Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjálfboðaliðar Landsbjargar sigursælir í valinu á manneskju ársins

Mannlíf gaf les­endum sínum kost á að taka þátt í vali á mann­eskju árs­ins 2019 með net­kosn­ingu á man.is. Valið stóð á milli ein­stak­linga sem hafa skarað fram úr á liðnu ári og verið áber­andi í umræð­unni.

Sjálfboðaliðar Landsbjargar sigursælir í valinu á manneskju ársins
Mynd / Sig Ó. Sig|Hildur Guðna­dóttir

Nið­ur­stöður eru ljósar og eru félagar Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar greini­lega ofar­lega í hugum og hjörtum fólks og fengu afger­andi kosn­ingu eða 20% atkvæða. Í öðru sæti voru nem­endur Haga­skóla með 15% atkvæða og þriðja sæti deila Guðrún Ögmunds­dóttir, Haraldur Þor­leifs­son og Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir með 11% atkvæða hvert.

Slysavarnafélagið Landsbjörg – 1. sæti

Sjálf­boða­liðar slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar eru ávallt boðnir og búnir að aðstoða fólk í neyð. Félagið er þver­skurður af íslensku þjóð­inni og innan raða þess eru ein­stak­lingar af öllum kynjum, úr öllum starfs­stéttum, alls staðar á land­inu. Félagar Lands­bjargar stóðu vakt­ina í óveðr­inu sem geis­aði á land­inu í des­em­ber, sem og í leitum að ein­stak­lingum bæði í lok árs og byrjun árs­ins 2020.

Zainab Safari, Amíra Snærós Jabali, Sindri Bjarka­son Elín Sara Richter, Magnús Guð­munds­son Mynd / Aldís Páls­dóttir

Nemendur í Hagaskóla – 2. sæti

Amíra Snærós Jabali, Elín Richter, Sindri Bjarka­son og og skóla­systk­ini þeirra börð­ust hetju­lega fyrir því að skóla­systir þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, yrði ekki vísað úr landi. Íslensk stjórn­völd höfðu í tvígang hafnað því að taka mál fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar og þar með að skoða mögu­leik­ann á því að þau ættu þess kost að setj­ast að hér á landi. Skóla­systk­inin neit­uðu að gef­ast upp og fjöl­skyldan fékk að lokum dval­ar­leyfi.

Guðrún Ögmunds­dóttir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Guðrún Ögmundsdóttir, baráttukona og fyrrum þingmaður – 3. sæti

Guðrún lést að morgni gaml­árs­dags, 69 ára að aldri, eftir bar­áttu við krabba­mein sem hún greind­ist með ára­mótin 2018-2019. Guðrún, sem barð­ist alla tíð ötul­lega fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín, sagði í við­tali við Mannlíf að hún væri full þakk­lætis og stolt af því sem áunn­ist hefði. Þrátt fyrir að hafa verið sæmd fálka­orð­unni og heið­urs­merki Sam­tak­anna ´78 í fyrra sagði hún stærstu við­ur­kenn­ing­una vera að skjól­stæð­ingar hennar litu á hana sem eina úr þeirra hópi.

Haraldur Þor­leifs­son. Mynd / Ueno

Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno – 3. sæti

Haraldur Þor­leifs­son stofn­aði fyrir fimm árum staf­ræna hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Ueno, sem í dag er með 65 starfs­menn á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið er í stöð­ugum vexti og segir Haraldur fyr­ir­séð að fyr­ir­tækið muni halda áfram að stækka og þró­ast. Haraldur sem er fæddur og upp­al­inn í Vest­ur­bænum hefur vegna með­fædds vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóms notað hjóla­stól frá því hann var 25 ára en hann lætur sjúk­dóm­inn ekki stöðva sig.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hrafnhildur Gunnarsdóttir kvikmyndagerðarkona – 3. sæti

Kvik­mynda­gerð­ar­konan Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir frum­sýndi á árinu þætti sína Svona fólk. Þætt­irnir eru afrakstur 27 ára við­leitni Hrafn­hildar til að skrá­setja og varð­veita sam­tíma­heim­ildir um bar­áttu homma og lesbía; erf­ið­leik­ana, átökin og sigr­ana. Um leið eru þeir áhuga­verð heim­ild um þær miklu breyt­ingar og fram­farir sem hafa orðið í íslensku sam­fé­lagi síð­ustu ára­tugi. Þætt­irnir hafa því ótví­rætt sögu- og menn­ing­ar­legt gildi fyrir þjóð­ina.

Aðrir til­nefndir í staf­rófs­röð eru:

Myndir / Aðsend, Aldís Páls­dóttir og Arnþór Birk­is­son

Gunnar Karl Ólafsson, James McDaniel og Sveinn Rúnar Einarsson

Gunnar Karl, James og Sveinn Rúnar stigu fram í við­tali við Mannlíf og lýstu reynslu sinni eftir nauðgun og kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Sögðu þeir sögur sínar til að opna umræð­una um kyn­ferð­is­legt ofbeldi gagn­vart karl­mönnum, auka skiln­ing á þeim málum og benda á hversu nauð­syn­legt sé að leita sér aðstoðar ef ein­stak­lingar verða fyrir slíku ofbeldi.

Haukur Örn Birg­is­son Mynd / Hallur Karlsson

Haukur Örn Birgisson

Haukur Örn Birg­is­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og for­maður Golf­sam­band Íslands, opn­aði sig um sára lífs­reynslu, en hann og Guðríður Magndís Guð­munds­dóttir, sam­býl­is­kona hans, eign­uð­ust and­vana tví­bura eftir 22 vikna með­göngu. Pistill sem hann skrif­aði og við­tal í Mannlíf vöktu mikil við­brögð, en Haukur sagð­ist ekki vanur að bera til­finn­ingar sínar á torg.

Hildur Guðna­dóttir Mynd /EPA

Hildur Guðnadóttir tónskáld

Hildur Guðna­dóttir, tón­list­ar­kona og tón­skáld. Sem kunn­ugt er hefur Hildur hlotið fjölda verð­launa og til­nefn­inga á þessu og síð­asta ári fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni Joker og þátt­unum margróm­uðu Chernobyl. Hefur Hildur þannig náð að stilla sér upp í röð með fremstu kvik­mynda­tón­skáldum í heimi á árinu 2019 og vekur enn mikla athygli á nýju ári.

María Rut og Ingileif Mynd / Facebook

Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristjánsdóttir aktivistar

Hjónin Ingileif Frið­riks­dóttir fjöl­miðla­kona og María Rut Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­maður Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, hafa lengi haldið úti hinum vin­sæla fræðslu­vett­vangi Hinseg­in­leik­anum. Saman hafa þær átt þátt í að fræða ung­menni um hinsegin veru­leika, veita þeim fleiri hinsegin fyr­ir­myndir og brjóta niður staðalí­myndir.

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Sigurþóra Bergsdóttir framkvæmdastjóri

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir missti son sinn Berg Snæ Sig­ur­þórs­son, sem svipti sig lífi í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis. Í kjöl­farið ákvað Sig­ur­þóra að stofna stuðn­ings­setrið Headspace með það að mark­miði að auka þjón­ustu við ungt fólk sem dettur á milli kerfa í sam­fé­lag­inu og á erfitt með að finna heild­stæða þjón­ustu og stuðla að því að ungt fólk í vanda fái aðstoð fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi