Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Heimur

Gagn­rýnir hetju­dýrkun á Karl Bushby

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Manndrápið í Torrevieja: Gagnrýnir fréttaflutning á Íslandi og á Spáni af málinu

Sam­býl­is­kona íslenska manns­ins sem lést á Spáni ósátt við frétta­flutn­ing fjöl­miðla.

Mynd / Wikimedia Commons – Ezarate|Guðmundur Freyr
Mynd / Wikimedia Commons – Ezarate|Guð­mundur Freyr

Mannlíf greindi frá því í gær að Sverrir Örn Olsen hefði fund­ist lát­inn á heim­ili sínu í Tor­revi­eja á Spáni aðfar­arnótt sunnu­dags­ins 12. jan­úar, hann var 65 ára að aldri. Guð­mundur Freyr Magn­ús­son, stjúp­sonur Sverris Arnar, er í haldi lög­regl­unnar í Tor­revi­eja, grun­aður um að hafa orðið Sverri Erni að bana.

Kristín Guð­munds­dóttir, móðir Guð­mundar, er ósátt við frétta­flutn­ing spænska mið­ils­ins Informacion af mál­inu, að því er kemur fram í Frétta­blað­inu í dag, en bæði Morg­un­blaðið og Rík­is­sjón­varpið vitn­uðu í Informacion.

Kristín segir Informacion fara með rangt mál, þar sem mið­ill­inn greindi frá því að sonur hennar hafi klifrað yfir vegg og þannig kom­ist inn á heim­ili Krist­ínar og sam­býl­is­manns hennar. Þar segir að komið hafi til átaka sem endað hafi með því að sam­býl­is­mað­ur­inn hafi fallið á rúðu og hún brotnað. Við það hafi hann hlotið fjölda áverka og lát­ist. Hið sanna sé að sonur hennar hafi kastað 14 kílóa gaskút í gegn um rúð­una og síðan ruðst inn á heim­ilið, ýtt sam­býl­is­manni hennar í gólfið og síðan lagt ítrekað til hans með hnífi. Það hafi orðið honum að bana.

„Það áttu sér engin átök stað. Sonur minn hafði hann undir á skömmum tíma,“ segir Kristín í sam­tali við Frétta­blaðið. Skýrsla var tekin af henni í gær og hún á að mæta aftur klukkan tíu fyrir hádegi í dag.

Með langan sakaferil að baki á Íslandi

Guð­mundur Freyr sem grun­aður er um að hafa orðið sam­býl­is­manni móður sinnar að bana er nýlega orð­inn fer­tugur. Frá 16 ára aldri hefur hann minnst átta sinnum verið dæmdur til refsi­vistar fyrir hegn­ing­ar­laga­brot, fíkni­efna­brot, tolla­laga­brot, lyf­sölu­laga­brot og skot­vopna­laga­brot. Þann 19. des­em­ber 2007 var Guð­mundur Freyr dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir að hafa kveikt í par­húsi á Þor­láks­höfn. Kona og tvö börn voru sof­andi í hinum hluta par­húss­ins þegar Guð­mundur lagði eld að hús­inu. Í sama dómi var Guð­mundur Freyr dæmdur fyrir rán vopn­aður hnífi, fjár­svik, ölv­un­arakstur og vörslu fíkni­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Aðdáendur Kim Kardashian æfir eftir að hafa opnað rándýrt aðventudagatal
Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Innlent

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Þeir sem eiga kex úr umræddum framleiðslulotum eru beðnir um að borða það ekki og farga því eða skila í verslun.
Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir