Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Arnar lýsir einmanaleikanum sem hrjáði hann í samkomubanninu – „Setti upp gleðigrímuna og lét eins og allt væri í lagi“

Arnar lýsir einmanaleikanum sem hrjáði hann í samkomubanninu – „Setti upp gleðigrímuna og lét eins og allt væri í lagi“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Arnar Sveinn Geirsson skrifar um ein­mana­leika í sinn nýjasta pistil sem hann birtir á Vísi. Hann skrifar um áhrif sam­komu­banns­ins á líðan sína.

Hann segir að í fyrstu hafi sam­komu­bannið og aukin heima­vera haft lítil áhrif á hann. „En eftir því sem dög­unum fjölg­aði í þessu ástandi fór ég að finna fyrir til­finn­ingu. Til­finn­ingu sem ég kann­að­ist við, en var samt ekki viss síðan hvenær. Til­finn­ingin sem ég fann fyrir var ein­mana­leiki. Hún lædd­ist aftan að mér og á örfáum dögum var hún orðin ansi fyr­ir­ferða­mikil,“ skrifar Arnar.

Hann segir flesta kann­ast við þessa til­finn­ingu en fæsta vilja tala opin­skátt um hana. Hann segir ákveðið tabú að vera ein­mana í sam­fé­lagi þar sem allt þýtur áfram á ljós­hraða. Hann segir skömm oft fylgja ein­mana­leika.

„Við skömm­umst okkar oftar en ekki fyrir að finna fyrir ein­mana­leika – okkur líður eins og fólki líki ekki við okkur eða að það sé eitt­hvað að okkur. Ef við erum ein­mana hlýtur það að þýða að við eigum ekki nógu marga að eða líf okkar sé ekki nægi­lega spenn­andi. Það gerir það svo að verkum að við eigum erfitt með að við­ur­kenna það fyrir öðrum og jafn­vel fyrir okkur sjálfum.“

Arnar segir frá því þegar hann „lenti á vegg“ í byrjun árs 2018. „Allt í einu virk­aði ekki að fara að sofa leiður og brot­inn og vakna glaður. Allt í einu gat ég ekki haldið áfram eins og ekk­ert hefði í skorist. Allt í einu þurfti ég að horfast í augu við það að mann­eskjan sem ég hafði keppst við að vera væri ekki raun­veru­leg. Og það var það sem ég gerði. Ég hélt ekki áfram og horfð­ist í augu við ótt­ann minn og bauð honum með í ferða­lag,“ lýsir hann. Hann segir þetta ferða­lag hafa kennt honum mikið, m.a. að þekkja til­finn­ingar sínar.

Reyndi að ýta tilfinningunni til hliðar

Arnar hefur und­an­farið vakið athygli þar sem hann skrifar og talar opin­skátt um for­eldramissi, m.a. í við­tali við Mannlíf, en hann missti móður sína aðeins ell­efu ára gam­all. Í nýjasta pistli sínum rifjar hann upp að þegar mamma hans lést hafi ein­mana­leik­inn gert vart við sig.  „Þá dró ég mig til baka, setti upp gleði­grímuna og lét eins og allt væri í lagi. Svipað og ég gerði núna þegar sam­komu­bannið skall á.“

Hann seg­ist hafa gert til­raun til að hætta að vera ein­mana, en það eina sem ger­ist þá er að til­finn­ingin magn­ast upp að sögn Arnars.

„Þegar ég komst upp úr hjólfar­inu átt­aði ég mig á því að ég mun alltaf eiga erfitt með það að finna fyrir sökn­uði og ein­mana­leika. Þá átt­aði ég mig á því að ég væri mann­legur. Þá átt­aði ég mig á því hvað ég væri raun­veru­lega kom­inn langt. Þetta minnti mig aftur á það að ferða­lagið mitt endar ekki ein­hvers staðar og að ég vil ekki að það endi ein­hvers staðar. Að ég er ekki að leita að ein­hverri nið­ur­stöðu eða enda­lausri ham­ingju.“

Pistil Arnars má lesa í heild sinni hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ