Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baldur Guðmundsson til liðs við Mannlíf – Hólmfríður Gísladóttir nýr frétta- og vefstjóri

Baldur Guðmundsson til liðs við Mannlíf – Hólmfríður Gísladóttir nýr frétta- og vefstjóri

Baldur Guð­munds­son hefur verið ráð­inn til starfa á rit­stjórn Mannlífs og mun meðal ann­ars skrifa frétta­skýr­ingar og almennar fréttir í blaðið og á man.is. Baldur er reynslu­mik­ill fjöl­miðla­maður og hefur starfað hjá Frétta­blað­inu, mbl.is og DV nær óslitið frá árinu 2007. Þá var Hólm­fríður Gísla­dóttir nýlega ráð­inn frétta­stjóri Mannlífs og vef­stjóri man.is og Ragna Gests­dóttir sem blaða­maður. Mannlíf er frí­blað sem kemur út alla föstu­daga og er dreift í 80 þús­und ein­tökum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Halldór Krist­manns­son útgef­andi Mannlífs segir ánægju­legt að fá Hólm­fríði, Baldur og Rögnu til liðs við rit­stjórn­ina en þau búa öll yfir víð­tækri reynslu úr fjöl­miðlum. „Sérstaða Mannlífs verður áfram á umfjöllun um lífstílstengt efni í sam­starfi við Hús og hýbíli, Vikuna, Gest­gjafan og Séð og heyrt, vand­aðar og beittar frétta­skýr­ingar og við­töl við áhuga­vert fólk. Mannlíf hefur á stuttum tíma fest sig í sessi sem eitt mest lesna helg­ar­blað lands­ins og staða okkar styrk­ist nú enn frekar með nýjum liðs­mönnum.“

Hólm­fríður býr yfir mik­illi reynslu úr fjöl­miðlum og verður í lyk­il­hlut­verki við útgáfu Mannlífs en hún starf­aði áður á mbl.is til margra ára, á Morg­un­blað­inu og RÚV. Hólm­fríður nam ensku og bók­mennta­fræði við Háskóla Íslands. Áhugamál hennar eru m.a. borð­spil og kór­söngur. Hún er gift og á eitt barn.

Baldur er með BA-próf í fjöl­miðla­fræði frá Háskól­anum á Akureyri. Hann er eig­in­maður og tveggja barna faðir, sinnir veiði af mik­illi ástríðu og skraflar í frí­stundum. Hann hefur sam­hliða blaða­manna­starf­inu sinnt veiði­leið­sögn og þang­skurði á Breiða­firði, svo eitt­hvað sé nefnt.

Ragna er er menntuð sem lög­fræð­ingur og kemur með góða reynslu úr fjöl­miðlum, en hún hefur starfað sem blaða­maður í nokkur ár, áður á DV og Birtingi. Ragna situr í stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands og nefnd um slysa­varna­mál hjá Slysa­varna­fé­lag­inu Lands­björg, þar sem hún er félagi. Ragna á eitt barn. Helstu áhuga­mál hennar auk vinn­unnar og félags­starfa eru tón­leikar, tón­list og kvik­myndir.

Roald Eyvinds­son er útgáfu­stjóri Mannlífs og hefur leitt útgáfu blaðs­ins frá því það hóf göngu sína í nóv­em­ber 2017. Meðal ann­arra blaða­manna Mannlífs og man.is má nefna Friðriku Ben­ón­ýs­dóttur, Foldu Guð­laugs­dóttur, Guðnýju Hrönn, Guðrúnu Óla Jóns­dóttur, Hönnu Ingi­björgu Arn­ars­dóttur rit­stjóra Gest­gjafans og Húsa og hýbíla, Magnús Guð­munds­son, Maríu Erlu Kjart­ans­dóttir, Ragn­hildi Aðal­steins­dóttur, Stefaníu Alberts­dóttur og Stein­gerði Stein­ars­dóttur rit­stjóra Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi