Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Thunberg vegur nettröllin, með sannleikann að vopni

Aðgerða­sinninn Greta Thunberg kom, sá og sigraði heims­byggðina með eldmóð sínum og baráttu­anda. Eins og við var að búast hefur hún í kjölfarið verið nídd og vanvirt á samfélags­miðlum og í fjöl­miðlum. Gagn­rýnendur segja hana strengja­brúðu, lygara, ófríða og geðveika. En hún heldur ótrauð áfram.

Greta Thunberg.
Greta Thunberg.

„Þegar hatarar tala um útlitið þitt eða að þú sért öðruvísi þá þýðir það að þeir hafa ekkert annað að tala um. Og þá veistu að þú ert að sigra!“ sagði aðgerða­sinninn Greta Thunberg á Twitter í byrjun mánaðarins, sem svar við þeirri gagnrýni sem hún hefur mætt frá því hún hóf mótmæli gegn hamfara­hlýnun fyrir um ári.

Í kjölfar ræðu hennar á þingi Sameinuðu þjóðanna á mánudag, þar sem hún las yfir hausa­mótum leiðtoga heims, hefur svívirðan sem hún hefur mátt þola í netheimum og víðar aukist til muna. Á samfélags­miðlum hefur Thunberg, sem er 16 ára, verið kölluð hóra og strengja­brúða, ýmist foreldra sinna eða valda­mikilla hagsmuna­aðila, og í fjöl­miðlum hefur hún verið sögð geðveik vegna Asperger-greiningar sinnar og sökuð um að valda heilli kynslóð barna vanlíðan með stað­hæfingum sínum um loftslags­vána.

„Þegar hat­arar tala um útlitið þitt eða að þú sért öðru­vísi þá þýðir það að þeir hafa ekk­ert annað að tala um. Og þá veistu að þú ert að sigra!“

„Þið hafið stolið draumum mínum og barnæsku með innan­tómum orðum ykkar,“ sagði hún á þinginu eins og frægt er orðið. „Augu allra framtíðar­kynslóða eru á ykkur. Og ef þið veljið að bregðast okkur þá segi ég: við munum aldrei fyrirgefa ykkur,“ sagði Thunberg, sem sigldi á umhverfis­vænum bát yfir Atlantshafið til að flytja ræðu sína. Flestir hlóðu lofi á hinn unga eldhuga, sem á milljónir aðdáenda um allan heim, en aðrir voru fljótir að finna að afdráttar­lausri nálgun Thunberg, sem hefur ítrekað að hún sé aðeins að benda á vísindalegar stað­reyndir.

Scott Morrison, forsætis­ráðherra Ástralíu, sagðist skilja að umræðan um loftslags­breytingar vekti sterkar tilfinningar en ítrekaði að það væri mikilvægt að setja hlutina í samhengi og fullvissa ungu kynslóðina um að framtíðin væri björt. „Ég vil ekki að börnin okkar séu full kvíða vegna þessara mála,“ sagði hann meðal annars, spurður um ræðu Thunberg á miðvikudaginn. Morrison hafði áður lýst yfir áhyggjum vegna skróp­mótmæla Thunberg og kallaði í fyrra eftir „aukinni mætingu í skóla, minni aðgerðaisma.“

Margir gagn­rýnendur voru orðljótari. Michael Knowles, álits­gjafi hjá Fox News, kallaði Thunberg „andlega veikt sænskt barn“.

Stjórnmála­spekingurinn Dinesh D‘Souza gekk jafnvel lengra og birti tvær myndir hlið við hlið á Twitter; eina af Thunberg með flettur í hárinu og aðra af ljós­hærðri stúlku, sömuleiðis með fléttur, með nasista­fánann blaktandi í bakgrunni.

Breski fjölmiðla­maðurinn Piers Morgan sagði Thunberg hafa rétt fyrir sér um þróunina í loftslags­málum en lét að því liggja að eldmóður hennar væri afleiðing Asperger-heilkennisins, sem hún var greind með fyrir um fjórum árum. „Hvað vísindi varðar er ég sammála henni: loftslags­breytingar eru raun­veruleg og yfir­vofandi ógn og leiðtogar okkar verða að gera meira til að berjast gegn þeim. En dómsdags orðræða hennar hefur valdið ofsa­hræðslu hjá milljónum ungra einstaklinga, upp að því marki að umhverfiskvíði er að aukast svo um munar,“ sagði Morgan í Daily Mail.

„Ég segi bara það sem er nauð­syn­legt að segja.“

Verst hefur umræðan verið á samfélags­miðlum, eins og dæmin hér til hliðar sýna.
Thunberg virðist hafa þykkan skráp. Hún hefur stað­fastlega neitað því að hún gagni erinda full­orðinna og skaut listilega til baka á Donald Trump Bandaríkja­forseta þegar hún gerði kaldhæðnis­lega lýsingu hans að sinni á Twitter: „Hamingjusöm stúlka sem hlakkar til bjartrar og dásamlegrar framtíðar.“

Telja má líklegt að Thunberg sé allt of önnum kafin til að velta sér upp úr gagn­rýninni en eins manns mótmælin sem hún hóf fyrir framan sænska þinghúsið í fyrra hafa nú vaxið í milljóna fjölda­hreyfingu. Fjórar milljónir manna tóku þátt í skróp­mótmælum síðasta föstudag og samkvæmt Twitter-aðgangi Thunberg hafa 6.383 viðburðir í 170 löndum verið skipulagðir í dag. Þá hafa fjöl­miðlar greint frá því að Thunberg sé uppáhald veðbankanna til að hljóta friðar­verðlaun Nóbels. Sjálf hefur hún gert lítið úr sínu framlagi og segir raunar mest lítið utan sviðs­ljóssins, eins og viðmælendur hennar hafa tekið eftir. „Ég segi bara það sem er nauðsynlegt að segja.“

Hér fyrir neðan má sjá brot af því sem tíst hefur verið um Gretu Thunberg að undan­förnu.

https://twitter.com/meme_matty/status/1176300617326895105

https://twitter.com/HealthyWorld12/status/1177153834893926400

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim