Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Nokkrar staðreyndir um kassavín …

Fyrir nákvæmlega 50 árum síðan, lagði Ástralinn Thomas Angove, víngerðar­maður frá Suður-Ástralíu, inn umsókn á einka­leyfi á ílátum sem áttu eftir að umbylta vínmarkaðnum. Poki úr pólýetýlen­plasti sem gat inni­haldið 4,5 l af víni var settur í kassa úr pappa.

Neytendur þurftu bara að klippa hornið af pokanum og loka aftur með þar til gerðum tappa. Þessi vara þróaðist fljótlega, sérstak­lega pokinn sem varð tveimur árum seinna úr mörgum lögum af plasti og málmi. Seinna kom krani á pokann sem tryggði að hann væri loft­þéttur og læki ekki. Í dag innihalda flestir kassar 3 lítra af víni, en ekki lengur 4,5 eða 5 lítra, sem samsvarar fjórum 750 cl flöskum.

Þessi uppfinning – eða kannski frekar hugmynd – átti eftir að verða óhemju­vinsæl í vínheiminum og sem dæmi má segja að rúmlega helmingur af þeim vínum sem seljast á Norður­löndum eru í kassa. Óneitanlega hefur kassa­vínið marga kosti fyrir neytandann: umbúðirnar eru ódýrari en flöskurnar og verð á hvern lítra af víni verður þar með ódýrari, vínið geymist betur eftir að búið er að opna og þægilegra (og stundum öruggara) er að flytja vínið í þessum kössum. Neytandinn verður samt að hafa nokkur atriði í huga þegar hann kaupir kassavín.

Líftími kassavínsins

Þó að vínið geymist betur eftir að búið er að rjúfa innsigli pokans (= opna kranann) en vín á flösku, gildir það ekki um geymslu vínsins áður en kassinn er opnaður. Súrefni hefur mikil áhrif á geymslu víns og síast það í litlum mæli í gegnum plast­filmuna, meira en í gegnum gler­flöskurnar. Kassavín hefur þar af leiðandi styttri líftíma áður en kassinn er opnaður, í flestum tilfellum eitt ár, og ber að sýna dagstimpil. Vínið verður ekki hættulegt heilsu eftir að það rennur út en bragðist breytist, ávöxturinn minnkar.

Líftími vínsins í kassanum

Kassa­vínið hefur þó vinninginn þegar kemur að því að geyma það eftir að búið er að opna fyrir kranann. Talað er um að vínið geymist í 4 til 6 vikur eftir að búið er að opna. Það er kannski fullmikil bjartsýni því eftir 3 til 4 vikur fer súrefnið sem kemur inn þegar kraninn er notaður að hafa áhrif og ávöxturinn minnkar, vínið oxast þá og bragðið breytist. Hér er það ekki hættulegt heilsu en ánægjan er þó mest að drekka vínið ferskt og með því bragði sem ætlast er til að sé af því.

Vínið í kassanum er sama vínið og er í flöskunni en …

Þegar víninu er pakkað í framleiðslu­landinu er það í flestum tilfellum það sama og er á flöskum með sama nafni en árgangur er ekki tekin fram á kassanum (eða sjaldnast) þannig að þar er árgöngum blandað saman. Þegar vínið er flutt í tankskipi frá framleiðslu­landi og pakkað í Evrópu þarf að nota aukefni til að „stabilisera“ vínið, öll leyfileg, en kokteill aukefnanna getur komið fram sem óþol eða ofnæmi hjá þeim sem eru viðkvæmir fyrir – og þeim fjölgar stöðugt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni