjarta­bil­unar. Lang­tíma­notkun getur einnig leitt til auk­innar hættu á krabba­meini, þá einkum í melt­ing­ar­vegi.

Ýmsar sögu­sagnir eru á kreiki um að þekkt fólk í skemmana­brans­anum noti vaxt­ar­hormón til að við­halda æsku­ljóma sínum. Sylv­ester Stallone hefur til að mynda geng­ist við því að nota slík hormón.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi