Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Uppljóstrarinn sem biskupinn rak

Séra Skírnir Garðarsson.
Séra Skírnir Garð­ars­son.

Séra Skírnir Garðarsson, héraðs­prestur á Suður­landi og fyrr­verandi prestur í Lága­fellskirkju, var rekinn úr embætti í framhaldi af umfjöllun frétta­miðilsins Vísis um samskipti hans og Önnu Auroru Waage. Þetta var í þriðja sinn sem presturinn uppljóstraði eða kom að slíkum málum.

Séra Skírnir sagði frá því í viðtali fyrir nokkru að honum hefði brugðið mjög þegar hann sá á frétta­myndum að Anna var á leið vestur til Bolungarvíkur til að sinna hjúkrunar­störfum á elli­heimilinu þar sem kórónu­veiran lagðist þungt á fólk. Anna hafði verið ráðin sem bakvörður á þeim forsendum að hún hefði réttindi og menntun til að sinna þeim störfum.

„Ég hafði lúmskan grun um það að papp­ír­arnir sem lágu þar væru að hluta til fals­aðir.“

„Ég gat ekki látið hana hafa peninga né mat öðruvísi en að frétta af því hvort hún væri að segja mér satt eða ekki. Þannig ég ákvað að hringja í félagsmála­stjóra Mosfells­bæjar, sem ég og gerði. Af því ég hafði lúmskan grun um það að pappírarnir sem lágu þar væru að hluta til falsaðir þá spurði ég félagsmála­fulltrúann að því hvort ég gæti fengið að sjá þá,“ segir Skírnir í samtali við Vísi.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Skírnir rekinn

Agnes Sigurðar­dóttir, biskup Íslands, brá skjótt við og lýsti því yfir að presturinn hefði framið trúnaðar­brot með orðum sínum um skjólstæðing. Fram­haldið var síðan það að biskup rak séra Skírni, sem verður sjötugur í nóvember. Brott­reksturinn var óvenju­harkalegur þar sem Agnes lýsti því yfir að hann myndi ekki þjóna Þjóð­kirkjunni framar.

„Sr. Skírnir Garðarsson hefur starfað sem héraðs­prestur frá árinu 2016. Í viðtali við Vísi.is þann 11. apríl greindi Skírnir frá viðkvæmum málefnum sóknar­barns, frá þeim tíma sem hann starfaði sem prestur við Lága­fellssókn. Með viðtalinu rauf Skírnir trúnaðar­skyldu presta og braut starfs- og siða­reglur. Sr. Skírnir Garðarson hefur lokið þjónustu sinni fyrir íslensku þjóð­kirkjuna,” segir í tilkynningu biskups.

Þessi skjótu viðbrögð vekja athygli og þá ekki síst vegna þess vandræða­gangs sem einkennt hefur Þjóð­kirkjuna þegar um hefur verið að ræða mun alvarlegri mál á borð við kynferðis­brot. Þá liggur fyrir að Séra Skírnir hefur ekki fengið áminningu sem er lögum samkvæmt undanfari brott­reksturs. Presturinn var þess utan í veikinda­leyfi þegar hann fékk tilkynninguna um brott­reksturinn.

Lestu nánar um málið í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim