Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Íslendingar tilbúnir fyrir eitthvað hrekkjavökutengt“

Greta Salóme, söng­kona og fiðlu­leik­ari, heldur nú, þriðja árið í röð, rokktón­leika­sýn­ing­una Halloween Horror Show í sam­starfi við Forte ehf. Fjöldi ann­arra þekktra flytj­enda kemur fram ásamt Gretu og er sýn­ingin frá­bær fyrir unn­endur hrekkja­vök­unnar, bún­inga og rokksöngs.

„Íslendingar tilbúnir fyrir eitthvað hrekkjavökutengt“
Greta Salóme í hrekkja­vöku­gervi.||||

„Sýningin hefur slegið í gegn síð­ustu tvö ár og greini­legt að Íslend­ingar voru til­búnir fyrir eitt­hvað Halloween-tengt. Við erum líka með fleira en bara rokk og sem dæmi tökum við lög úr Rocky Horror og Litlu hryll­ings­búð­inni í klikk­uðum bún­ingi,“ segir Greta Salóme sem hefur yfir­um­sjón með sýn­ing­unni, auk þess að leik­stýra henni og koma fram sjálf. Það er fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Forte ehf. sem stendur að sýn­ing­unni.

„Ég er með ótrú­lega gott fólk með mér og á öllum víg­stöðvum sem hefur hjálpað mér mikið með þessa klikk­uðu hug­mynd. Þar er systir mín fremst í flokki sem og fyr­ir­tækið Swipe sem hafa unnið ótrú­lega gott starf í þessu með mér,“ segir Greta.

Greta stendur þó ekki ein á svið­inu því með henni er val­inn hópur lista­manna. „Flytj­end­urnir í ár eru alveg trylltir í þetta „concept“ eins og ég. Við deilum nátt­úr­lega öll tón­list­ar­á­hug­anum en við veljum hvaða lag hentar hverjum og svo er farið í að finna útlit fyrir hvert lag þannig að allir flytj­end­urnir koma fram í mis­mun­andi bún­ingum og gervum,“ segir Greta. Flytj­end­urnir eru ásamt Gretu, Stebbi Jak, Andrea Gylfa, Svala, Magni, Dagur Sig, Ólafur Egill, Camilla Rut, auk bak­radda, dans­ara, leik­ara og hljóm­sveitar.

Mynd / Aðsend

„Með allt of lítið hjarta fyrir hryllingsmyndir“

„Ég bjó í Banda­ríkj­unum þegar ég var að læra og elska Halloween-hátíð­ina. Svo eftir að ég setti upp sýn­ing­una mína hjá Disney sá ég hvernig þeir tvinn­uðu saman tón­list, tón­leikum og Halloween og fannst skemmti­legt að taka það enn þá lengra og fara í þessa rokktón­leika­sýn­ingu sem Halloween Horror show er. Ég hef alltaf verið mikil leik­hús­mann­eskja og þarna sam­ein­ast leik­hús- og fram­leiðslu­á­hug­inn og svo tón­listin,“ segir Greta. „Ég er með allt of lítið hjarta fyrir hryll­ings­myndir en það eru alveg nokkrar sem standa upp úr. Ég man eftir að hafa séð mynd­ina Signs þegar ég var svona 17 ára og ég held að ég hafi ekki sofið heila nótt síðan.“

Mynd / Aðsend

Háskólabíó verður að allt öðrum heimi

Á sýn­ing­unni er öllu tjaldað til þegar kemur að bún­ingum og segir Greta það í raun­inni þess virði að koma bara til að sjá bún­ing­ana. „Það sem er eig­in­lega geggj­að­ast við þessa sýn­ingu er samt and­dyrið. Það verður búið að skreyta það allt og alls konar verur á sveimi og fólk hefur haft orð á því hvað það hefur verið hissa á hvað það gekk inn í allt annan heim þegar það kom inn í and­dyrið,“ segir Greta og bætir við að stemn­ingin á tón­leik­unum hafi verið ólýs­an­leg.

„Magnað að sjá hvað margir hafa mætt í bún­ingi og tekið þetta alla leið.“

„Fólk er svo til­búið í þetta og hefur staðið stundum heilu sýn­ing­arnar í fílíng og sungið með lög­unum. Það hefur líka verið magnað að sjá hvað margir hafa mætt í bún­ingi og tekið þetta alla leið. En svo er auð­vitað ekk­ert að því heldur að láta hina um bún­ing­ana og koma bara og njóta. Við höfum fengið mjög margar fyr­ir­spurnir í sam­bandi við börn og hvort þau megi koma. Við segjum alltaf það sama, að það sé algjör­lega for­eldra að meta það. Seinni sýn­ingin er klukkan 23 þannig að það er kannski aðeins of seint fyrir lítil hjörtu.“

Mynd / Aðsend

Tvær sýn­ingar verða haldnar laug­ar­dag­inn 26. októ­ber. „Það seld­ist hratt upp á sýn­ing­una þannig að við höfum bætt við auka­sýn­ingu sama kvöld sem verður enn þá hrylli­legri.“

Miðasala fer fram á tix.is.

Greta er núna stödd í Amster­dam á tón­leika­ferða­lagi. „Ég var með tvenna stóra tón­leika í Linda­kirkju á laug­ar­dag­inn og á fullu fyrir það og svo beint upp í vél og út að spila. Svona eru dag­arnir mínir ein­hvern veg­inn allir og ég bíð alltaf eftir að það komi rólegur tími sem kemur svo aldrei. Ég verð með stór verk­efni heima núna í nóv­em­ber og svo með mína eigin jólatón­leika ásamt Daða Frey í Hlégarði og Akur­eyr­ar­kirkju í des­em­ber auk þess að vera gestur hér og þar á öðrum jólatón­leikum,“ segir Greta aðspurð um hvað tekur við eftir sýn­ing­una. „Ég flýg síðan út til Banda­ríkj­anna rétt fyrir jól í sam­starfs­verk­efni með American Ballet Theater og verð að syngja og spila þar yfir jólin. Þannig að það er bara meira en nóg fram undan.“

Mynd / Aðsend
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina