Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðalsteinn Leifsson skipaður ríkissáttasemjari

Aðalsteinn Leifsson skipaður ríkissáttasemjari
Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra hefur í dag skipað Aðal­stein Leifsson fram­kvæmda­stjóra hjá EFTA sem rík­is­sátta­semj­ara frá og með 1.apríl. Helga Jóns­dóttir settur rík­is­sátta­semj­ari mun gegna störfum fram til þess tíma.

Hæfastur umsækjenda

Þann 5. des­em­ber 2019 aug­lýsti félags­mála­ráðu­neytið laust til umsóknar emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara og var umsókn­ar­frestur til og með 20. des­em­ber 2019. Alls bár­ust sex umsóknir um emb­ættið en einn umsækj­andi dró á síð­ari stigum umsókn sína til baka. Ráð­gef­andi nefnd var skipuð af félags- og barna­mála­ráð­herra þann 3. jan­úar 2020 til að meta hæfni umsækj­enda um emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara.

Í aug­lýs­ingu frá félags­mála­ráðu­neyt­inu, þar sem umrætt emb­ætti var aug­lýst laust til umsóknar, kom meðal ann­ars fram að rík­is­sátta­semj­ari starfi á grund­velli laga nr. 80/1938, um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur, með síð­ari breyt­ingum. Jafn­framt kom fram að rík­is­sátta­semj­ari ann­ist sátta­störf í vinnu­deilum milli launa­fólks og félaga þess ann­ars vegar og atvinnu­rek­enda og félaga þeirra hins vegar. Því skuli þess gætt að afstaða rík­is­sátta­semj­ara sé slík að telja megi hann óvil­hallan í málum launa­fólks og atvinnu­rek­enda, sbr. 1. mgr. 20. gr. laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. Þá kom fram í aug­lýs­ing­unni að enn fremur væri lögð áhersla á for­ystu­hæfi­leika og hæfni í mann­legum sam­skiptum.

Nefndin skil­aði umsögn sinni 27. jan­úar 2020 þar sem nið­ur­staða nefnd­ar­innar var að þrír umsækj­endur væru jafn­hæfir til að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara.

Það er mat félags- og barna­mála­ráð­herra að af þessum þremur ein­stak­lingum upp­fylli Aðal­steinn Leifsson best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem skip­aður verður í emb­ættið. Eftir sam­ráð við for­svars­menn sam­taka aðila vinnu­mark­að­ar­ins er það enn fremur nið­ur­staða ráð­herra að afstaða  Aðal­steins Leifs­sonar sé slík að telja verði hana óvil­halla í málum launa­fólks og atvinnu­rek­enda enda hafi hann sam­hliða öðrum störfum, starfað sem aðstoð­ar­rík­is­sátta­semj­ari  frá því í byrjun árs 2019.

Með víðtæka þekkingu og reynslu í samningamálum

Aðal­steinn lauk MBA námi frá Edin­burgh Business School / Herriot Watt Uni­versity í októ­ber 2004. Auk þess hefur hann lokið MSc námi frá London School of Economics (LSE). Þá stund­aði hann dokt­ors­nám í samn­inga­tækni hjá Greneoble Ecole de Mana­gement sam­hliða vinnu á árunum 2016-2018. Frá því í jan­úar 2014 hefur Aðal­steinn leitt dag­legan rekstur EFTA sem hefur starf­stöðvar í Genf, Brussel og Lux­emburg og tæp­lega eitt hund­rað starfs­menn en í því starfi hefur meðal ann­ars reynt á verk­stjórn og for­ystu­hæfi­leika Aðal­steins, oft og tíðum við krefj­andi aðstæður. Einnig hefur hann leitt skrif­stofu aðal­fram­kvæmda­stjóra EFTA. Samhliða starfi sínu hjá EFTA hefur Aðal­steinn starfað sem lektor við Háskól­ann í Reykja­vík þar sem hann hefur meðal ann­ars kennt samn­inga­tækni og lausn deilu­mála í MBA námi og í meist­ara­námi innan hinna ýmsu deilda skól­ans. Í fram­an­greindri kennslu, við ráð­gjöf og í nýlegri bók sinni sem og samn­inga­við­ræðum almennt hefur Aðal­steinn lagt áherslu á traust, heið­ar­leika, opin sam­skipti og gagn­kvæman ávinn­ing. Þá hefur Aðal­steinn, eins og áður er nefnt,  starfað sem aðstoð­ar­rík­is­sátta­semj­ari frá því í byrjun árs 2019 vegna samn­inga á almennum vinnu­mark­aði og hefur hann veitt emb­ætt­inu lið­sinni og verið til ráð­gjafar auk þess að sitja fundi með samn­ings­að­ilum þar sem meðal ann­ars hefur reynt á hæfni hans í mann­legum sam­skiptum.

Aðal­steinn hefur því víð­tæka þekk­ingu og reynslu á samn­inga­málum en auk fræði­legrar þekk­ingar hefur hann reynslu af þátt­töku í samn­inga­við­ræðum, kennslu í samn­inga­tækni, ráð­gjöf við samn­ings­að­ila og aðstoð við deilu­að­ila við að bæta sam­skipti en allt er þetta reynsla og þekk­ing sem talin er mik­il­væg þegar kemur að því að skipa í emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara.

Í ljósi fram­an­greinds er það mat félags- og barna­mála­ráð­herra að Aðal­steinn sé best til þess fallin, af þeim umsækj­endum sem fram­an­greind nefnd taldi hæf­asta til að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara, til að ann­ast sátta­störf í vinnu­deilum milli launa­fólks og félaga þess ann­ars vegar og atvinnu­rek­enda og félaga þeirra hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi