Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gin rennur ekki bara ljúflega niður, það er líka gaman að lesa sögur af því

G&T, maður er hættur að tala um „gin og tónik“, er vin­sælt sem aldrei fyrr og und­an­farin ár hefur átt sér stað svo­lítil bylt­ing í kringum þennan vin­sæla drykk. Fjöl­breytnin er nú miklu meiri en áður þegar ein­ungis nokkur merki á mark­aðnum voru það eina sem fékkst.

Gin rennur ekki bara ljúflega niður, það er líka gaman að lesa sögur af því

Miklar hefðir eru í kringum gin og þekkt er sagan um tónik með kínín sem átti að vera gott gegn malaríu en til að gera það þol­an­legt var gini blandað saman við það. Í hugum margra er fátt breskara en G&T þegar kemur að því sem var kallað „long drink“. Samt sem áður var gin ekki breskt í upp­hafi, heldur hol­lenskt og liggur merki­leg saga á bak við nafnið. Hol­lend­ingar voru fyrst og fremst sjó­farar og versl­un­ar­menn og höfðu lært af már­unum á Spáni að eima vín, í upp­hafi til að leysa virk efni lækn­inga­jurta og gera þau virk­ari.

Fyrst er eini­berja­brenni­vín nefnt til sög­unnar á 13. öld og er það tengt við eig­in­leika eini­berja sem menn þekktu vel, meðal ann­ars fyrir róandi eig­in­leika sem gögn­uð­ust gegn hita­köstum. Þessi þekk­ing nýtt­ist enn með góðu móti þegar stríð og átök á milli kon­ungs­ríkja geisuðu á 15. og 16. öld, sér­stak­lega á milli Hol­lend­inga, Eng­lend­inga og Frakka – og var fram­leiðsla gins alfarið í höndum aðila í Hollandi fram að 17. öld. Þangað til Vil­hjálmur frá Orange, sem fædd­ist sem prins í Hollandi, tók yfir kon­ungs­dæmið í Englandi, Skotlandi og Írlandi árið 1689. Gin fylgdi honum yfir Ermar­sundið og ekki var aftur snúið, því það varð strax vin­sælt og fljótt einn af aðal­drykkjum Eng­lend­inga, en þá ekki lengur sem lækn­inga­blanda, heldur sem ódýr vímu­gjafi fyrir fátæk­asta hóp Breta, og gæðin voru léleg.

Gin­drykkja var orðin svo mikið heilsu­fars­legt og sam­fé­lags­legt vanda­mál í borg­inni að það kall­aði á lög­gjöf sem beind­ist ein­göngu að gini.

Hægt var að fram­leiða gin án þess að hafa sér­stakt leyfi til þess, og á sama tíma (það var jú stríð við Frakk­land) voru him­inhá gjöld lögð á franskt kon­íak. Í byrjun 18. aldar, voru margar litlar gin­búðir á götum Lundúna sem tóku við byggi sem var ekki af nógu góðum gæðum, til að brugga bjór úr, en hent­aði vel í gin­brugg­tækin. Svo var gin, sem mátti lög­lega eima í heima­húsi, bragð­bætt með ýmsu sem þætti ekki drykkj­ar­hæft í dag eins og terpent­ínu (trjá­kvoðu­bragð), brenni­steins­sýru (gerir gin sæt­ara) og ýmsu öðru. Gin­drykkja var orðin svo mikið heilsu­fars­legt og sam­fé­lags­legt vanda­mál í borg­inni að það kall­aði á lög­gjöf sem beind­ist ein­göngu að gini. Sett voru lög, svokölluð „Gin Act“, árið 1736 en þá var settur hár skattur á ginið sem olli alls­herjar upp­þoti á götum Lundúna og smám saman lækk­uðu skatt­arnir og voru felldir niður árið 1742.

Myndin Gin Lane eftir William Hogarth.

Önnur Gin Act-lög voru sett árið 1751 sem virk­uðu betur þar sem fram­leið­endur máttu ein­ungis selja smá­sölu­að­ilum með til­tekið leyfi. Á þeim tíma var samt hægt að fá gin sem var ólög­lega fram­leitt og ódýr­ara. Lítið fór fyrir afgreiðslulúg­unni þar sem ólög­lega ginið fékkst en það var merkt með katt­ar­spori – þaðan kemur nafnið Old Tom-gin sem hefur svo fest sig við ákveðna sæt­ari teg­und af gini.

Gin­teg­und­irnar eru margar, London Dry er langal­geng­ast, svo distillef-gin. Old Tom er að koma aftur en Himbrimi er einmitt dæmi um slíkt hér heima en það er með jurta­blöndu, og svo hafa nýlega komið nýir straumar þar sem gin frá örbrugg­húsum er bragð­bætt með jurtum og eimað eins og kon­íak eða víski. Samkvæmt lögum má kalla gin alkó­hól sem er eimað úr land­bún­að­ar­af­urðum, áber­andi bragð­bætt með eini­berjum, og er minnst 37,5% í ESB og 40% í Banda­ríkj­unum. Gin er nú fram­leitt um allan heim en í Hollandi og Belgíu heitir það enn génever og er einmitt oft nefnt afi gins­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni