Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ísinn í Efstadal II hafður fyrir rangri sök

„Beinn vegur fram undan,“ segir Björgvin Jóhann­es­son ferða­þjón­ustu­bóndi í Efstadal II.

Ísinn í Efstadal II hafður fyrir rangri sök
Björgvin Jóhann­es­son

Ferða­þjón­ustu­bændur að Efstadal II hafa unnið hörðum höndum að því koma starf­semi í eðli­legt form eftir að E. coli-far­aldur sem rak­inn var til bæj­ar­ins braust út. Grunur lék á að smitið hefði komið úr ís sem fram­leiddur er á staðnum en börnin sem smit­uð­ust höfðu öll borðað ís á bænum. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá MAST er ólík­legt að ísinn hafi verið smit­vald­ur­inn en MAST hefur tekið yfir 40 sýni í sam­starfi við rekstr­ar­að­ila Efsta­dals II. Sýnin voru tekin af mat­vælum og ísgerð og 25 sýni af dýr­unum og umhverfi þeirra. Sú gerð E. coli (af sermis­gerð­inni 0026 ) sem fólkið greind­ist með fannst ekki í ísnum.

Björgvin Jóhann­es­son, einn af eig­endum ferða­þjón­ustu­bæj­ar­ins, segir í sam­tali við Mannlíf að far­ald­ur­inn hafi verið mikið áfall fyrir alla sem að rekstr­inum koma. Hann segir jafn­framt að sam­starf við eft­ir­lits­að­ila hafi gengið vel og nú verði að líta bjart fram á veg­inn.
„Við erum að fara taka lítil skref í þá átt að koma okkur af stað aftur. Ísbúðin hefur verið tekin í gegn en við gerðum smá­vegis breyt­ingar á henni,“ segir Björgvin en ísbúðin var opnuð á ný 1. ágúst eftir að grænt ljós fékkst frá eft­ir­lits­að­ilum. „Við erum smátt og smátt að koma fram­leiðslu á okkar ís af stað aftur. Það gengur bara bæri­lega. Það er ekki hægt að segja annað en það að það sé mjög gott sam­starf á milli okkar og þess­ara stofn­ana og þær hafa hjálpað okkur í þessu ferli og hvernig við eigum að haga okkur. Vissu­lega eru þetta aðstæður sem margir þekkja ekki þannig að það eru allir að læra af þessu en sam­starfið hefur gengið vel.“

Ferða­þjón­ustan Efstadal II. Mynd/Unnur Magna

Aðspurður segir Björgvin að hann telji að smitið hafi borist úr kálfa­stíu á bænum en ekki úr ísnum. „Bakt­er­ían sem fannst í þeim sem veikt­ust fannst hvað sterk­ust í kálfa­stí­unni hjá okkur en hún hefur aldrei fund­ist í ís eða öðrum mat­vælum frá okkur. Það var lengi grunur um að smitið hafi borist úr ísnum, upp í munn og niður í maga en það hefur sýnt sig að ekki þarf stóran snerti­flöt til þess að smit­ast,“ útskýrir hann og bætir við að mik­ill umgangur gesta hafi verið í kálfa­stí­unni. Þar hafi verið vin­sælt að klappa dýr­unum og jafn­vel að leyfa þeim að sleikja hendur. „Ein­hverjir klappa dýrum á meðan aðrir snerta ein­hverja hluti og koma svo við afgreiðslu­borð eða annað slíkt. Það þarf ekki meira en það.“

„Okkur er gríð­ar­lega létt að heyra að allir sem veikt­ust séu að ná heilsu og að börnin eru komin heim af spít­ala.“

Kálfa­stí­unni hefur verið lokað og verður lík­lega ekki opnuð á ný í sama formi. „Við erum búin að loka á alla snert­ingu en það er enn þá hægt að horfa á dýrin í gegnum glugga þannig að það verður meiri sýni­leiki en minni snert­ing,“ segir Björgvin sem telur að nú sé búið að úti­loka að smit geti borist út stí­unni. Hann segir að það sé mik­ill léttir að börnin sem veikt­ust séu á bata­vegi. „Okkur er gríð­ar­lega létt að heyra að allir sem veikt­ust eru að ná heilsu og að börnin eru komin heim af spít­ala. Það er auð­vitað aðal­at­riðið í öllu þessu ferli. Okkar áfall og þær breyt­ingar sem við höfum þurft að gera og aðlaga rekst­ur­inn að skiptir minna máli. En þegar við fréttum það að allir væru að ná heilsu þá er þetta bara beinn vegur fram undan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ