Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðmundur Franklín gerir upp forsetakosningarnar: „Þetta er ofboðslegt skrímsli“

Guðmundur Franklín gerir upp forsetakosningarnar: „Þetta er ofboðslegt skrímsli“

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi fjallar um kosn­inga­bar­átt­una í nýjasta pistli sínum á sam­fé­lags­miðlum. Þar fer hann hörðum orðum um rík­is­stjórn­ina og fjöl­miðla á Íslandi og segir hvoru tveggja ala á sundr­ungu.

„Það krist­all­að­ist margt í þess­ari kosn­inga­bar­áttu. Hvernig þetta kerfi stendur allt saman. Hann [þ.e. Guðni Th. Jóhann­es­son, innsk. blm.] er höfuð kerf­is­ins og þótt hann sé ekki höfuð kerf­is­ins þá er honum stjórnað af kerf­inu. Kerfið birt­ist mér bara eins og einn veggur. Og það var merki­legt hvernig fjöl­miðl­arnir allir stóðu með for­set­anum og kerf­inu. Fyrir utan tvo fjöl­miðla … Mér tekst samt sem áður að ná þarna í ein­hver tíu pró­sent á ein­hverjum þremur mán­uðum. Það er mjög gott og frá­bært alveg. Kannski með meiri vinnu myndi maður ná meira fylgi,“ segir Guð­mundur á mynd­skeiði á sam­fé­lags­miðlum, þar sem hann fer yfir for­seta­kosn­ing­arnar.

„Þeir sem stýra umræð­unni eru fjöl­miðl­arnir,“ heldur hann áfram. „Fjórða valdið er fjöl­miðl­arnir og það kom svo greini­lega fram … hvað þeir sýndu tenn­urnar og hvað þeir standa fyrir … Það er í raun eng­inn munur á milli þeirra, þótt það sé blæ­brigða­munur. Það er eins og fjór­flokk­ur­inn. Það er í raun einn flokkur. Fjór­flokk­ur­inn og fjórða valdið, þetta er allt það sama, nema angi hvert af öðru. Svo bæt­ist inn í þetta spill­ing … og spill­ingin þarf nátt­úru­lega pen­inga. Og pen­ing­arnir koma úr útgerð­inni. Stóru útgerð­inni. Frá þessum stóru útgerða­mönnum. Frá þessum stóru félögum sem teygja anga sína út um allan heim og haga sér eins og kóngar í ríki sínu. Þeir stjórna fjór­flokknum og fjöl­miðl­unum og öfugt. Þannig að þetta er algjör Hydra. Þetta er rosa­legt skrímsli eða kvik­indi og það er ofboðs­lega erfitt að höggva af því haus­inn því það kemur nýr haus strax upp. Og það er í raun­inni með marga hausa, skil­urðu.“

„Fólk sem hagar sér svona er ekk­ert annað en pakk og versta teg­und af pakki.“

Vandar Guð­mundur Franklín blaða­stétt­inni á Íslandi ekki kveðj­urnar og seg­ist ekki hafa áttað sig áður á því „hverslags aum­ingjar íslenskir blaða­menn og frétta­menn eru. Þetta eru algjörir aum­ingjar, flestir af þeim, flestir af þeim. Auðvitað sannar und­an­tekn­ingin regl­una, en flestir af þeim eru bara útsend­arar og fá borgað fyrir … Þetta eru leigupennar. Það hefur ekk­ert breyst,“ segir hann og les því næst upp úr pistili sem hann hefur skrifað, undir fyr­ir­sögn­inni Fjöl­miðla­sam­steyp­urnar, fjórða valdið, eru angi af fjór­flokknum, með milli­fyr­ir­sögn­inni Óvinir lýð­ræðis og full­veldis? Þar veltir Guð­mundur Franklín meðal ann­ars fyrir sér hvað ger­ist „þegar 90 pró­sent af fjöl­miðlum er stýrt af fjórum fyr­ir­tækjum. Hvað ger­ist þegar þessum fjórum fyr­ir­ækjum er stýrt af sömu póli­tísku hug­mynda­fræð­inni,“ spyr hann. „Hvað ger­ist þegar fréttir eru ekki lengur hlut­lausar. Hvað ger­ist þegar maður getur ekki lengur treyst frétta­flutn­ingi og hlut­leysi frétta­manna. Hvað ger­ist þegar fréttir eru ekki lengur trúð­verð­ugar. Hvað ger­ist þegar fréttir verða ein­fald­lega fram­leng­ing af stefnu stjórn­mála­flokk­anna … Hvenær verða fréttir af áróðri … Af hverju nota fjöl­miðla­menn alltaf sömu orðin. Er þetta skipu­lagt? Og þá af hverjum er þetta skipu­lagt. Af ein­hverjum á fjöl­miðl­unum auð­vitað, eða ein­hverjum svona PR-agentum. Mönnum sem segja að þetta eigi vel við.“

Guð­mundur Franklín segir að þetta sama fólk og stýri fjöl­miðlum og sé í póli­tík sé á móti sam­heldni þjóð­ar­innar. „Þau vilja draga fólk í dilka. Og þau vilja egna fólk upp á móti hvert öðru. Þau gera þetta á ýmsan hátt og lymsku­legan hátt. Þau s.s. vilja sundr­ungu. Og þetta kjaftæði um sam­heldni, þetta er bara kjaftæði. Þau vilja sundr­ungu. Á því lifa þau. Af hverju erum við búin að ríf­ast um kvóta­kerfið í 30 ár? Af hverju erum við búin að ríf­ast um verð­trygg­ing­una í 30 ár? Af hverju erum við búin að ríf­ast um hina og þessa hluti svona lengi? Það væri löngu búið að laga það ef vilji væri fyrir hendi, því get ég lofað ykkur. En þetta pakk vill ekki sam­stöðu eða sam­heldni … Fólk sem hagar sér svona er ekk­ert annað en pakk og versta teg­und af pakki.“ Hann segir að sundruð sé þjóðin veik fyrir og engin fyrri­staða þessa fólks og áhrifum þess. Á meðan svo sé geti umrætt fólk leyft sér allt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina